Hættir við einkasjúkrahús í Mosfellsbæ

Fjár­festar hafa fallið frá áformum um bygg­ingu einka­rek­ins sjúkra­húss í Mos­fellsbæ.

Íslenskir fjár­festar eru hættir við að taka þátt í fram­kvæmd við einka­rekið sjúkra­hús sem til stóð að byggja í Mos­fellsbæ. Þeir segj­ast ósáttir við að ekki sé búið að gefa upp hvaða fólk stendur að baki hol­lenskum fjár­fest­inga­sjóði sem stendur að baki verk­efn­inu. RÚV greindi frá þessu í hádeg­is­fréttum.

Aðal­for­svars­maður fram­kvæmd­ar­innar, Hol­lend­ing­ur­inn Henri Midd­eldorp, fer fyrir íslensku fyr­ir­tæki, MCBP, sem er að mestu í eigu hol­lensks félags, Burbanks Holding. VHE véla­verk­stæði í Hafn­ar­firði og Gunnar Ármanns­son, lög­maður véla­verk­stæð­is­ins, áttu síðan eins pró­senta hlut hvor. Fram kemur hjá RÚV að Gunnar og for­stjóri véla­verk­stæð­is­ins hafa sagt sig úr stjórn félags­ins. Gunnar segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að hann og véla­verk­stæðið hafi jafn­framt afsalað hol­lenska móð­ur­fé­lag­inu hlutum sínum í því íslenska.

Vildi ekki tjá sig við Kjarnann

Midd­eldorp vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarn­inn náði tali af hon­um í vik­unni. Hann sagði að for­svars­menn sjúkra­húss­ins vildu bíða og sjá hvað yfir­völd segðu um mál­ið, enda ætti málið að vera unnið í fullri sam­vinnu við þau. 

Áformin um sjúkra­húsið voru harð­lega gagn­rýnd, bæði af fólki í heil­brigð­is­geir­anum og svo stjórn­mála­mönnum. Fram­kvæmdin átti að kosta um 50 millj­arða króna, svipað og bygg­ing nýs Land­spít­ala.

Bæjarstjórinn setti varnagla vegna umræðunnar

Kjarninn greindi frá því í júlí að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins ætl­uðu ekki að hefja fram­kvæmdir fyrr en sótt verði um skattaí­viln­anir hjá stjórn­völdum. Þá verði nöfn fjár­festa heldur ekki gerð opin­ber fyrr en umsagn­irnar verða lagðar fram. Gögn um nöfn fjár­festa og mat frá við­skipta­banka verða lögð fyrir stjórn­völd og höfðu for­svars­menn sjúkra­húss­ins frest til þess fram til 1. des­em­ber 2017.

Har­aldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar, var þá ekk­ert sér­stak­lega bjart­sýnn um fram­tíð verk­efn­is­ins: „Svo getur vel verið að umræðan sem hefur skap­ast í kring um þetta drepi verk­efn­ið. Það getur vel farið svo.“

Lögin skuli vernda heilbrigðiskerfið

Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis fund­aði um málið í gær. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, sagði við Kjarnann í gær að nauð­syn­legt sé ganga úr skugga um hvort íslensk lög geti tryggt að heil­brigð­is­kerfi lands­ins sé ekki ógn­að. Nefndin fékk til sín full­trúa frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og Land­lækn­is­emb­ætt­inu til að fara yfir stöð­una. „Heil­brigð­is­kerfið er grunn­stoð í öllum sam­fé­lögum og það er mik­il­vægt að lögin séu þannig að það sé ekki hægt að þróa kerfið í hvaða átt sem er eftir þörfum fjár­festa,“ sagði Sigríður Ingi­björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár