Fjármálaeftirlitið skoðar almennt ekki skrif blaðamanna um félög sem þeir eiga í

Tilefni þar að vera til þess að Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands taki til skoð­unar hluta­bréfa­eign blaða­manna í félögum sem þeir fjalla um, til dæmis að umfjöll­unin væri röng eða mis­vísandi.

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands. Mynd: Nasdaq Iceland

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands tekur almennt ekki til skoð­unar hvort blaða­menn sem fjalla um skráð félög eigi eign­ar­hluti í sömu félögum nema til­efni sér til. Slíkt til­efni gæti til dæmis verið vegna þess að umfjöllun í fjöl­miðlum væri með ein­hverjum hætti röng eða mis­vísandi.

Þetta kemur fram í svari Fjár­mála­eft­ir­lits­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort það skoði með ein­hverjum hætti það að blaða­menn fjalli um félög sem þeir eigi hluta­bréf í án þess að það sé til­greint opin­ber­lega.

Eft­ir­litið tekur einnig fram að það tjáir sig ekki um hvort ákveðin mál hafi verið tekin til skoð­unar eða ekki.

Viðskiptaritstjóri á í 13 félögum

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins á Frétta­blað­inu, var skráður hlut­hafi í 13 félögum í Kaup­höll­inni í lok síð­asta árs. Þar af á hann fimm millj­óna króna hlut í Arion banka og eins millj­óna króna hlut í Marel.

[adspot][Mark­aðsvirði hluta­bréf­anna sem Hörður er skráður fyrir nemur sam­tals rúm­lega níu millj­ónum króna. Meiri­hluti þeirra er í Arion banka og Marel, en hann á einnig yfir 100 þús­und króna hlut í Kviku, Icelandair, Reitum og Brimi.

Það sem af er ári hefur Hörður skrifað að minnsta kosti 19 fréttir um Arion banka og eina frétt um Marel.

]Þar að auki hefur hann tekið við­tal við við sér­fræð­ing hjá Arion banka í sjón­varps­þætti Mark­að­ar­ins, sem sýndur er á Hring­braut, og skrifað fjölda ann­arra frétta um hin félögin sem hann á hluta­bréf í.

Á hlut­haf­alistum skráðra félaga í Kaup­höll­inni má einnig finna blaða­menn á öðrum fjöl­miðlum en Kjarninn fann engin til­vik um að þeir sem ættu meira en milljón krónur í hluta­bréf hefðu flutt fréttir af félögum sem þeir áttu aðild að.

Í fimmtu grein siða­reglna Blaða­manna­fé­lags­ins stendur: „Blaða­maður var­ast að lenda í hags­muna­á­grein­ingi, til dæmis með því að flytja fréttir eða frá­sagnir af fyr­ir­tækjum eða hags­muna­sam­tökum þar sem hann á sjálfur aðild.“

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður félags­ins, þessa reglu eiga við um hluta­bréfa­eign blaða­manna og að engu máli skipti hversu stóran hlut þeir ættu.

Segist hafa fylgt gildandi siðareglur í hvívetna

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði Hörður að hluta­bréfa­eign sín væri óveru­leg og að ekk­ert í siða­reglum Frétta­blaðs­ins kveði á um að starfs­mönnum bæri að upp­lýsa um slíka eign.

[links]Aðspurður hvort hann hafi þurft að meta hæfi sitt til að fjalla um félögin sem hann er hlut­hafi að vegna fjár­hags­legra hags­muna sagði hann: „Ég, ásamt sam­starfs­fé­lögum mínum á Mark­að­inum, metum reglu­lega hæfi okkar til að fjalla um marg­vís­leg frétta­mál hverju sinni, rétt eins og vænt­an­lega er gert á rit­stjórnum allra fjöl­miðla.“

Í stöðu­upp­færslu sem Hörður birti á Facebook í gær eftir að frétta­skýr­ing Kjarnans birt­ist sagði hann til­gang frétta Kjarnans vera að gera hann tor­tryggi­legan. Hann sagð­ist í hví­vetna hafa fylgt öllu þeim gild­andi siða­reglum sem séu um hags­muna­á­rekstra í starfi blaða­manna og sagð­ist undr­ast þá túlkun for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands á siða­reglum félags­ins, þar sem segir að blaða­maður skuli var­ast að lenda í hags­muna­á­grein­ingi, til dæmis með því að flytja fréttir af fyr­ir­tækjum sem hann eigi sjálfur aðild, að engu máli skipti hversu stóran hlut þeir eigi. Hann skrif­aði að standi vilji ein­hverra til þess að end­ur­skoða siða­reglur Blaða­manna­fé­lags­ins, meðal ann­ars hvort blaða­mönnum verði gert að halda úti hags­muna­skrán­ingu líkt og á við um kjörna full­trúa í þeim til­gangi að auka gegn­sæi, sé það „sjálf­sagt mál“ sem kalli þá á meiri og almenn­ari umræðu innan Blaða­manna­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár