Alls 155 milljarðar króna farið í að greiða niður íbúðalán sumra

Frá því að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar ákvað að heim­ila notkun á skatt­frjálsum sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða niður íbúða­lán hefur ríkið veitt þeim sem nýta þá leið skatta­af­slátt upp á næstum 60 millj­arða króna. Næstum átta af hverjum tíu sem það gera til­heyra þremur efstu tekju­hóp­unum.

Leiðréttingin
Leið­rétt­ingin Úrræðið var kynnt sem hluti af „Leið­rétt­ing­unni“ árið 2014. Það var inn­leitt af rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks sem Sig­mundur Davið Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son leiddu. Mynd: Pressphotos

Alls voru 22,7 millj­arðar króna greiddir inn á íbúða­lán á síð­asta ári með því að nýta skatt­frjálsan sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður höf­uð­stól þeirra. Það er met enda hefur aldrei verið meira en 20 millj­örðum króna verið ráð­stafað með þessum hætti innan alm­an­aks­árs. Þetta kemur fram í nýbirtum hag­vísum Seðla­banka Íslands.

Á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2024 hafa bæst tæp­lega 2,6 millj­arðar króna við slíkar inn­greiðslur. Það er hærri upp­hæð í krónum talið en á sama tíma­bili í fyrra, þegar heim­ilin greiddu sam­tals tæp­lega 2,4 millj­arða króna af skatt­frjálsum sér­eign­ar­sparn­aði inn á lánin sín. 

Frá því að opnað var fyrir þessa leið hús­næð­is­stuðn­ings í nóv­em­ber 2014 hafa alls 155 millj­arðar króna ratað inn á höf­uð­stól lána þeirra sem hafa getað nýtt sér hann. Um er að ræða hús­næð­is­stuðn­ing sem gagn­ast fyrst …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þetta er eins og með Leiðréttinguna frægu, sem SDG beitti sér fyrir, og átti að vera refsing á hrægamma, sem SDG var með á heilanum á þeim tíma. Hún fór að mestu til fólks, sem þurfti ekki mikið á ,,leiðréttingu" að halda. Það segir sig sjálft, að þeir sem mest eiga hafa mest að sækja, þegar veittar eru ívilnanir af þessu tagi.
    1
  • Sigurdur Einarsson skrifaði
    Dæmigert siðleysi siðleysingja.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár