Sýkla- og veirufræðideildin og Íslensk erfðagreining snúa bökum saman

Hluti af starf­semi sýkla- og veiru­fræði­deild­ar­innar mun flytj­ast í aðstöðu Íslenskrar erfða­grein­ingar og við það mun afkasta­geta við grein­ingu sýna aukast til muna. Tækjamál Land­spít­ala hefðu mátt vera betri að sögn yfir­læknis á sýkla- og veiru­fræði­deild.

Karl G. Kristinsson er yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Karl G. Krist­ins­son er yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Mynd: Almannavarnir

Sýkla- og veiru­fræði­deildin og íslensk erfða­grein­ing hafa ákveðið að snúa bökum saman til þess að auka afkasta­getu við grein­ingu sýna enn frekar. Þetta sagði Karl G. Krist­ins­son, yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna fyrr í dag. Hann sagði mikið álag hafa verið á tækjum deild­ar­innar en afköst hafi verið miðuð við 2.000 sýni á dag. Með­al­fjöldi sýna síð­ustu viku hefur verið yfir 2.500 sýnum á dag og síð­ustu tvo daga hefur fjöld­inn farið yfir 3.000. Tækja­bún­aður Íslenskrar erfða­grein­ingar er tal­inn geta afka­stað 5.000 sýnum á dag að sögn Karls.

Hann sagði að sýkla- og veiru­fræði­deildin hafi verið í start­hol­unum frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Aðferð til að greina SARS kór­ónu­veiruna hafi verið til­búin í lok jan­úar og fjöl­mörg próf hafi verið gerð áður en fyrsta til­fellið var greint 28. febr­úar.

[adspot]

Tækjamálin mættu vera í betra lagi

„Vegna umræðu und­an­farið um tækja­mál deild­ar­innar þá má segja að tækja­málin hefðu mátt vera í betra lagi. En Land­spít­al­anum er skammtað tækja­kaupafé og hjá okkur hefur það að mestu þurft að fara í að end­ur­nýja nauð­syn­leg tæki. Sjálf­virk tæki til að ein­angra erfða­efni úr sýnum er tak­mark­andi þáttur í afkasta­getu,“ sagði Karl á fund­inum.

Hann sagði sjálf­virk tæki þurfa að fara í útboð og að útboðs­gögn hafi næstum verið til­búin þegar far­ald­ur­inn skall á. Að hans sögn er útboðs­ferlið tíma­frekt og ljóst var þegar sýnum fór hratt vax­andi í upp­hafi far­ald­urs að afkasta­geta tækj­anna gæti orðið tak­mark­andi þáttur. „Þegar inn­kaup eru algjör­lega nauð­syn­leg vegna aðkallandi neyð­ar­á­stands sem stafar af ófyr­ir­sjá­an­legum atburðum þarf ekki að fara í útboð og þá fórum við strax í að panta nauð­syn­leg tæki,“ sagði Karl.

Afkastamesta tækið kemur í nóvember

Nú þegar hefur afkasta­mikið ein­angr­un­ar­tæki borist deild­inni og von sé á öðru í lok vik­unnar. „Afkasta­mesta tækið kemur því miður ekki fyrr en í nóv­em­ber en er svo gríð­ar­leg umfram­eft­ir­spurn eftir svona tækjum í heim­inum í dag. En það er ekki nóg að hafa tæki, það þarf líka starfs­fólk, sýna­töku­sett og hvar­fefni. Þó oft hafi staðið tæpt með sýna­töku­sett og hvar­fefni þá hefur gengið að afla þeirra með hjálp góðra aðila,“ sagði Karl og benti á að 20 nýir starfs­menn hefðu verið ráðnir til að sinna grein­ingum.

Hluti af starf­semi sýkla- og veiru­fræði­deild­ar­innar mun flytj­ast í aðstöðu Íslenskrar erfða­grein­ingar. Karl sagði á fund­inum að und­ir­bún­ingur vegna flutn­ings­ins stæði nú yfir og hann gerði ráð fyrir að flutn­ing­ur­inn gæti orðið í byrjun næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár