Konum fjölgar ekki í stjórnunarstöðum á Íslandi

Hlutfall kvenna í stjórnum og fram­kvæmda­stjóra­stöðum á Íslandi helst nán­ast óbreytt milli ára. Langt er í að kynja­kvóta sé náð. Eingöngu í félaga­sam­tökum og annarri þjón­ustu­starf­semi eru konur í meiri­hluta stjórn­enda.

Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi stendur í stað milli ára, sam­kvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Konur eru 25,9 pró­sent stjórn­ar­manna í fyr­ir­tækjum á Íslandi. Frá árinu 1999 hefur hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja hækkað úr 21,3 pró­sentum í 25,9 pró­sent.

Þegar litið er til fyr­ir­tækja með 50 eða fleiri starfs­menn voru konur 32,3 pró­sent stjórn­ar­manna í lok síð­asta árs.

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja tóku að fullu gildi hér á landi í sept­em­ber 2013 og sam­kvæmt þeim ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­menn að tryggja að hlut­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­sentum. Árið eftir það náði hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja af þess­ari stærð hámarki, fór upp í 33,2 pró­sent, en hefur síðan farið lækk­andi aftur.

Konum fjölg­aði lít­il­lega í stöðum fram­kvæmda­stjóra í fyrra, en hlut­fall þeirra fór úr 21,9 pró­senti í 22,1 pró­sent. Samkvæmt því voru 2.932 konur í stöðu fram­kvæmda­stjóra hér á landi í lok árs­ins 2016. Hag­stofan greinir töl­urnar einnig eftir greinum, og í aðeins einni þeirra eru konur í meiri­hluta fram­kvæmda­stjóra. Það er í félaga­sam­tök­unum og annarri þjón­ustu­starf­semi, þar sem konur eru 64 pró­sent fram­kvæmda­stjóra. Í fræðslu­starf­semi eru konur 45,6 pró­sent fram­kvæmda­stjóra og 39,6 pró­sent í heil­brigðis- og félags­þjón­ustu.

Í lok síð­asta árs voru konur 23,9 pró­sent stjórn­ar­for­manna lands­ins. Það gera 3.691 konu sem gegndi slíku starfi. Aftur eru konur ein­göngu í meiri­hluta stjórn­ar­for­mennsku­starfa í félaga­sam­tökum og annarri þjón­ustu­starf­semi, þar sem þær eru 58 pró­sent stjórn­ar­for­manna. Sömu sögu er svo að segja af stjórn­ar­mennsku kvenna, þær eru í meiri­hluta stjórna félaga­sam­taka og ann­arrar þjón­ustu­starf­semi, en hvergi ann­ars staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár