Mynd: Páll Stefánsson

Lok, lok og læs

Vonsku­veður á Siglu­firði varð til þess að skíða­skálinn er nánast ónýtur eftir snjóflóð og rýma þurfti níu íbúðarhús við tvær götur. Undan­farið hefur verið meira og minna ófært en ljós­myndari Stundarinnar komst loks á áfanga­stað til að fanga andrúms­loftið í þessu 2.000 manna bæjar­félagi þar sem íbúar eru jafnvel inni­lokaðir dögum saman. Þeir kvarta ekki, veðrið var verra í fyrra.

„Er brostið aftur á,“ segir full­orðinn maður um leið og hann opnar dyrnar á Aðal­bakaríinu á Siglu­firði, hallar sér fram í norðan­bálið og hverfur út í sortann. „Þetta er orðið fínt, er orðinn ansi þreyttur á þessu óveðri, þetta er níundi dagurinn í röð,“ segir Hall­grímur Helgason rithöfundur, þar sem hann horfir á eftir manninum hverfa út í kófið með fangið fullt af ástar­pungum.  

Siglu­fjörður og Ólafs­fjörður eru tveir nyrstu bæir Trölla­skaga og mynda Fjalla­byggð, 2.000 manna samfélag þar sem veturnir eru vályndir. Stór­hríðir, skaf­renningur og snjó­flóðahætta gera það að verkum að vegirnir báðum megin frá lokast og íbúar byggðanna verða innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Síðastliðinn vetur var vegunum lokað í um fimmtíu daga, að sögn Elíasar Péturs­sonar, bæjar­stjóra Fjalla­byggðar. „Það er bara ein lausn, tvenn jarðgöng, annars vegar frá Siglu­firði yfir í Fljót, og hin frá Ólafs­firði suður til Dalvíkur. Atvinnu­lífið hér á svæðinu, sérstak­lega sjávar­útvegurinn, þarf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Óveður í Fjallabyggð

Mest lesið undanfarið ár