Kötturinn Larry óvæntasta stjarna Brexit

Miklar hrær­ingar hafa verið í breskum stjórn­málum eftir Brexit. Kött­ur­inn Larry er óvæntasta stjarna þeirra hrær­inga, en hann verður áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þrátt fyrir að skipt hafi verið um ráð­herra.

Kötturinn Larry er víðfrægur, enda vanur að ganga um fyrir utan heimili sitt í Downingstræti, þar sem fjölmiðlar eru mjög reglulegir gestir.
Kött­ur­inn Larry er víð­frægur, enda vanur að ganga um fyrir utan heim­ili sitt í Downingstræti, þar sem fjöl­miðlar eru mjög reglu­legir gestir. Mynd: EPA

Óvæntasta stjarna umbreyt­ing­anna í breskum stjórn­málum í síð­ustu viku var lík­lega kött­ur­inn Larry. Larry er heim­il­is­kött­ur­inn í Downing-stræti 10, þar sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hverju sinni heldur til. Mikið var fjallað um bless­aðan kött­inn og það hvort hann myndi flytja burt með David Cameron og fjöl­skyldu hans þegar þau yfir­gáfu svæðið um miðja viku. Fljótt var til­kynnt að svo yrði ekki, Larry er ekki eign Cameron fjöl­skyld­unnar heldur emb­ætt­is­manna og þurfti því ekki að flytja burt þótt Theresa May og eig­in­maður hennar Philip flyttu inn. Sem dæmi um frægð katt­ar­ins not­aði Cameron meira að segja tíma í síð­asta spurn­inga­tíma sínum sem for­sæt­is­ráð­herra til að ræða kött­inn.

Fenginn sem yfirmúsaveiðari

Kött­ur­inn hefur öðl­ast frægð frá því að hann kom í Downing-stræti árið 2011. Hann heldur reglu­lega til fyrir utan húsið við Downing-stræti, þar sem fjöl­miðlar eru mjög reglu­legir gestir, og hann hefur vakið þar athygli og glatt við­stadda. Eins og sjá má hér að neðan tók hann reglu­lega á móti og kvaddi með­limi rík­is­stjórn­ar­innar þegar þeir komu á rík­is­stjórn­ar­fundi að heim­ili hans.

Larry kom til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins árið 2011, sem fyrr segir, og var þá fjög­urra ára gam­all fyrrum villi­köttur. Hann var feng­inn þangað eftir að rottur sáust í og við húsið, meðal ann­ars í fréttum. Hann var í dýra­at­hvarf­inu Batt­er­sea Dogs & Cats Home og athvarfið mælti með honum vegna hæfi­leika hans við músa­veiðar.

Larry fékk opin­bera tit­il­inn Chief Mouser, eða yfir­maður músa­veiða, og um hann er fjallað sem slíkan á vef­síðu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar er hann sagður fyrsti kött­ur­inn í Downing-stræti 10 til þess að hljóta þennan titil form­lega.

Hins vegar er mjög löng hefð fyrir því að kettir sinni þessu hlut­verki fyrir rík­is­stjórn eða ráð­herra, enda músa- og rottu­gangur algengur í gömlum og oft lélegum húsum Bret­lands. Það er sagt að kettir hafi fylgt stjórn­völdum allt frá tímum Hinriks átt­unda. Opinber gögn frá árinu 1929 sýna að þá hafi verið gefið leyfi fyrir því að verja smárri upp­hæð í uppi­hald á ketti. Larry er hins vegar ekki á fjár­lögum, heldur hafa starfs­menn for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins borið ábyrgð á uppi­haldi hans. Hann fær hins vegar sendar gjafir og mat upp á nán­ast hvern dag eftir að hann öðl­að­ist frægð.

Löng saga músaveiðara

Þrír aðrir kettir munu hafa fengið opin­bera tit­il­inn yfir­maður músa­veiða í rík­is­stjórn­inni. Þeir hétu og heita Humphrey, Sybil og Freya. Humphrey var í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá 1989 til 1997 og starf­aði undir for­sæti Mar­grétar Thatcher, John Major og Tony Blair. Sagan segir að Cherie Blair hafi ekki kunnað að meta ketti og því hafi Humphrey verið settur á eft­ir­laun aðeins hálfu ári eftir að Blair-hjónin fluttu inn í Downing-stræti 10. Þess var meira að segja kraf­ist að stjórn­völd sönn­uðu að hann hefði ekki verið svæfður. Og þá var því einnig vísað á bug að Cherie væri illa við ketti.

Sybil var köttur Alistair Darling og fjöl­skyldu hans, og var fluttur í Downing-stræti 11 þegar Alistair Darling var fjár­mála­ráð­herra. Þegar Sybil kom í Downing-stræti árið 2006 hafði eng­inn köttur verið þar frá því að Blair-hjónin los­uðu sig við Humphrey. Sybil festi hins vegar aldrei rætur í London og flutti aftur til Skotlands árið 2009. Freya kom til Downing-strætis með næsta fjár­mála­ráð­herra, George Osborne, og fjöl­skyldu hans. Hún og Larry eld­uðu víst grátt silfur saman, enda að sinna sama starf­inu um tíma. Það voru sagðar fréttir af því árið 2012 að Larry hefði verið rek­inn sökum lélegrar frammi­stöðu, en svo var víst ekki. Freya flutti hins vegar burt árið 2014 og skildi Larry eftir.

Notaði síðasta spurningatímann til að sanna ást á Larry

Cameron mætti í síð­asta sinn í spurn­inga­tíma for­sæt­is­ráð­herra, sem for­sæt­is­ráð­herra, á mið­viku­dag­inn. Það var hans síð­asta verk áður en hann fór á fund drottn­ingar og sagði af sér. Í þessum síð­asta spurn­inga­tíma ákvað hann að tala um Larry. „Slúðrið er að ég elski ekki Larry. Það geri ég. Og ég hef mynd­ræna sönnun fyrir því,“ sagði hann við þingið og veif­aði mynd af sér að klappa kett­inum. Hann setti mynd­ina einnig á Twitter, eins og sjá má hér að ofan.

Hann sagði að því miður gæti hann ekki tekið Larry með sér. „Hann til­heyrir hús­inu, og starfs­fólkið elskar hann mjög mikið, rétt eins og ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár