Þjóðkirkjan auglýsir eftir samskiptastjóra

Þjóð­kirkjan og Biskup Íslands aug­lýsa nú eftir verk­efn­is­stjóra á sviði sam­skipta­mála. Tæplega þrjú þús­und sögðu sig úr kirkj­unni í fyrra.

Þjóð­kirkjan og Biskup Íslands aug­lýsa nú eftir verk­efn­is­stjóra á sviði sam­skipta­mála. Aug­lýs­ing­una má finna á vef­síð­unni storf.is.

[links]Þar kemur fram að verk­efn­is­stjór­inn beri ábyrgð á fram­kvæmd sam­skipta­stefnu þjóð­kirkj­unnar, mótun verk­ferla er verða upp­lýs­inga­miðlun bisk­ups­stofu og á vett­vangi stofn­ana kirkj­unnar svo og upp­bygg­ingu tengsla­nets. „Leitað er eftir ein­stak­lingi er býr yfir fram­úr­skar­andi sam­skipta­færni, ástríðu gagn­vart við­fangs­efn­inu, drif­krafti og ein­urð.“

Starfs­að­staða verk­efn­is­stjóra verður á bisk­ups­stofu en hann mun sjá um rit­stjórn vefja kirkj­unnar og ann­arra miðla bisk­ups­stofu, sam­skipti og þjón­ustu við fjöl­miðla, frétta­skrif, auk þess að sjá um sam­starf við starfs­fólk og leik­menn í kirkj­unni um efn­is­gerð og miðlun efnis.

Umsækj­endur skulu hafa háskóla­menntun sem nýt­ist í starfi eða yfir­grips­mikla reynslu af miðlun upp­lýs­inga. Menntun á sviði guð­fræði eða reynsla úr kirkju­starfi er tal­inn kostur.

Tæplega fjögur þúsund gengu úr Þjóðkirkjunni í fyrra

Síðustu ára­tugir hafa reynst kirkj­unni erf­iðir og mik­ill flótti verið frá henni, mikið til vegna hneyksl­is­mála sem henni hafa tengst.

Alls sögðu 2.477 sig úr þjóð­kirkj­unni á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2017. Á sama tíma­bili gengu 231 í hana. Því gengu 2.246 fleiri lands­menn úr þjóð­kirkj­unni en í hana á tíma­bil­inu. Þegar allt árið 2017 er skoðað kemur í ljós að 3.738 sögðu sig úr þjóð­kirkj­unni, þar af 60 pró­sent á síð­ustu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili gengu 719 manns í kirkj­una. Þegnum hennar fækk­aði því um 3.019 á síð­asta ári.

Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Í byrjun árs 2017 voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­­sent þjóð­­ar­innar væri í kirkj­unni.

Nú eru þeir 233.462 og fækk­aði, líkt og áður sagði, um 3.019 á síð­asta ári. Alls sögðu 3.738 manns sig úr kirkj­unni á árinu 2017.

Það er næst­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­anir um þöggun þjóð­kirkj­unnar yfir meintum kyn­ferð­is­glæpum Ólafs Skúla­son­ar, fyrr­ver­andi bisk­ups, voru settar fram. Þá fækk­aði um 4.242 í þjóð­kirkj­unni á einu ári.

Miðað við mann­fjölda­tölur í lok þriðja árs­fjórð­ungs síð­asta árs eru nú 69 pró­sent þjóð­ar­innar í þjóð­kirkj­unni.

Þeim íslensku rík­­­­­is­­­­­borg­­­­­urum sem kusu að standa utan þjóð­­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­­­ustu ald­­­­­ar­­­­­mót. Þeir eru nú yfir eitt hund­rað þús­und. Fjöldi þeirra hefur því rúm­­lega þre­fald­­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár