Úkra­ínskir þjóð­ern­is­sinnar mar­sera hér um götur Kænu­garðs þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn, í minn­ing­ar­göngu á afmæl­is­degi úkra­ínska þjóð­ern­is­sinn­ans Stepan Bandera. Mynd: EPA

Öfgahægrivandinn ekki meiri í Úkraínu en í nágrannaríkjunum

Hópur þjóð­ern­is­sinn­aðra sjálf­boða­liða­her­manna sem kalla sig Azov-hreyf­ing­una varð form­legur hluti af þjóð­varð­liði Úkraínu árið 2014. Úkraína á þó ekki við meira öfga­hægri- eða nýnas­ista­vanda­mál að etja en ýmsar margar nágranna­þjóðir lands­ins.

Vladimír Pútín for­seti Rúss­lands hefur, í her­skáum ræðum sínum til rétt­læt­ingar á inn­rásinni í Úkraínu, ítrekað vísað til þess að á meðal þess sem hann vilji ná fram sé að „afnas­ista­væða“ landið. Pútin hefur sagt nýnas­ista, þjóð­ern­is­sinna og gyð­inga­hat­ara ríða röftum um Úkraínu alla og standa stjórn­kerf­inu í Kyiv nærri.

Þessum mál­flutn­ingi hafa svo erind­rekar rúss­neskra stjórn­valda á erlendri grundu miðlað áfram. Í við­tali við mbl.is á dög­unum sagði Mikhail Noskov, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, að meg­in­á­stæða hern­að­ar­að­gerða Rússa væri „að brjóta á bak her­inn í Úkraínu, sem og að losna við nas­istana sem eru þar.“ Aðeins þannig, sagði Noskov, yrði hægt að „tryggja öryggi íbúa á Donbas-svæð­inu, sem og Rúss­lands“.

Volodímír Zelenskí for­seti Úkraínu hefur brugð­ist við þessum nas­ista­á­virð­ingum frá stjórn­völdum í Kremlin með nokkru háði og bent á að hann sjálfur, lýð­ræð­is­lega kjör­inn for­seti lands­ins, sé gyð­ingur. „Hvernig gæti ég verið nas­isti?“ sagði hann í ávarpi á dög­unum og vís­aði til þess að afi sinni hefði barist með Rauða hernum gegn þýskum nas­istum á tímum seinni heims­styrj­aldar.

Í Úkraínu, eins og flestum ríkjum Austur-Evrópu, eru þó til staðar hægriöfga­hreyf­ingar sem jafn­vel hafa innan sinna raða hópa sem kenna sig við nýnas­isma. Átökin sem hafa geisað í aust­ur­hluta Úkraínu allt frá árinu 2014 hafa til dæmis orðið vatn á myllu hóps sem kallar sig Azov-hreyf­ing­una.

Þessi hópur sjálf­boða­liða, sem telur nokkur þús­und manns, hefur barist gegn rúss­neskum aðskiln­að­ar­sinnum í Dónetsk og Lúgansk hér­uðum á und­an­förnum árum, í sam­vinnu við sveitir úkra­ínska stjórn­ar­hers­ins. Hern­að­ar­armur Azov-hreyf­ing­ar­innar varð við upp­haf átak­anna í reynd form­legur hluti úkra­ínska þjóð­varð­liðs­ins, sem var mjög svo veik­burða er átökin í Donbass hófust.

„Hardcore“ hreyfingar en ekki áhrifamiklar

Eiríkur Bergmann stjórn­mála­fræð­ingur, sem meðal ann­ars hefur stundað rann­sóknir á þjóð­ern­is­hyggju og evr­ópskum stjórn­málum, segir að öfga­hægri­hreyf­ingar hafi vissu­lega verið og séu til staðar í Úkraínu, án þess þó að kom­ast til mik­illa áhrifa. Azov-hreyf­ing­una megi kalla afsprengi átak­anna sem hófust árið 2014 með inn­limun Krím­skaga. Hann bendir á að sú öfga­hreyf­ing sem mestu fylgi hafi náð í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum sé Svoboda-hreyf­ingin sem fékk tæp­lega 11 pró­sent fylgi í þing­kosn­ingum í Úkraínu árið 2012. Hún hafi pólítískt séð haft miklu meiri áhrif en Azov-hreyf­ingin.

„Það eru mjög „hardcore“ hreyf­ingar þarna, sem hafa haft mikil áhrif eins og í öðrum nágranna­ríkjum. Það hafa verið svona öfga­hreyf­ingar víð­ast hvar í Austur-Evrópu. En áhrifin í Úkraínu eru ekk­ert umfram það sem verið hefur í öðrum ríkjum,“ segir Eiríkur í sam­tali við Kjarnann og bendir á að öfga­þjóð­ern­issinnuð öfl þrí­fist einnig í Rúss­landi og séu sum jafn­vel nátengd for­set­anum.

Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði.
Eiríkur Bergmann pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

Varðandi form­leg tengsl Azov-hreyf­ing­ar­innar við her­lið Úkraínu segir Eiríkur að ekki þurfi að leita lengra en til Ung­verja­lands til þess að finna öfga­hreyf­ingar með tengsl inn í stjórn­kerfið og hern­að­ar­kerfið. Þessar hreyf­ingar segir hann oft tengj­ast fót­bolta­bullum og ákveðnum „hooliganisma“ sem þrí­fist í menn­ing­unni sem teng­ist fót­bolta­liðum, svo­leiðis sé það einnig í Rúss­landi.

Frétta­rit­ari BBC í Kænu­garði sagði í pistli árið 2014 að úkra­ínsk stjórn­völd gerðu minna úr hlut­verki Azov-hreyf­ing­ar­innar í hern­að­inum í Donbass en efni stæðu til og að þau reyndu að kom­ast hjá því að tala opin­ber­lega um stórt hlut­verk þessa öfga­hóps, sem reynst hafði mik­il­vægur hlekkur í bar­átt­unni gegn rúss­neskum aðskiln­að­ar­sinnum í aust­ur­hér­uð­unum. Fæstir Úkra­ínu­menn hefðu heyrt um að það væru menn sem kenndu sig við öfga­þjóð­ern­is­hyggju og jafn­vel nas­isma að berj­ast fyrir hönd lands­ins á víg­lín­unum í austri.

Vest­rænir og alþjóð­legir fjöl­miðlar hafa á und­an­förnum árum fjallað all­nokkuð um ris öfga­hægr­is­ins í Úkraínu og þátt þess í vopn­uðum átökum í aust­ur­hluta lands­ins, til dæmis hér, hér og hér. Tilvist ein­hverra yfir­lýstra nýnas­ista innan þjóð­varð­liðs Úkraínu hefur því ekki verið neitt leynd­ar­mál.

Öfgahægrivandi Úkraínu réttlæti ekki innrás Rússa

Á dög­unum var fjallað um þessi mál öll í grein sem birt­ist í breska tíma­rit­inu New Statesman. Höfundur hennar er Michael Colborne, blaða­maður og rann­sak­andi hjá Bellingcat, sem var að gefa bók um Azov-hreyf­ing­una. Í grein­inni segir hann her­skáu hægriöfga­menn­ina í Úkraínu hafa notið nokk­urs frjáls­ræðis undir vernd­ar­væng þar­lendra stjórn­valda. Frjáls­ræðis, sem jafn­vel hafi verið öfunds­vert í augum öfga­hreyf­inga af svip­uðum meiði ann­ars­staðar í heim­inum.

Fram kemur í grein­inni að liðs­mönnum Azov-hreyf­ing­ar­innar hafi tek­ist að fljóta með á öldum úkra­ínskar þjóð­ern­is­kenndar sem óhjá­kvæmi­lega hefur orðið til vegna átak­anna um Donbass-svæðið. Colborne nefnir sér­stak­lega að Arsen Avakov, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra Úkraínu, sem lét af emb­ætti síð­asta sumar, hafi leyft Azov-hreyf­ing­unni að njóta ákveð­ins refsi­leysis, en það hafi dvínað frá því að hann hvarf úr rík­is­stjórn Voló­dímírs Zelenskís.

Colborne bendir á að í öllu falli sé það ein­fald­lega stað­reynd að öfga­hægrið í Úkraínu sé bæði nokkuð öfl­ugt og vel vopnað. Það geti verið vanda­mál, og að það sé engum til góða að forð­ast það að tala um það til þess að forð­ast að byggja undir áróður Pútíns og fylgitungla hans í Kreml um að vandi stafi af öfga­hægr­inu í Úkraínu.

„Samt verður að taka fram – og það er sorg­legt að þess þurfi – rétt­lætir ekk­ert af þessu inn­grip Rússa í Úkraínu. Núna þegar sviðs­myndir sem ég taldi ómögu­legar fyrir fáum vikum eru að raun­ger­ast, er ég sleg­inn yfir kald­rana­legum við­horfum í sumum kreðsum sítengdra vinstri­manna (e. the compulsively online left) um núver­andi stöðu, eins og ein­hvern­veg­inn eigi Úkraína skilið að sæta inn­rás, verða her­numin og brytjuð í sundur ein­ungis vegna til­vistar öfga­hægr­is­ins,“ skrif­aði Colborne.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár