Er menntun metin til launa á Íslandi?

Gildi mennt­unar er til umfjöll­unar í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar.

„Reglu­lega heyr­ast áhyggju­raddir þess efnis að menntun hér á landi sé ekki metin til launa í fjöl­mörgum starfs­greinum. Sú gagn­rýni virð­ist eiga nokkuð til síns máls, en tekju­á­vinn­ingur háskóla­náms á Ísland er með því minnsta sem þekk­ist í heim­inum.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri grein Jónasar Atla Gunn­ars­sonar, hag­fræð­ings, í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, sem kom til áskrif­enda 23. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Í grein­inni fjallar hann um launa­legan ávinn­ing mennt­unar á Íslandi og í öðrum löndum, og segir meðal ann­ars að það sé ekki endi­lega auð­velt að auka virðið. „Þessi litli launa­munur háskóla­mennt­aðra miðað við aðra á Íslandi hefur ýmsar nei­kvæðar afleið­ingar þar sem hann dregur úr virði mennt­unar og er tákn um óhag­kvæmni í mennta­kerf­inu. Hins vegar er ekki auð­velt að breyta því, þar sem til­raunir til þess að auka ávinn­ing háskóla­mennt­unar gætu haft í för með sér önnur sam­fé­lags­leg vanda­mál. Háskóla­prem­ían Svokölluð háskóla­premía (e. college prem­ium) er víða notuð meðal fræði­manna og ann­ara grein­ing­ar­að­ila til þess að meta ávinn­ing háskóla­náms. Premían er pró­sentu­tala og fundin með því að bera saman tekjur háskóla­mennt­aðra í hlut­falli við tekjur ann­ara yfir lífs­tíð­ina, hvort sem þær eru í formi launa eða fjár­magnstekna. Þessi mæli­kvarði nýtur ágætra vin­sælda innan hag­fræð­innar þar sem líta má á hann sem fram­tíð­ararð af þeirri fjár­fest­ingu sem háskóla­námið er. Hærri launa­á­vinn­ingur háskóla­náms eykur þannig virði náms­ins og sömu­leiðis vel­ferð þess sem stundar það,“ segir Jónas Atli í grein sinni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár