Skoða skattalegt umhverfi þriðja geirans

Starfs­hópur á að skoða hvort að skatta­legar íviln­anir geti hvatt ein­stak­linga og fyr­ir­tæki til að styrkja félög sem falla undir þriðja geir­ann. Dæmi um félög sem gætu notið góðs af mögu­legum breyt­ingum eru björg­un­ar­sveitir, íþrótta­fé­lög og mann­úð­ar­sam­tök.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur komið á fót starfs­hópi sem ætlað er að koma með til­lögur að því hvernig hægt sé að styrkja skatta­legt umhverfi þriðja geirans. Stofnun hóps­ins er í sam­ræmi við til­lögur nefndar sem skil­aði atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu drögum að frum­varpi að lögum um félög til almanna­heilla.

Í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að reglu­verkið í kringum skatt­lagn­ingu þriðja geirans hafi verið óbreytt í langan tíma. Með þriðja geir­anum er átt við félög sem starfa hvorki innan opin­bera geirans né einka­geirans til að mynda íþrótta­fé­lög, björg­un­ar­sveitir, mann­úð­ar­sam­tök og góð­gerða­fé­lög. Tillögur starfs­hóps­ins eiga að hvetja ein­stak­linga og lög­að­ila til að styðja enn frekar við starf­semi slíkra félaga.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að vegna þess hve mik­il­væg félög til almanna­heilla séu fyrir sam­fé­lagið tíðk­ist það innan aðild­ar­ríkja OECD að veita skatta­legar íviln­anir vegna styrkja til félaga sem falla undir þriðja geir­ann. Í grunn­skoðun sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið fram­kvæmdi hafi komið í ljós að skattaund­an­þágur vegna félaga í þriðja geir­anum eru í ákveðnum til­fellum víð­tæk­ari í nágranna­lönd­unum en hér á landi.

Á Íslandi hefur lög­að­ilum verið heim­ilt að draga ákveðið hlut­fall af rekstr­ar­tekjum sínum fyrir gjafir til félaga­sam­taka sem starfa til almanna­heilla. Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að í Danmörku, Noregi og Svíþjóð séu hins vegar til staðar und­an­þágur vegna fjár­magnstekna og gjafa ein­stak­linga til góð­gerð­ar­fé­laga. Skoða á hvort að sam­bæri­legt fyr­ir­komu­lag kæmi til með styrkja umhverfi slíkra félaga á Íslandi.

Frumvarpi ætlað að auka tiltrú

Til­gangur starfs­hóps­ins er í sam­ræmi við til­lögur nefndar sem skipuð var af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra til að und­ir­búa lög­gjöf um frjáls félaga­sam­tök sem starfa að almanna­heillum. Frumvarp þess efnis hefur nú verið lagt fyrir Alþingi en í grein­ar­gerð þess kemur fram að nefndin hafi talið rétt að í fram­haldi af starfi nefnd­ar­innar yrði hugað að samn­ingu nýrra ákvæða sem vörð­uðu skatt af aðföngum, gjafafé og arfi.

Í frum­varp­inu er það meðal ann­ars lagt til að stofnuð verði almanna­heilla­fé­laga­skrá, sem yrði á for­ræði Rík­is­skatt­stjóra og að opin­berir aðilar geti gert það að skil­yrði fyrir styrkjum og samn­ingum að félag sem starfar að almann­heillum sé skráð þar. Í til­lögum nefnd­ar­innar er það sagt vera eðli­leg ráð­stöfun í því að fylgj­ast með því í hvað opin­berum fjár­munum sem slíkir aðilar veita, sé varið.

Þar segir einnig að stofnun slíkrar skrár væri til þess fallin að auka til­trú almenn­ings á félaga­sam­tökum sem starfi að almanna­heillum. Í vinnu sinni hafði nefndin til hlið­sjónar finnsk lög sem fjalla um almenn félög, en nefnd­ina skip­uðu meðal ann­ars full­trúar frá Almann­heillum og Fræða­set­urs þriðja geirans.

Sam­bæri­legt frum­varp var lagt fyrir Alþingi árið 2015, en var ekki sam­þykkt. Í umsögn Hags­muna­sam­taka heim­il­anna við það frum­varp, sem þau end­ur­taka núna, leggj­ast þau gegn því að skil­yrði fyrir skrán­ingu í almanna­heilla­fé­laga­skrá, þar sem slíkt ákvæði gæti orðið að meg­in­reglu í fram­tíð­inni. Þau feli í sér stefnu­breyt­ingu sem gæti reynst íþyngj­andi fyrir almanna­sam­tök.

Ekki ljóst hvort að skráning sé skilyrði fyrir ívilnunum

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að starfs­hóp­ur­inn yfir­fari nú skatta­legar reglur sem varða þriðja geir­ann og skili svo af sér til­lögum. Það er því ekki ljóst hvort að skil­yrði fyrir því að félög sem falla undir þriðja geir­ann fái mögu­legar skatta­legar íviln­anir sé að þau verði skráð í almanna­heilla­fé­laga­skrá, verði lögin sam­þykkt.

Starfs­hópnum á að skila til­lögum sínum eigi síðar en 15. júní næst­kom­andi, en hann skipa Willum Þór Þórsson, Börkur Arnarson, Guðrún Inga Sívert­sen, Guðrún Ögmunds­dóttir, Helga Jóns­dóttir og Óli Björn Kárason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár