Enn beðið eftir tillögum um breytingar á kvótaþaki

Skil­grein­ing á tengdum aðilum í sjáv­ar­út­vegi eru í engu sam­ræmi við slíkar skil­grein­ingar í fjár­mála­geir­anum, sem skerpt var veru­lega á í kjöl­far banka­hruns­ins.

Verk­efna­stjórn um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni tók það sér­stak­lega fram í bréfi sem hún sendi Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, þann 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn að hún sé enn ekki búin að taka afstöðu til mögu­lega breyt­inga á kvóta­þaki né kröfu um að hlut­fall eignar í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum til að þau telj­ist tengd verði lækkað. „Verk­efna­stjórnin áformar að taka þessi atriði til skoð­unar og fjalla um í loka­skýrslu sinni.“ Kjarninn fékk bréfið afhent hjá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu.

Loka­skýrslan á að liggja fyrir í mars. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru deilur innan verk­efna­stjórn­ar­innar um hvort lækka eigi kvóta­þakið úr tólf pró­sentum í lægri pró­sentu og lítið hefur verið rætt á vett­vangi hans um hvert hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðilum, sem í dag er 50 pró­sent, ætti að vera.

Til­lög­urnar sem kynntar voru í lok síð­ustu viku eru því ekki þær til­lögur sem margir innan sjáv­a­út­vegs­ins og stjórn­mál­anna töldu að rík­is­stjórnin hefði boðað í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins.

Boðuðu tillögur um breytt kvótaþak og tengda aðila

Þann 19. nóv­em­ber 2019 fund­aði rík­is­stjórn Íslands um „að­gerðir sínar til að auka traust á íslensku atvinnu­líf­i“. Það var gert til að bregð­ast við sívax­andi gagn­rýni vegna við­bragðs­leysis við opin­berum Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera um mál­efni Samherja, sem sýndu að fyr­ir­tækið liggi undur rök­studdum grun um að hafa greitt mútur til að fá aðgang að kvóta í Namibíu. Í opin­ber­un­inni voru líka settar fram grun­semdir um stór­fellt pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu í starf­semi þessa stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis lands­ins.

Þorri þeirra aðgerða sem rík­is­stjórnin boð­aði hafði áður komið fram og voru því ekki nýjar af nál­inn­i.

Dag­inn eft­ir, 20. nóv­em­ber, skrif­aði Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, grein í Morg­un­blaðið. Þar sagði að í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem birt var í jan­úar 2019, hafi komið fram að Fiski­stofa kanni ekki með nægj­an­lega tryggum hætti hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum sé í sam­ræmi við það hámark sem er skil­greint í lögum um stjórn fisk­veiða. Því þyrfti að end­ur­skoða 13. og 14. greinar lag­anna svo reglur um hámarks­afla­hlut­deild verði skýr­ari. Í þeirri fyrr­nefndu er kveðið á um að tengdir aðilar megi ekki halda á meira en 12 pró­sent af úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta og farið yfir það hvaða aðilar telj­ist tengdir. Kristján Þór sagði að hann myndi fela verk­efn­is­stjórn, sem hann hafði skipað í mars 2019 og átti að koma með til­lögur um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni, að hún myndi skila til­lögum „þar að lút­andi fyrir 1. jan­úar nk. Þá er að vænta til­lagna frá nefnd­inni á næstu vikum um bætt eft­ir­lit með fisk­veiðum og með vigtun sjáv­ar­afla.“

Enginn vafi var, að mati við­mæl­enda Kjarnans úr sjáv­ar­út­vegi og stjórn­málum, að verið væri að boða til­lögur um breyt­ingar á kvóta­þaki, á skil­grein­ingu á því hvaða aðilar telj­ist tengdir og hvernig eft­ir­liti með þessum þáttum, sem hafði verið ekk­ert, yrði háttað í fram­tíð­inni. Ráðu­neytið hafnar því hins vegar og segir að til­lög­urnar séu nákvæm­lega þær sem boð­aðar hafi verið.

Endurskoðun ákvæðis um hámarksaflahlutdeild

Kjarninn spurð­ist fyrir um málið þegar tíma­frest­ur­inn sem Kristján Þór og rík­is­stjórnin hafði sett sér var liðin. Í svörum sem bár­ust í síð­ustu viku sagði: „Starfs­hóp­ur­inn hefur skilað til­lögum um end­ur­skoðun ákvæða laga um stjórn fisk­veiða um hámarks­afla­hlut­deild sem kynnt verður á næstu dögum. Hópurinn hefur ekki skilað heild­ar­end­ur­skoð­un­inni, þar sem óskað var eftir því að hámarks­afla­hlut­deildin og tengda aðila yrði sett í for­gang.“

Daginn eftir að þessi svör bár­ust var send út frétta­til­kynn­ing frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu um til­lög­urnar. Í henni var greint frá fimm til­lögum um breytta skil­grein­ingu á tengdum aðilum. Í þeim var hvorki fjallað um breyt­ingar á kvóta­þaki né breyt­ingar á því hvað aðilar þyrftu að eiga í hvorum öðrum til að telj­ast tengdir, en sam­kvæmt gild­andi lögum eru þau mörk 50 pró­sent.

Því voru til­lög­urnar hvorki í sam­ræmi við það sem Kristján Þór boð­aði í grein sinni í Morg­un­blað­inu 20. nóv­em­ber né það sem ráðu­neyti hans hafði sagt að til­lög­urnar snér­ust um í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem barst 9. jan­úar.

Kristján Þór sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í kjöl­far þess að til­lög­urnar voru birtar að rekja mætti til­raunir starfs­manna Fiski­stofu aftur um rúman ára­tug til að skil­greina hug­tökin „tengdir aðilar“ og „raun­veru­leg yfir­ráð“ í lögum um stjórn fisk­veiða. „Það sjá allir að slík staða er óvið­un­andi. Þær til­lögur sem nú liggja fyrir eru til þess fallnar að skýra það hvað felst í þessum hug­tökum en jafn­framt stuðla að skil­virkara eft­ir­liti með reglum um hámarks­afla­hlut­deild. Það er um leið mik­ill styrkur í því að starfs­hóp­ur­inn sem ég skip­aði í mars sl. nái sam­stöðu um þetta flókna mál og gefur vonir um að þessar til­lögur geti orðið grunnur að því að færa það til betri vegar.“

Í verk­efna­stjórn­inni sitja Sig­urður Þórð­ar­son, sem er for­mað­ur, Bryn­hildur Bene­dikts­dótt­ir, sér­fræð­ingur á skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eldis í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri Í Ölfusi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum, Hulda Árna­dótt­ir, lög­maður og Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, alþing­is­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­innar.

Á meðal þeirra sem sitja í verkefnastjórninni er Elliði Vignisson, sveitarstjóri í Ölfusi. Mynd: Skjáskot
Á meðal þeirra sem sitja í verk­efna­stjórn­inni er Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri í Ölfusi. Mynd: Skjáskot

Tillögur verk­efna­stjórn­ar­innar eru dag­settar 30. des­em­ber 2019 og því átti það að liggja alveg kýr­skýrt fyrir hvað í þeim fólst, og hvað ekki. Í bréfi sem for­maður hennar, Sigurður Þórð­ar­son, sendi Krist­jáni Þór vegna til­lögu­skil­anna segir enda: „Verk­efna­stjórnin vill taka fram, að í til­lögum sem hér fylgja með er hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðilum. Verk­efna­stjórnin áformar að taka þessi atriði til skoð­unar og fjalla um í loka­skýrslu sinni.“

Deilur innan hópsins um kvótaþak

Það er þó ekki þannig að full sam­staða sé innan verk­efna­stjórn­ar­innar um öll þau atriði sem henni hefur verið falið að fara yfir. Heim­ildir Kjarnans herma að lítið sem ekk­ert hafi verið form­lega rætt um hvert hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðilum eigi að vera vett­vangi verk­efna­stjórn­ar­innar til þessa, en hún hefur starfað frá því í mars 2019. Þó er til­tekið í til­lögu­skjal­inu að 50 pró­sent markið sé „mjög hátt“ og bent á að á fjár­mála­mark­aði sé það til að mynda 25 pró­sent og hafi verið að lækka.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru deilur á milli þeirra sem sitja í stjórn­inni um hvort lækka eigi kvóta­þakið og nær öruggt að ekki muni nást full sam­staða á meðal þeirra sem í henni sitja um nið­ur­stöðu í þeim málum. Stefnt er að því að þær til­lögur, þ.e. til­lög­urnar sem Kristján Þór boð­aði að yrðu settar í flýti­með­ferð, muni liggja fyrir í mars næst­kom­andi.

Þess í stað snér­ust til­lög­urnar sem skilað var inn um skil­grein­ingar á tengdum aðilum. Á meðal þess sem skerpt verður á, verði til­lög­urnar inn­leiddar, er að hjón, sam­búð­ar­fólk og börn þeirra verði skil­greind sem tengdir aðilar. Þannig hefur það ekki verið hingað til. Athygli vakti að sú til­laga náði ekki yfir systkin, en dæmi eru um mikil kross­eign­ar­tengsl milli slíkra í stórum íslenskum sjáv­ar­ú­vegs­fyr­ir­tækjum, t.d. hjá Brim og tengdum félögum. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var ákveðið að styðj­ast við for­dæmi úr lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki, en þeim lögum var breytt til að skerpa veru­lega á skil­grein­ingu um hvað teld­ust tengdir aðilar sum­arið 2010, fyrir rúmum ára­tug síðan. Á þeim tíma þótti ekki nauð­syn­legt að ráð­ast í sam­bæri­legar breyt­ingar á lögum um stjórn fisk­veiða.

Skerpt á stjórnunarlegum tengslum

Önnur breyt­ing sem verður nú í fyrsta sinn inn­leidd í lagaum­hverfi sjáv­ar­út­vegs er að ákveðin „stjórn­un­ar­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­stæða“. Í skýr­ingum verk­efna­stjórn­ar­innar vegna þessa segir að þarna sé átt við tengsl milli lyk­il­starfs­manna, stjórn­ar­manna og fram­kvæmda­stjóra sem talin eru gefa vís­bend­ingu um tengsl milli aðila. „Hér er þó farin sú leið að slá því ekki föstu að slík tengsl leiði til þess að félög telj­ist tengdir aðilar í skiln­ingi lag­anna, heldur lagt til grund­vallar að slík tengsl geri það að verkum að lík­legra sé en ella að tengsl séu á milli félag­anna nema sýnt sé fram á hið gagn­stæða.“

Þarna er verið að bregð­ast við raun­veru­legum aðstæðum. Þekktasta og umdeildasta dæmið teng­ist Samherja og Síld­ar­vinnsl­unni. Eigendur þess fyrr­nefnda eiga, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni og eru þar með eins lítið undir meiri­hluta­hlut­fall­inu og hægt er að vera. Þor­steinn Már Bald­vins­son var auk þess for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar árum saman, þangað til að hann sagði af sér báðum störfum, að minnsta kosti tíma­bundið, eftir að Sam­herj­a­málið kom upp í fyrra­haust. For­svars­menn Samherja og Síld­ar­vinnsl­unnar hafa hins vegar ætið svarið af sér að um tengda aðila væri að ræða.

Fiski­stofa fram­kvæmdi meira að segja frum­kvæð­is­rann­sókn á Samherja, Síld­ar­vinnsl­unni og Gjögur, sem er næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar með 34,2 pró­sent eign­ar­hlut, á árunum 2009 og 2010. Gjögur, sem er meðal ann­ars í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar, sitj­andi for­stjóra Samherja, og systk­ina hans, heldur einnig á 1,05 pró­sent alls kvóta um þessar mundir. Björgólfur er auk þess í stjórn Gjögurs.

Sú rann­sókn skil­aði þeirri nið­ur­stöðu að engin rök væru fyrir því að Samherji og Gjögur færu með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

Í frétt sem birt­ist á vef Síld­ar­vinnsl­unnar árið 2013, vegna sam­bæri­legrar umræðu, sagði að um vill­andi full­yrð­ingar um tengsl Síld­ar­vinnsl­unnar og Samherja væri að ræða „þar sem við­kom­andi aðilar hafa vís­vit­andi reynt að gera eign­ar­hald á Síld­ar­vinnsl­unni hf. tor­tryggi­legt.“

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að þegar Samherji kynnti sam­stæðu sína erlendis þá var Síld­ar­vinnslan kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Á Íslandi sögðu stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna því að þau væru ótengd. Erlendis voru þau kynnt sem hluti af sömu sam­stæð­unni.

Eru saman langt yfir kvótaþaki

Ástæðan er sú að ef Samherji og Síld­ar­vinnslan væru flokk­aðir sem tengdir aðilar væru þeir komnir langt yfir það 12 pró­sent kvóta­há­mark sem eitt íslenskt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, eða sam­stæða, má halda á.

Í sept­em­ber 2019 var Sam­herji með 7,1 pró­sent kvót­ans. Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar, sem er í 100 pró­sent eigu Samherja, heldur svo á 1,3 pró­sent kvót­ans og Sæból fjár­fest­inga­fé­lag heldur á 0,64 pró­sent hans. Síld­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­sent allra afla­heim­ilda og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Berg­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­deild þess­ara aðila er því rúm­lega 16,6 pró­sent, eða langt yfir lög­bundnu hámarki. Sama gæti gilt um aðra hópa sem eru ráð­andi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Ef skil­grein­ingum á tengdum aðilum, lækkun á kröfu um meiri­hluta­eign til að telj­ast tengdir aðilar og breyttar reglur um hámarks­kvóta sem hver tengdur hópar má halda á þá gæti það meðal ann­ars haft áhrif á Guðmund Krist­jáns­son, stærsta eig­anda Brim, og aðila tengda honum, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Vísi/Þorbjörn í Grinda­vík. Það ræðst hins vegar á því hversu miklar breyt­ing­arnar yrðu.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja og náin vinur Þor­steins Más. Hann hefur sagt sig frá ákveðnum ákvörð­unum sem snúa að Samherja vegna mögu­legs van­hæfis en ekk­ert bendir til þess, enn sem komið er, að hann ætli að eft­ir­láta öðrum að taka ákvarð­anir um mögu­lega breyt­ingu á kvóta­þaki eða skil­grein­ingu á tengdum aðilum. Þvert á móti kynnti hann skil­grein­ing­ar­til­lög­urnar fimm, sem verk­efna­stjórnin skil­aði inn fyrir ára­mót, fyrir rík­is­stjórn­ar­fund á föstu­dag. Í til­kynn­ingu var haft eftir honum að hann von­að­ist til þess að til­lög­urnar myndu „stuðla að skil­virkara eft­ir­liti með reglum um hámarks­afla­hlut­deild.“

Í til­lög­unum sem kynntar voru á föstu­dag var einnig lagt til að skil­greint verði hvað felst í raun­veru­legum yfir­ráðum og að aðilar sem ráða meira en sex pró­sent af afla­hlut­deild eða 2,5 pró­sent af krókafla­hlut­deild skulu til­kynna til Fiski­stofu áætl­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­deild eða kaup á hlut­deild og koma kaupin ekki til fram­kvæmda nema sam­þykki Fiski­stofu liggi fyrir. Auk þess mun Fiski­stofa fá auknar heim­ildir til að afla gagna ef til­lög­urnar verða að lögum.

*Frétta­skýr­ing­unni var breytt lít­il­lega klukkan 13:30 eftir athuga­semd frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu við þá fram­setn­ingu að aðrar til­lögur en boð­aðar hefðu verið hefðu verið lagðar fram. Tekið var til­lit til afstöðu ráðu­neyt­is­ins og skerpt á orða­lagi, þótt að við­mæl­endur Kjarnans hafi allir haft aðrar vænt­ingar til inni­halds til­lagn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár