Fer verðbólgudraugurinn á flug á ný?

Seðla­banki Íslands skil­aði rík­is­stjórn grein­ar­gerð um verð­bólgu­horfur á dög­unum, þar sem verð­bólga var þá komin niður í 0,9 pró­sent.

Verð­bólgu­draug­ur­inn hefur í gegnum tíð­ina verið okkur Íslend­ingum erf­iður. Oftast nær hefur verð­bólga verið fyrir ofan 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miðið, sé horft yfir síð­ustu tvo ára­tugi. En á und­an­förnum árum hefur tek­ist að hemja verð­bólg­una með fjár­magns­höftum, og hefur hún hald­ist fyrir neðan mark­miðið í meira en tvö ár. Hún mælist nú 0,9 pró­sent, og er það eina sem heldur lífi í henni mikil og hröð hækkun hús­næð­is­verðs, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ef ekki væri fyrir hækkun hús­næð­is­verðs­ins þá væri verð­hjöðnun, það er nei­kvæð verð­bólga.

En sé litið til reynsl­unnar, þá ætti fólk ekki að ganga að því vísu að verð­bólgan hald­ist nálægt núlli í langan tíma. Verð­bólgu­draug­ur­inn gæti farið á stjá á nýjan leik.

Seðla­banki Íslands skil­aði 9. sept­em­ber grein­ar­gerð til­rík­is­stjórn­ar­innar vegna þess að verð­bólga hefur hald­ist fyrir neðan lægri mörk.

Fimm atriði eru hér sér­stak­lega til­tekin til umfjöll­unar sem hafa áhrif á það hvort verð­bólga muni hald­ast lág eða jafn­vel hækka.

5. Olíuverð í heim­inum hefur hald­ist lágt um nokk­urt skeið, eða í kringum 40 Banda­ríkja­dali á tunn­una af hrá­olíu. Sem dæmi má nefna það, að Norðmenn horfa til þess að tunnan þurfi að vera á milli 60 til 70 Banda­ríkja­dali á tunn­una til að fram­legð sé ásætt­an­leg og jákvæð. Eins og mál standa nú eru margir olíu­fram­leið­endur í vanda. Á mörk­uðum í gær lækk­aði verð á olíu um tæp­lega þrjú pró­sent, og var það um 44 Banda­ríkja­dalir, sé miðað við stöðu mála á Banda­ríkja­mark­aði. Ástæðan er meðal ann­ars slæmar hag­tölur. Þetta má túlka sem góðar fréttir fyrir Ísland, þar sem olíu­verð hefur áhrif á marga þætti í hag­kerf­inu, ekki síst á inn­fluttar vörur. Þegar það helst jafn lágt og raun ber vitni, þá helst inn­flutt verð­bólga minni fyrir vikið.

4. Annað sem hefur unnið með stöðu mála á Íslandi, er að gengi krón­unnar hefur styrkst veru­lega á und­an­förnum tólf mán­uðum. Evran kostar nú 129 krónur en var á ríf­lega 150 krónur fyrir ári. Svipaða sögu er að segja af Banda­ríkja­dal, sem kostar nú 115 krónur en hann kost­aði 136 krónur fyrir ári síðan. Pundið hefur síðan fallið um 25 pró­sent gagn­vart krón­unni. Það kostar nú 153 krónur, en kost­aði 206 krónur fyrir rúm­lega ári. Þessi geng­is­þróun hefur virkað vel fyrir Íslend­inga, og haldið verð­bólg­unni niðri. Vörur sem eru keyptar inn til lands­ins falla því í verði, í krónum talið, og það hefur áhrif á vísi­tölu neyslu­verðs.

3. Í grein­ar­gerð Seðla­banka Íslands er sér­stak­lega vikið að því, að laun hafi hækkað mun meira á Íslandi en í „nokkrum öðrum þró­uðum ríkjum“. Er þar vísað til nýj­ustu kjara­samn­inga, en í þeim flestum var samið um 20 til 30 pró­sent launa­hækk­anir horft til næstu þriggja ára. Seðla­bank­inn hefur bent á það að launa­hækk­an­irnar séu langt umfram fram­leiðni í hag­kerf­inu. Til lengdar litið geti það ekki gegnið, og á end­anum muni það skila sér í auk­inni verð­bólgu. Að mati seðla­bank­ans hafa verð­bólgu­horfur þó batnað, en búist er við að verð­bólgan hald­ist undir 2,5 pró­sent mark­miði fram á næsta ár. Þrátt fyrir 0,9 pró­sent verð­bólgu nú, eru meg­in­vextir bank­ans 5,25 pró­sent og voru lækk­aðir úr 5,75 pró­sent í ágúst.

2. Gengi krón­unnar er áhættu­þáttur í hag­kerf­inu, nú sem fyrr. Eitt af því sem hefur aukið gjald­eyr­is­streymi mikið til lands­ins er upp­gangur í ferða­þjón­ustu. Þetta hefur leitt til þess að krónan hefur styrkst. Það er ekki gott fyrir ferða­þjón­ust­una, það er ef gengi krón­unnar styrk­ist of mikið. Nú þegar hafa komið fram áhyggju­raddir í þessum efnum. Hvað þolir ferða­þjón­ustan mikla styrk­ingu áður en ferða­menn fara að líta á Ísland sem of dýran áfanga­stað? Það er erfitt að svara þessar spurn­ingu með vissu, þar sem saga upp­gangs ferða­þjón­ust­unnar er stutt og ekki mikil reynsla sem hægt er að byggja á eða draga álykt­anir af. En sann­ar­lega er þetta áhættu­þáttur, sem að lokum gættileitt til mik­illar verð­bólgu og vand­ræða fyrir almenn­ing.

1. Þó við Íslend­ingar séu nú að ganga í gegnum mikla upp­gangs­tíma, eftir end­ur­reisn efna­hags­ins, þá getur staðan breyst til hins verra. Meg­in­á­hættan er sú, hvernig horfur muni þró­ast á alþjóða­mörk­uðum á næst­unni og hvaða áhrif það mun hafa á Íslandi. Staða mála á alþjóða­mörk­uðum hefur unnið með okkur Íslend­ingum að und­an­förnu, en breyt­ist þær hratt, eins og dæmin sanna að geti gerst, þá getur slæm stað verið í kort­unum Íslandi. Þar sem und­ir­liggj­andi ekki svo góð staða. Við­var­andi nei­kvæður vöru­skipta­jöfn­uður, það er að meira er flutt inn en út, og launa­hækk­an­irnar gætu bitið hressi­lega í rekstri fyr­ir­tækja ef hina hag­fellda staða erlendis hættir að hjálpa til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár