Borgin vill sjá útfærslu umfangsminni gatnamóta við mynni Sæbrautarstokks

Allt að sex akreinar verða á hluta Klepps­mýr­ar­vegar sam­kvæmt einu til­lög­unni að nýjum mis­lægum gatna­mótum við mynni Sæbraut­ar­stokks sem lögð var fram í mats­á­ætlun. Reykja­vík­ur­borg vill að umfangs­minni gatna­mót verði skoðuð til sam­an­burðar.

Gatnamótin sem um ræðir eru við norðurenda stokksins og yrðu mislæg, en þó í plani við umhverfið í kring.
Gatna­mótin sem um ræðir eru við norð­ur­enda stokks­ins og yrðu mis­læg, en þó í plani við umhverfið í kring. Mynd: Úr matsáætlun vegna Sæbrautarstokks

Skoða þarf útfærslu umfangs­minni gatna­móta Sæbrautar og Skeið­ar­vogs/Klepps­mýr­ar­vegs til sam­an­burðar við þá útfærslu sem sett var fram í mats­á­ætlun vegna fyr­ir­hug­aðs Sæbraut­ar­sokks, að mati emb­ættis skipu­lags­full­trúa Reykja­vík­ur­borgar, sem hefur skilað Skipu­lags­stofnun umsögn um mats­á­ætl­un­ina.

Í umsögn skipu­lags­full­trúa segir að mik­il­vægt sé að vel tak­ist til með fram­kvæmd Sæbraut­ar­stokks­ins, en hnykkt er á því að sam­kvæmt aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar sé mark­miðið með því að færa akvegi ofan í jörð­ina það að bæta umhverf­is­gæði aðliggj­andi byggðar og tengja betur saman hverfi sem eru aðskilin með umferð­ar­þungum stofn­brautum – ekki að auka þjón­ustu­stig fyrir bíla­um­ferð.

„Sá val­kostur um útfærslu, sér­stak­lega gatna­mót Skeið­ar­vogs og Sæbrautar, sem skil­greindur er í mats­á­ætlun virð­ist ekki falla vel að þessum mark­miðum og mik­il­vægt er að mótuð verði önnur útfærsla sem verður til sam­an­burðar í umhverf­is­mat­inu, þar sem gert er ráð fyrir umfangs­minni gatna­mótum,“ segir í umsögn skipu­lags­full­trúa.

Einnig er vikið að því að mik­il­vægt sé að „skoða betur val­kosti um stokk­inn, þ.e. umfang hans og breidd (og mögu­lega hæða­setn­ingu), út frá mis­mun­andi for­sendum, einkum um hönn­un­ar­hraða og umferð­ar­magn“.

Sex akreina Kleppsmýrarvegur?

Í þeirri útfærslu gatna­mót­anna sem sett var fram í mats­á­ætl­un­inni er gert ráð fyrir ansi mörgum akreinum undir bíla­um­ferð, eins og sjá má þegar rýnt er í skýr­ing­ar­mynd­ina hér að neðan.

Stokk­ur­inn sjálfur, á Sæbraut­inni, verður með tvær akreinar í hvora átt. Þegar komið er upp úr stokknum til norð­urs við Klepps­mýr­ar­veg virð­ist gert ráð fyrir því að veg­ur­inn tvístrist í þrjár akreinar, tvær sem verði beygju­akreinar niður Klepps­mýr­ar­veg og eina beygju­akrein til vinstri þvert yfir gatna­mótin og inn á Skeið­ar­vog.

[adspot]

Gert er ráð fyrir því að Klepps­mýr­ar­veg­ur­inn verði allt að fjórar akreinar í átt að Skeið­ar­vogi, en ein akrein­anna tvístrist niður á Sæbraut til vest­urs, ein fari áfram inn Skeið­ar­vog og tvær beygju­akreinar verði af Klepps­mýr­ar­vegi ofan í Sæbraut­ar­stokk­inn til aust­urs.[links]

Þar sem mest lætur yrði Klepps­mýr­ar­vegur því með sex akreinar í grennd við gatna­mótin. Ein­stak­lingur sem myndi vilja fara gang­andi eða hjólandi til norð­urs með­fram Sæbraut­inni yfir Klepps­mýr­ar­veg þyrfti þannig að byrja á því að fara yfir tvö­falda beygju­rein, svo tvö­falda akrein umferð undir umferð til aust­urs, þá þre­falda akrein fyrir umferð til vest­urs af Klepps­mýr­ar­vegi og svo að lokum ein­falda beygju­rein af Klepps­mýr­ar­veg­inum niður á Sæbraut­ina. Sjö akreinar í allt.

Gert sé ráð fyrir of mikilli umferðaraukningu þvert á markmið um breyttar ferðavenjur

Í umsögn­inni frá emb­ætti skipu­lags­full­trúa er einnig sett fram gagn­rýni á þær for­sendur um umferð­ar­aukn­ingu sem stuðst er við í mats­á­ætl­un­inni, sem Verkís var falið að vinna fyrir Vega­gerð­ina og Reykja­vík­ur­borg.

Í mats­á­ætl­un­inni segir að í frum­drögum hönn­unar hafi verið miðað við umferð 50 þús­und öku­tækja á sól­ar­hring, og það sagt í sam­ræmi við for­sendur aðal­skipu­lags Reykja­víkur 2010-2030 um tveggja pró­senta aukn­ingu umferðar á hverju ári næstu 20 árin.

Í umsögn skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar er bent á að þessar for­sendur séu reyndar ekki til staðar, hvorki í aðal­skipu­lagi borg­ar­innar til 2030 né því nýja sem gildir til 2040, og því sé ekki skýrt hvaða for­sendur séu þarna að baki. Bent er að umferð­ar­aukn­ing af þess­ari stærð­argráðu væri umfram bæði íbúa­fjölgun og fjölgun starfa.

„Það er mjög umdeil­an­legt að gera ráð fyrir slíku, ekki síst í ljósi þess að öll opin­ber og sam­þykkt mark­mið snúa að því að draga úr bíl­um­ferð, í það minnsta pr. íbúa og að breyta ferða­venjum til fram­tíðar litið,“ segir í umsögn skipu­lags­full­trúa.

Bent er á að slík mark­mið megi finna í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, aðal­skipu­lagi Reykja­víkur og stefnu­skjölum rík­is­valds­ins í lofts­lags­málum, auk þess sem þau megi lesa úr sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Leiðrétt: Blaða­maður mis­rit­aði Skeið­ar­vog sem Sogaveg fyrir mis­gán­ing á nokkrum stöðum í grein­inni, í fyrstu útgáfu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár