Geirmundur dæmdur sekur um umboðssvik

Spari­sjóðs­stjóri SPKEF var í dag dæmdur í 18 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir umboðs­svik. Með dómnum snéri Hæsti­réttur fyrri nið­ur­stöðu í hér­aði.

Geir­mund­ur Krist­ins­son­, fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóri Spari­sjóðs­ins í Kefla­vík (SPKEF), var í dag dæmd­ur í 18 mán­uða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hæsta­rétti fyr­ir umboðs­svik.

Þá var hon­um gert að greiða all­an áfrýj­un­ar­kostnað máls­ins og mál­svarn­ar­laun verj­anda síns, sam­tals 6,1 millj­ón.

Í dómnum er meðal ann­ars vísað til ald­urs Geir­mundar og hann hafi ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Með vísna til heilsu­fars er talið hæfi­legt að skil­orðs­binda alla refs­ing­una. „Ákærði er fæddur 1944 og hefur sam­kvæmt saka­vott­orði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Þá er nokkuð liðið síðan hann framdi brot sín. Að því virtu og að teknu til­liti heilsu­fars ákærða verður refs­ing hans ákveðin fang­elsi í 18 mán­uði sem bundin verður skil­orði eins og í dóms­orði greinir. Ákærði verður dæmdur til að greiða allan sak­ar­kostnað í hér­aði eins og hann var þar ákveð­inn. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða sak­ar­kostnað fyrir Hæsta­rétti, þar með talin málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda síns sem ákveðin verða að með­töldum virð­is­auka­skatti eins og í dóms­orði greinir,“ segir í dómnum.

Geir­mund­ur var ákærður fyr­ir umboðs­svik með því að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum með lán­veit­ing­um til einka­hluta­fé­laga. Fjár­hæð­irn­ar í ákær­unni nema tæp­um átta hund­ruð millj­ón­um króna. Í ákæru sagði að Geir­mund­ur hefði stefnt fé spari­sjóðs­ins í veru­lega hættu þegar hann fór út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga með því að veita einka­hluta­fé­lag­inu Duggi 100 millj­óna króna yf­ir­drátt­ar­lán 16. júní 2008. Afstaða lána­nefnd­ar lá ekki fyr­ir og áhættu- og greiðslu­mat fór ekki fram. Þá var end­ur­greiðslan ekki tryggð með nokkr­um hætti.

„Það sem hér hefur verið greint getur engu breytt um þau grund­vall­ar­at­riði að stofn­fjár­bréfin voru fram­seld frá B ehf. til I ehf. og færð í verð­bréfa­skrán­ingu sem eign síð­ar­nefnda félags­ins án þess að nokkuð hafi verið að gert til tryggja fyrr­nefnda félag­inu ráð yfir bréf­unum eða til­kall til verð­mætis þeirra. I ehf. til­heyrði hvorki B ehf. né Spari­sjóðnum A, heldur N sem fór að lögum einn með öll ráð yfir mál­efnum félags­ins. Þótt félagið hefði ekki getað fram­selt stofn­fjár­bréfin án sam­þykkis stjórnar Spari­sjóðs­ins A gat spari­sjóð­ur­inn ekki vegna fram­an­greindra aðstæðna einna skipt sér að öðru leyti af afdrifum bréf­anna eða mál­efnum félags­ins. Meðal ann­ars hefði hann þannig ekki getað fengið rönd við reist ef N hefði sem eig­andi félags­ins kosið að fram­selja alla hluti í því til ann­arra, hann hefði skuld­sett félagið við aðra, lán­ar­drott­inn I ehf. hefði leitað fulln­ustu kröfu með fjár­námi í þess­ari eign félags­ins eða lán­ar­drott­inn N hefði leitað fulln­ustu kröfu á hendur honum með fjár­námi í hlutum hans í félag­inu.

Að virtu öllu fram­an­greindu fól fram­sal stofn­fjár­bréf­anna frá B ehf. til I ehf. í sér veru­lega fjár­tjóns­hættu fyrir fyrr­nefnda félagið af völdum ákærða. Hann hefur því gerst sekur um þá hátt­semi sem um ræðir í síð­ari kafla ákæru og rétti­lega er þar færð til refsi­á­kvæðis,“ segir í dómnum.

Hæsti­réttur féllst á inn­tak ákæru um umboðs­svik í nið­ur­stöðu sinni, en í Hér­aðs­dómi Reykja­ness var Geir­mundur sýkn­aður af ákærunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár