Smitum á Indlandi fjölgar ört

Stjórn­völd á Indlandi eru að hefj­ast handa við að aflétta umfangs­mesta útgöngu­banni sem sett var á í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Sjúkra­hús í Mumbai hafa vart undan við að sinna sýktum en felli­byl­ur­inn Nisarga herjar nú á nágrenni borg­ar­innar.

Fólk hefur flykkst á markaði víðsvegar um Indland eftir að útgöngubanni var aflétt.
Fólk hefur flykkst á mark­aði víðs­vegar um Indland eftir að útgöngu­banni var aflétt. Mynd: EPA

Aldrei hafa jafn­margir greinst smit­aðir af kór­óna­veirunni á einum degi á Indlandi líkt og í gær þegar tæp­lega 8500 greindust sýkt. Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times sem unnin er upp úr gögnum heil­brigð­is­yf­ir­valda. Greindum smitum í land­inu hefur fjölgað hratt und­an­farna daga og hafa þau verið um eða yfir átta þús­und á dag síð­ustu fimm daga.

Ástandið er verst í borg­inni Mumbai, þar hafa rúm­lega 40 þús­und greinst með veiruna. Sjúkra­hús í borg­inni hafa vart undan við að sinna sjúk­lingum og í frétt BBC segir að sums staðar hafi verið tveir til þrír sjúk­lingar um hvert sjúkra­rúm.

Ofan á kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn leggst svo felli­byl­ur­inn Nisarga sem skellur á í nágrenni Mumbai í dag. Tugir þús­unda hafa verið flutt úr ótraustum híbýlum og á annað hund­rað COVID-19 sjúk­linga hafa verið flutt af bráða­birgða­sjúkra­húsi sem var reist vegna far­ald­urs­ins. Felli­byl­ur­inn er sá fyrsti af þess­ari stærð­argráðu til að ná landi í Mumbai frá því á ofan­verðri nítj­ándu öld.

Umfangsmesta útgöngubann í heimi

Indland er að vakna á ný eftir rúm­lega tveggja mán­aða útgöngu­bann sem tók gildi 25. mars síð­ast­lið­inn. Samkvæmt frétt BBC var fjöldi smit­aðra 519 þegar útgöngu­bannið tók gildi og tala lát­inna þá alls tíu. Nú, rúmum tveimur mán­uðum síðar, er tala lát­inna rúm­lega 5.700 og fjöldi smita kom­inn yfir 200 þús­und, um helm­ingur þeirra er virk smit.

Útgöngu­bannið þar var það umfangs­mesta í heimi, en í land­inu býr rúm­lega 1,3 millj­arður manna. Nú hafa margir vinnu­stað­ir­verið opn­aðir á ný og víða eru mark­aðir og almenn­ings­garðar fullir af fólki. Í næstu viku munu svo bæna­hús, versl­un­ar­mið­stöðvar, veit­inga­staðir og hótel geta opnað dyr sínar á ný. Skólar verða enn lok­aðir og munu mögu­lega opna í júlí. Enn er í gildi útgöngu­bann um nætur, frá klukkan 21 til klukkan fimm á morgn­ana.

Efna­hags­horfur í land­inu hafa ekki verið eins slæmar í 30 ár. Útgöngu­bannið hafði áhrif á fyr­ir­tæki þvert á geira atvinnu­lífs­ins og stefndi meðal ann­ars fæðu­ör­yggi í hættu. Atvinnu­leysi hefur auk­ist mikið og millj­ónir hafa misst lífs­við­ur­væri sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár