Hörður segist hafa fylgt öllum siðareglum í hvívetna

Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins á Frétta­blað­inu, segir túlkun for­manns Blaða­manna­fé­lags­ins á siða­reglum ekki stand­ast og hafa í hví­vetna fylgt öllum siða­reglum. Hörður á hluta­bréf í 13 Kaup­hall­ar­fé­lögum og hefur fjallað um þau í fréttum.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands og Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins á Fréttablaðinu.
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands og Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins á Frétta­blað­inu. Mynd: Samsett mynd

„Ég hef í hví­vetna fylgt öllum þeim gild­andi siða­reglum sem eru um hags­muna­á­rekstra í starfi blaða­manna,“ skrifar Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins á Frétta­blað­inu, á Facebook-síðu sína vegna fréttar Kjarnans um að hann eigi hluta­bréf í þrettán Kaup­hall­ar­fé­lögum að and­virði níu millj­óna króna.

Hörður undr­ast þá túlkun for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands á siða­reglum félags­ins, þar sem segir að blaða­maður skuli var­ast að lenda í hags­muna­á­grein­ingi, til dæmis með því að flytja fréttir af fyr­ir­tækjum sem hann eigi sjálfur aðild, að engu máli skipti hversu stóran hlut þeir eigi. Hann skrifar að standi vilji ein­hverra til þess að end­ur­skoða siða­reglur Blaða­manna­fé­lags­ins, meðal ann­ars hvort blaða­mönnum verði gert að halda úti hags­muna­skrán­ingu líkt og á við um kjörna full­trúa í þeim til­gangi að auka gegn­sæi, sé það „sjálf­sagt mál“ sem kalli þá á meiri og almenn­ari umræðu innan Blaða­manna­fé­lags­ins.

[adspot]

Hörður segir stærstu ein­stöku fjár­fest­ingu sína vera kaup á hús­næði sem hafi verið fjár­mögnuð með láni frá við­skipta­banka, rétt eins og eigi við um flesta Íslend­inga. „Af því leiðir að ég hef ríkra hags­muna að gæta – mun meiri en nokkurn tíma af geng­is­þróun lít­illar hluta­bréfa­eignar félaga í Kaup­höll­inni – af þróun fast­eigna­verðs og vaxta á fjár­mála­mark­aði,“ skrifar Hörður en að aldrei hafi hins vegar hvarflað að honum að það geri hann van­hæfan til að fjalla um fast­eigna­mark­að­inn eða vaxta­á­kvarð­anir Seðla­bank­ans. Væri svo hlytu enda nær allir fjöl­miðla­menn að falla undir sama hatt.

[links]„Ef túlkun for­manns félags­ins á fyrr­nefndri grein í siða­regl­unum væri hins vegar rétt, sem auð­vitað fær ekki stað­ist, er senni­legt að fjöldi blaða­manna sé að óbreyttu van­hæfur til að fjalla meðal ann­ars um við­skipti, hús­næð­is­mark­að­inn, vaxta­á­kvarð­anir og þátt­töku líf­eyr­is­sjóða í atvinnu­líf­inu vegna ráð­stöf­unar á sparn­aði, íbúða­kaupa og aðildar að ýmiss konar hags­muna­sam­tökum,“ skrifar Hörður. „Verði það nið­ur­staðan mun ég tæp­ast sjá mér fært að vera áfram í félag­inu og sinna þeim trún­að­ar­störfum sem ég hef gegnt þar síð­ustu ár.“

Í frétt Kjarnans í gær kom fram að Hörður á fimm millj­óna króna hlut í Arion banka og eins milj­óna króna hlut í Marel. Hann á einnig yfir 100 þús­und króna hlut í Kviku, Icelandair, Reitum og Brimi. Í frétt­inni kom einnig fram að Hörður hefur það sem af er ári skrifað að minnsta kosti nítján fréttir um Arion banka og eina frétt um Marel. Að auki hefur hann tekið við­tal við sér­fræð­ing hjá Arion banka í sjón­varps­þætti Mark­að­ar­ins og skrifað fjölda ann­arra frétta um hin félögin sem hann á hluta­bréf í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár