Ráðuneytið rýnir í tillögur um bætt umhverfi fjölmiðla

Fyrsta yfir­ferð verður til­búin innan tveggja mán­aða, sam­kvæmt svari við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV.

Tillögur í skýrslu nefndar um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla eru nú til umfjöll­unar í mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Gert er ráð fyrir að fyrsta mat á aðgerðum geti legið fyrir innan tveggja mán­aða. Þetta kemur fram í skrif­legu svari frá ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV, sem greinir frá þessu á vef sínum.

Skýrslan var afhent í lok jan­úar, en í starfs­hópnum áttu sæti Björgvin Guð­munds­son, Elfa Ýr Gylfa­dóttir, Soffía Har­alds­dóttir, Svan­björg Thorodds­son og Hlynur Ingason.

Mennta­mála­ráðu­neytið vinnur meðal ann­ars með fjöl­miðla­nefnd að því að meta til­lögur nefnd­ar­innar ásamt fleiri val­kostum með til­liti til áhrifa þeirra og kostn­aðar.

Meðal þess sem náð­ist ein­ing um í nefnd­inni, væri að end­ur­greiða fjöl­miðlum allt að fjórð­ung kostn­aðar við fram­leiðslu frétta­tengds efnis.

Nefndin klofn­aði í afstöðu sinni um nokkur mál, til dæmis hvort Rík­is­út­varpið ætti að hverfa af aug­lýs­inga­mark­aði og hvort leyfa skyldi áfengis- og tóbaks­aug­lýs­ingar. Þá var einnig rætt um að virð­is­auka­skattur yrði felldur niður, en slík til­laga var sam­þykkt á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á dög­unum.

Meðal þess sem nú er til athug­unar í mennta­mála­ráðu­neyt­inu er að kort­leggja kostnað rík­is­sjóðs vegna til­lagna sem starfs­hóp­ur­inn fjall­aði um í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár