Feneyingar prófa flóðavarnir sem beðið hefur verið eftir

Fram­kvæmdir við flóða­varna­kerfi Feney­inga hafa staðið yfir frá því 2003. Verk­efnið er langt á eftir áætlun og kostn­aður við það hefur marg­fald­ast.

Stíflurnar loka fyrir flæði sjávar úr Adríahafi inn í Feneyjalónið.
Stífl­urnar loka fyrir flæði sjávar úr Adría­hafi inn í Fen­eyja­lónið. Mynd: EPA

Flóða­varna­kerfi Feney­inga var prófað nú í vik­unni en nokkrir mán­uðir eru síðan eitt mesta flóð í sögu borg­ar­innar olli þar miklum skemmdum. Markmið prófan­anna var að sýna íbúum Feneyja styrk kerf­is­ins að því er fram kemur í frétt Reuters en flóða­varna­kerf­inu er ætlað að hindra flæði sjávar úr Adría­hafi inn í Fen­eyja­lónið. Fram­kvæmdin er mörgum árum á eftir áætlun og kostn­að­ur­inn er orð­inn mun meiri en áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Sögu flóða­varna­kerf­is­ins má rekja aftur til árs­ins 1966. Eftir verstu flóð sem gengið hafa yfir borg­ina fólu ítölsk yfir­völd verk­fræð­ingum að hanna lausn sem myndi verja borg­ina fyrir flóðum. Vinna hófst við gerð flóða­varna­kerf­is­ins árið 2003 og átti það að vera til­búið árið 2011.

Vanda­málin hafa hrúg­ast upp í kringum fram­kvæmd­ina. Spilling, umfram­keyrsla og seink­anir á seink­anir ofan. Upp­haf­lega var gert ráð fyrir að fram­kvæmdin myndi kosta 1,6 millj­arða evra en nú er áætlað að kostn­aður muni nema 5,5 millj­örðum evra. Spill­ingin í kringum fram­kvæmd­ina er slík að í tengslum við hana hafa tugir emb­ætt­is­manna verið hand­teknir sam­kvæmt frétt BBC.

Flóða­varna­kerfið virkar þannig að þegar von er á að flóð fari yfir fyrir fram ákveðna hæð þá lokar kerfið fyrir inn­göngu­leiðir sjávar úr Adría­hafi inn í Fen­eyja­lónið. Upp úr haf­inu rísa 78 flekar sem mynda stíflur og loka lón­inu þannig að yfir­borð lóns­ins verður ekki það hátt að það valdi flóðum. Nú er gert ráð fyrir að stífl­urnar verði til­búnar á næsta ári.

Síðasta stór­flóð gekk yfir borg­ina í nóv­em­ber í fyrra en það var það næst­hæsta í sögu borg­ar­innar. Einungis flóðið sem gekk yfir borg­ina árið 1966 var hærra, flóðið sem kom fram­kvæmd­inni af stað.

Flóðin í Feneyjum eru árs­tíða­bundin og því geta íbúar búist við flóðum allt frá hausti og fram á vor. Hægt er að fylgj­ast með flóða­spá líkt og veð­ur­spá og þannig gert ráð­staf­anir ef þarf. Sú spá nær aðeins nokkra daga fram í tím­ann og því ómögu­legt að segja til um hvort næsta stór­flóð gangi yfir borg­ina í haust eða eftir 20 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár