Andri Snær og Bryndís tilkynna á næstu dögum

Andri Snær Magnason rit­höf­undur og Bryndís Hlöðvers­dóttir rík­is­sátta­semj­ari eru bæði á loka­metr­unum varð­andi ákvörð­un­ar­töku um for­seta­fram­boð. Bakland Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, vinnur nú að mæl­ingum á mögu­leikum hans til fram­boðs.

Andri Snær Magnason og Bryndís Hlöðversdóttir ætla að tilkynna ákvörðun sína á næstu dögum. Fjölmargir aðrir þekktir Íslendingar liggja enn undir feldi.
Andri Snær Magnason og Bryndís Hlöðvers­dóttir ætla að til­kynna ákvörðun sína á næstu dögum. Fjöl­margir aðrir þekktir Íslend­ingar liggja enn undir feldi.

Andri Snær Magnason rit­höf­undur ætlar að til­kynna ákvörðun sína um for­seta­fram­boð í næstu viku. Andri Snær hefur verið orð­aður við fram­boð í marga mán­uði en hefur verið að hugsa málið. „Það er fullt af öfl­ugu fólki sem vill vera með mér í liði og það kemur eitt­hvað í ljós eftir helgi,” segir Andri Snær í sam­tali við Kjarnann.

Sækir um launalaust leyfi fari hún fram

Bryndís Hlöðvers­dóttir, rík­is­sátta­semj­ari og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ætlar að til­kynna ákvörðun sína á næstu dögum. 

„Ég hef ekki gefið mér tóm vegna anna í öðru til að ígrunda þessa ákvörðun. Það eru margar stórar spurn­ingar sem maður þarf að svara áður en hún liggur fyrir, meðal ann­ars hvort ég telji mig þess verð­uga að sinna þessu mik­il­væga emb­ætti. Eins hvort ég eigi það brýnt erindi við þjóð­ina í að ég sé til­búin í þennan leið­angur, meðal ann­ars með því að hverfa úr því krefj­andi og skemmti­lega starfi sem ég sinni í dag,” segir hún.

Bryndís varð rík­is­sátta­semj­ari fyrir tíu mán­uðum, í lok maí 2015. Spurð hvort hún ætli að segja starfi sínu lausu fari hún í fram­boð seg­ist hún ætla að óska eftir launa­lausu leyfi á meðan á kosn­inga­bar­áttu stendur, verði ákvörð­unin sú.

Fordæmi eru fyrir slíku, en Guð­laugur Þor­valds­son fór í for­seta­fram­boð árið 1980 eftir fjóra mán­uði í starfi sem rík­is­sátta­semj­ari. Hann tók sér leyfi í kosn­inga­bar­átt­unni og hélt svo áfram starfi sínu sem rík­is­sátta­semj­ari 15 ár eftir að henni lauk.

Davíðar hugsa málin

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans vinnur bak­land Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, nú að því að láta mæla fylgi hans við mögu­legt for­seta­fram­boð. Davíð lét líka mæla fylgi sitt fyrir kosn­ing­arnar 1996, þegar Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig fyrst fram, en fór ekki á móti honum.

Nafni hans, Davíð Þór Jónsson, prestur, grínisti og rit­höf­undur, seg­ist í sam­tali við Mbl.is í dag að lík­urnar séu að aukast að hann bjóði sig fram. Hann ætlar að til­kynna ákvörðun sína á næstu vikum.

Samfylkingarsúpa

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hefur ekki viljað tjá sig um um fram­boð sitt við fjöl­miðla, en hann skrif­aði grein í Frétta­blaðið á dög­unum þar sem hann fór ítar­lega yfir hug­myndir sínar um for­seta­emb­ættið.

Það má telj­ast lík­legt að eitt­hvað verði að frétta þaðan á næst­unni, en leiða má líkur að því að hann bíði fregna frá Bryndísi, sem kemur úr Sam­fylk­ing­unni eins og hann og er bak­land þeirra svipað. Mikið ákall hefur verið eftir konu í for­seta­emb­ættið og eftir að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gaf út að hún ætl­aði ekki fram, hefur það ákall orðið áþreif­an­legra. Stefán Jón Hafstein, umdæm­is­stjóri Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar í Úganda og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur einnig verið sterk­lega orð­aður við fram­boð þó lítið hafi heyrst frá honum varð­andi það annað en almennar hug­leið­ingar um emb­ættið.

Fjöldi kvenna undir feldi

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, íhugar einnig fram­boð sem og Guðrún Nordal, for­stöðu­maður Árna­stofn­unar. Sigrún Stef­áns­dóttir, for­seti hug- og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans á Akureyri, er líka að íhuga fram­boð sem og Linda Pét­urs­dóttir, athafna­kona og fyrr­ver­andi feg­urð­ar­drottn­ing. 

Ekkert hefur heyrst frá Ólafi Jóhanni Ólafs­syni, rit­höf­undi og aðstoð­ar­for­stjóra Time Warner sam­steypunnar, varð­andi fram­boð, en hann hefur ítrekað verið orð­aður við emb­ættið og mælst hátt í skoð­ana­könn­unum.

Á annan tug fram­bjóð­enda hafa nú þegar komið fram og ætla sér að taka bar­átt­una um Bessa­staði. Kosn­ingar fara fram þann 25. júní næst­kom­andi og rennur fram­boðs­frestur út um miðjan maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár