Viðræður um kaup Skeljungs á 10-11 og tengdum félögum

Greitt er fyrir með hluta­bréfum í Skelj­ungi.

Skelj­ungur hf. og hlut­hafar Basko ehf. hafa sam­mælst um að hefja samn­inga­við­ræður um kaup Skelj­ungs á öllu hlutafé í Basko, á grund­velli sam­komu­lags um helstu samn­ings­skil­mála. Kaup­verðið er 2,8 millj­arðar króna, með yfir­töku skulda, og greitt með hluta­bréfum í Skelj­ungi.

Til­kynn­ing um þetta hefur verið send til kaup­hallar.

Kaupin eru háð ýmsum for­sendum og fyr­ir­vörum beggja samn­ings­að­ila, að því er segir í til­kynn­ingu. Mark­aðsvirði Skelj­ungs er nú 13,3 millj­arðar, og því er um hlut­falls­lega stóra við­bót að ræða í rekstur félags­ins.

Orðrétt segir í til­kynn­ing­unni: „Basko fer með eign­ar­hald á Rekstr­ar­fé­lagi Tíu Ellefu ehf., Ísland Verslun hf. og Imtex ehf. Rekstr­ar­fé­lag Tíu Ellefu ehf. rekur sam­tals 35 þæg­inda­vöru­versl­anir undir merkjum 10-11 og Háskóla­búð­ar­innar og er einnig móð­ur­fé­lag Dranga­skers ehf. sem rekur fimm kaffi­hús undir merkjum Dunkin Donuts. Félagið rekur einnig eina Inspired by Iceland verslun og veit­inga­stað­inn Bad Boys Burgers & Grill. Ísland Verslun hf. rekur þrjár versl­anir undir merkjum Iceland. Heild­ar­tekjur sam­stæð­unnar á síð­asta fjár­hags­ári námu 10.039 m.kr., heild­ar­eignir 2.360 m.kr. og rekstr­ar­hagn­aður án afskrifta og fjár­magnsliða (EBITDA) nam 309 m.kr.

For­sendur um kaup­verð eru grund­vall­aðar á upp­lýs­ingum selj­anda og þeim for­sendum að EBITDA hins keypta, geti numið um 500 m.kr. á árs­grund­velli, þegar sam­legð­ar­á­hrif félag­anna yrðu að fullu komin fram. Áætlað er að það geti verið innan 24 mán­aða frá því að kaupin eru gengin í gegn.

Kaupverð miðað við fram­an­greindar for­sendur væri allt að 2,2 millj­arðar króna, greitt að fullu með 318,840,580 hlutum í Skelj­ungi hf. Miðað er við nettó vaxta­ber­andi skuldir að fjár­hæð 657 millj­ónir króna, sem getur þó tekið breyt­ingum. Við útreikn­ing á fjölda hluta er miðað við gengið 6,9 á hlut. Dagsloka­gengi Skelj­ungs hf. þann 19. maí 2017 var 6,35. Selj­endur skuld­binda sig til að fram­selja ekki þá hluti sem þeir fá afhenta í 18 mán­uði frá afhend­ingu.

Fram­an­greint kaup­verð er háð ýmsum for­sendum, þar á meðal að áætl­aður rekstr­ar­hagn­aður og horfur í rekstri byggi á for­sendum sem eru ásætt­an­legar að mati kaup­anda eftir fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­unar.

Komi til gerðar kaup­samn­ings, verður sá samn­ingur gerður með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar fyrir aukn­ingu hluta­fjár og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Nánar verður gert grein fyrir við­skipt­unum ef end­an­legur kaup­samn­ingur kemst á og ef við­ræður aðila falla niður. Gangi við­skiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði end­an­lega frá kaupum fyrir árs­lok 2017.“

Valgeir M. Bald­urs­son, for­stjóri Skelj­ungs, segir að kaupin muni styrkja rekstur Skelj­ungs. „Árið 2014 samdi Skelj­ungur við Basko um rekstur versl­ana á helstu bens­ín­stöðvum félags­ins. Það hefur gengið vonum framar og á grunni þeirra reynslu stígur félagið nú skrefið til fulls með kaupum á félag­inu, með fulla sam­þætt­ingu á elds­neyt­is­sölu, sölu á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum og verslun fyrir augum. Með kaup­unum stígur Skelj­ungur jafn­framt mik­il­væg skref í frek­ari þróun í smá­sölu, sem m.a. felst í að mæta betur breyt­ingum á kaup­mynstri fólks - og sívax­andi tæki­færum í sölu og þjón­ustu til ferða­manna, þar sem 10-11 hefur þegar sterka stöðu. Samhliða þessu hyggst félagið jafn­framt leita tæki­færa til að styrkja sölu- og þjón­ustu­net sitt um allt land. Með kaup­unum myndi Skelj­ungur eign­ast eitt öfl­ug­asta þæg­inda­versl­ana­fyr­ir­tæki lands­ins, en stjórn­endur félags­ins hafa ára­langa reynslu í upp­bygg­ingu og rekstri smá­sölu­versl­ana. Heild­ar­fjöldi starfs­manna sam­ein­aðs félags yrði rúm­lega 400 manns,“ segir Valgeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár