Fyrsta þriðja stigs smitið staðfest

Eitt svo­kallað þriðja stigs til­felli smits nýju kór­ónu­veirunnar hefur verið greint hér á landi. Lang­flest smit hafa greinst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu utan tveggja sem greinst hafa á Suð­ur­landi.

Nýja kórónuveiran hefur verið greind í 104 löndum.
Nýja kór­ónu­veiran hefur verið greind í 104 löndum. Mynd: Alþjóða heilbrigðismálastofnunin

For­stjóri Land­spít­al­ans greindi frá því í dag að fjöru­tíu starfs­menn spít­al­ans vær nú í sótt­kví. Einn sjúk­lingur með COVID-19 liggur á spít­al­anum en hann verður útskrif­aður fljót­lega.

Í dag hafa 69 smit verið stað­fest hér á landi. Þar af eru fimmtán smit inn­an­lands. Hátt í 600 manns eru í sótt­kví. Eitt svo­kallað þriðja stigs til­felli hefur greinst. Þar er um að ræða maka mann­eskju sem smit­að­ist af ein­stak­lingi er smit­að­ist erlendis. Lang­flest smit hafa greinst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu utan tveggja sem greinst hafa á Suð­ur­landi.

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í dag að þótt að gjör­gæsla Land­spít­al­ans í Fossvogi hefði lent í smiti hefði verið farið algjör­lega að öllum reglum og að eng­inn sjúk­lingur hefði orðið fyrir skaða. Hann sagði að nú væri að hefj­ast sam­starf for­stjóra allra heil­brigð­is­stofn­ana á land­inu um beit­ingu fjar­heil­brigð­is­þjón­ustu. „Spít­al­inn er við­bú­inn og það öfl­uga fólk sem hjá okkur er,“ sagði Páll.

Nokkrum aðgerðum hefur verið frestað á Land­spít­al­anum vegna far­ald­urs­ins.

Alma Möller land­læknir sagði að nú væri að fást stað­fest­ing á því hér inn­an­lands að veiran er vissu­lega mjög smit­andi. Hún sagði ekki vitað enn sem komið er hversu veiran lifir lengi á yfir­borði hluta. Hvatti hún því áfram til mik­illar var­úðar og hrein­lætis og benti sér­stak­lega á snert­iskjái, greiðslu­posa og aðra hluti sem margir snerta á. Huga þurfi að því að nota snerti­lausar lausnir í við­skiptum og að nú sé unnið að því að hækka úttekt­ar­heim­ild hvað það varðar.

Veiran greinst í 104 löndum

Veiran hefur nú greinst hjá um 116 þús­und manns í 104 löndum. Dauðs­föll af hennar völdum eru orðin tæp­lega 4.100. Lang­flestir, yfir 3.000, hafa lát­ist í Kína þar sem veiran er upp­runnin. Utan Kína er ástandið alvar­leg­ast á Ítalíu. Þar hafa 463 dáið vegna hennar og tæp­lega 9.200 manns greinst með smit. Stjórn­völd þar í landi hafa gripið til strangra var­úð­ar­ráð­staf­ana. Fólki er sagt að halda sig heima og öll manna­mót eru bönnuð. Þá hafa flug­fé­lög í dag til­kynnt að þau fljúgi ekki til Ítalíu á meðan far­ald­ur­inn gangi yfir.

Nýjar tölur frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Íran benda til að veiran sé enn að breið­ast þar út. 291 dauðs­fall er nú rakið til hennar og rúm­lega 8.000 hafa greinst.

Hins vegar eru vís­bend­ingar um að útbreiðslan hafi náð hámarki í Kína og Suður-Kóreu. Í dag hafa engin ný dauðs­föll verið til­kynnt og síð­ustu daga hefur veru­lega dregið úr fjölda nýrra til­fella.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár