Framsóknarflokkur kynnir frumvarp um verðtryggð húsnæðislán eftir helgi

For­sæt­is­ráð­herra segir að 40 ára jafn­greiðslu­lán muni brátt heyra sög­unni til, nái frum­varp Fram­sókn­ar­flokks­ins fram að ganga. Frum­varpið verður kynnt eftir helgi. Hann segir fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í könn­unum óásætt­an­legt.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætlar að kynna frum­varp um verð­tryggð hús­næð­is­lán eftir helgi. Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sagði á Hring­braut í morgun að frum­varpið sé unnið sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mál­anum. Hann vildi ekki svara hvort málið væri unnið í fullri sam­vinnu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Koma „myndarlega til móts við kaupendur á fyrstu fasteign“

Samkvæmt Sigurði Inga munu 40 ára jafn­greiðslu­lán til hús­næð­is­kaupa heyra sög­unni til verði frum­varpið sam­þykkt. Hvatar verði settir fram til þess að bjóða upp á óverð­tryggð lán og það verði á ein­hvern hátt sam­tvinnað við sér­eigna­sparnað fólks. Þá verði komið „mynd­ar­lega til móts við kaup­endur á fyrstu fast­eign.“ Spurður hvort um verði að ræða fram­lag úr rík­is­sjóði sagði Sigurður Ingi svo ekki vera. Þó verði um að ræða að stórar breyt­ingar á lána­formi sem bjóð­ast við íbúð­ar­kaup, en breyt­ing­arnar eigi þó ekki við um lán sem fyrir eru.

Sigurður Ingi sagði að fyrstu hug­myndir Fram­sókn­ar­flokks­ins um afnám verð­trygg­ingar hafi verið sam­tvinn­aðar við skulda­nið­ur­fell­ing­una, en sér­fræð­ingar höfðu sagt það of flókið. Því verði þessi leið farin, en hann vildi ekki fara nánar út í frum­varpið þar sem það verði kynnt í heild sinni eftir helgi.

Fer ekki fram gegn formanni sem nýtur stuðnings

Varðandi sam­skipti sín við for­mann flokks­ins, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, sagði Sigurður Ingi þau vera góð. Hann sagði að vissu­lega væri óvenju­leg staða uppi, að for­maður flokks­ins sé ekki í rík­is­stjórn, en í því gætu samt sem áður falist sókn­ar­færi í aðdrag­anda kosn­inga. Hann fór ekki nánar út í það.

Spurður út í slakt fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í skoð­ana­könn­unum sagði Sigurður Ingi það alltaf vera von­brigði þegar maður sé að gera eitt­hvað vel en fái það ekki metið. Hann vildi „njóta ávaxt­anna yfir því að hafa búið til svona góða stöðu.“ Fylgið sé óásætt­an­legt fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn miðað við sögu hans og afrek.

Sigurður Ingi sagð­ist ekki hafa önnur plön en að leiða lista flokks­ins í suð­ur­kjör­dæmi, en varð­andi hvort hann bjóði sig fram sem for­mann sagði Sigurður Ingi að Sig­mundur Davíð væri for­maður og að hann færi ekki gegn sitj­andi for­manni sem nyti stuðn­ings flokks­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár