Stuðningslánin verði 40 milljónir að hámarki í stað 6 milljóna og nái til mun fleiri fyrirtækja

Mun fleiri fyr­ir­tæki munu eiga kost á stuðn­ings­lánum með rík­is­á­byrgð og hámarks­fjár­hæð lán­anna verður hækkuð úr 6 millj­ónum upp í 40 millj­ónir, sam­kvæmt breyt­inga­til­lögum meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar.

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis leggur til að hámarks­fjár­hæð stuðn­ings­lána, sem lítil fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir drjúgu tekju­falli geta sótt um, verði 40 millj­ónir í stað þeirra 6 millj­óna sem upp­haf­lega var lagt upp með af hálfu stjórn­valda.

Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans um frum­varpið, þar sem fjallað er um stuðn­ings­lánin og einnig lok­un­ar­styrk­ina sem fyr­ir­tækjum sem hafa þurft að loka vegna sótt­varna­ráð­staf­ana munu standa til boða.

Samkvæmt til­lögum meiri­hluta nefnd­ar­innar verður full rík­is­á­byrgð á stuðn­ings­lánum upp að 10 millj­ónum króna, en 85 pró­senta rík­is­á­byrgð á þeirri fjár­hæð sem fer umfram það mark.

Nefnd­ar­meiri­hlut­inn leggur einnig til að stuðn­ings­lánin standi mun fleiri fyr­ir­tækjum til boða en áður var áætlað, en lagt er til að fyr­ir­tæki með allt að 1.200 millj­óna króna árlega veltu geti sótt um þessi lán, í stað þess að hámarks­veltan verði 500 millj­ónir.

Áætlað umfang ábyrgðar rík­is­sjóðs á stuðn­ings­lánum, nái breyt­ing­ar­til­lögur meiri­hluta nefnd­ar­innar fram að ganga, er um 40 millj­arðar króna. Áður hafði verið gert ráð fyrir að ábyrgðin næmi um 28 millj­örðum króna.

Bönkum ekki skylt að lána meira en 10 milljónir króna

Lána­stofn­unum verður ekki skylt að veita lán sem eru hærri en 10 millj­ónir króna, jafn­vel þó að fyr­ir­tæki upp­fylli skil­yrði fyrir því að fá lánin. Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að um lán hærri en 10 millj­ónir gildi „um margt önnur sjón­ar­mið“, þar sem lána­stofn­unin beri hluta áhætt­unnar.[links]

Rík­is­end­ur­skoðun benti á í umsögn sinni um frum­varpið að mögu­lega væri verið að fela lána­stofnun að fara með til­tekið opin­bert vald og meiri­hluti nefnd­ar­innar telur að veiga­mikil rök séu fyrir því að ákvarð­anir um veit­ingu lána með fullri rík­is­á­byrgð telj­ist stjórn­valds­á­kvarð­anir.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar leggur því til að ákvæði verði sett inn í lögin þess efnis að ákvæði stjórn­sýslu­laga gildi ekki um stuðn­ings­lánin og sömu­leiðis að bönk­unum verði ekki falið mat á því hvort rekstr­ar­að­ilar eigi rétt á stuðn­ings­láni eða ekki.

„Meiri hlut­inn telur mik­il­vægt að lána­stofn­unum verði kleift að taka ákvörðun um lán­veit­ingar þar sem þær bera hluta áhætt­unnar á eigin for­sendum og án þess að vera bundnar af þeim máls­með­ferðar- og efn­is­reglum sem stjórn­sýslu­lög mæla fyrir um,“ segir í áliti nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár