Staðan góð en augljósir kerfisáhættuþættir

Mitt í miklu vaxt­ar­skeiði og eigna­hækk­unum eru farin að sjást merki um að kerf­is­á­hættu í hag­kerf­inu. Einkum er það staðan á fast­eigna­mark­aði sem gefur til­efni til þess að fylgj­ast þar grannt með gangi mála.

Árif ferðaþjónustu á fasteignamarkaðinn auka hættuna á frekari verðhækkunum á markaðinum, segir í Fjármálastöðugleika Seðlabankans.
Árif ferða­þjón­ustu á fast­eigna­mark­að­inn auka hætt­una á frek­ari verð­hækk­unum á mark­að­inum, segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­bank­ans. Mynd: EPA.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, sem kom út í dag, er á það bent að þrátt fyrir að staða efna­hags­mála sé um margt jákvæð, þá séu fyrir hendi kerf­is­á­hættu­þættir sem huga beri sér­stak­lega að.

Staða mála á fast­eigna­mark­aði er sér­stak­lega til umfjöll­unar, en í umfjöllun í rit­inu segir að borið hafi á því að und­an­förnu nokkur skil hafi verið milli launa­þró­unar og fast­eigna­verðs. Verðið hefur haldið áfram að hækka mikið en miðað við tölur frá því í febr­úar hækk­aði verðið um 18,6 pró­sent milli ára. Flestar spár grein­enda gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun fast­eigna­verðs, í það minnsta næstu tvö árin.

Farið er að bera á miklum skorti á íbúðum með til­heyr­andi áhrifum á verð, þar sem eft­ir­spurn hefur haldið áfram að vera mikil.

Í rit­inu segir að var­ast þurfi að draga þá ályktun að verði geti haldið áfram að hækka til langrar fram­tíðar, þrátt góðar horfur í hag­kerf­inu.

„Verð­hækkun íbúð­ar­hús­næðis hefur þar til síð­ustu mán­uði verið í takt við vöxt ráð­stöf­un­ar­tekna. Eigi að síður verður að hafa í huga að þótt íbúða­verð þró­ist í takt við ráð­stöf­un­ar­tekjur og aðra mik­il­væga mæli­kvarða á efna­hags­þróun er vara­samt að draga þá ályktun að af því leiði að verð­hækk­unin sé var­an­leg. Sveiflur í ráð­stöf­un­ar­tekjum geta verið tíma­bundnar og hröð hækkun þeirra getur verið ósjálf­bær. Skuld­sett fast­eigna­kaup sem mið­ast við ósjálf­bærar ráð­stöf­un­ar­tekjur geta leitt til van­skila þegar tekjur leita aftur í jafn­vægi. Hafa þarf í huga að við aðstæður svip­aðar þeim sem nú ríkja, þ.e.a.s. öran vöxt kaup­máttar, vax­andi veð­rými og almennt góðar horfur, getur skuld­setn­ing auk­ist hratt og orðið óhóf­leg á til­tölu­lega skömmum tíma. Slíkt ýtir þá enn frekar undir verð­hækk­anir, einkum ef fram­boð er of treg­breyti­legt til að mark­aðs­verð leiti fljótt jafn­vægis á ný. Áhrif ferða­þjón­ustu á fast­eigna­mark­að­inn auka hætt­una á slíkri þróun. Um þessar mundir gætu aðgerðir sem stuðla að auknu fram­boði íbúða í takt við þörf, auk aðgerða sem halda aftur af eft­ir­spurn­inni, flýtt fyrir aðlögun mark­að­ar­ins að jafn­vægi og dempað verð­sveifl­una. Þannig gætu þær á kom­andi miss­erum haldið aftur af myndun kerf­is­á­hættu vegna fast­eigna­mark­að­ar­ins,“ segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Skuldir lækka og hagvöxtur mikill

Skuldir heim­il­anna, í hlut­falli við lands­fram­leiðslu, hafa lækkað hratt und­an­farin miss­eri. Hag­vöxtur í fyrra var um 7,2 pró­sent og var ein helsta ástæða hans mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu. Erlendir ferða­menn voru um 1,8 millj­ónir í fyrra en gert er ráð fyrir að þeir verði 2,3 millj­ónir á þessu ári. Fyrir fimm árum voru þeir innan við 500 þús­und svo vöxt­ur­inn hefur verið mik­ill.

[adspot]

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika segir að nú sé farið að bera á því að hótel, einkum í Reykja­vík, anni ekki eft­ir­spurn og hefur hið svo­nefnda deili­hag­kerfi, þar sem íbúðir eru leigðar í gegnum vef­síður eins og Airbnb, verið að vaxa þess vegna. Nýjar reglur um útleigu íbúða tak­marka þó mögu­leika í þessum efnum, en hámarks­tími útleigu íbúða er nú 90 dagar á ári. Í rit­inu segir að hinn mikli vöxtur í ferða­þjón­ust­unni hafi átt mik­inn þátt í hækkun fast­eigna­verðs á und­an­förnum árum. „Í febr­úar 2017 voru rúm­lega 1.500 íbúðir með virka skrán­ingu á Airbnb á Íslandi. Þær fast­eignir eru ekki lengur í notkun sem íbúð­ar­hús­næði og hefur fram­boð þess því dreg­ist saman sem því nemur. Á þetta einkum við um litlar íbúðir mið­svæðis. Eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði til almennra nota hefur þannig færst utar á höf­uð­borg­ar­svæðið þar sem lóða­verð er lægra og unnt að byggja hraðar og ódýrar en í grónum hverfum. Hvort áhrif ferða­þjón­ust­unnar á íbúða­mark­að­inn verði til þess að auka áhættu í fjár­mála­kerf­inu ræðst nokkuð af því hve var­an­legur vöxt­ur­inn er. Verði bakslag í ferða­þjón­ustu gætu áhrif á íbúða­mark­að­inn orðið tölu­verð,“ segir í rit­inu.

Þjóðskrá hefur fjallað um það á vef sínum, að miðað við sögu­legar for­sendur, þá vanti um átta þús­und íbúðir inn á markað til skapa jafn­vægi miðað við eft­ir­spurn og fólks­fjölgun. Samtök sveit­ar­fé­laga hafa spáð því að 3 til 4 fjögur ár muni taka að byggja nægi­lega margar íbúðir til að jafn­vægi geti skap­ast á svæð­inu.

Takmarka þarf lán í erlendri mynt

Seðla­bank­inn bendir einnig á að það gæti farið vax­andi að fyr­ir­tæki, sveit­ar­fé­lög og ein­stak­lingar sæk­ist eftir lánum í erlendri mynt. Með betri lána­kjörum íslenskra banka erlendis, geti mynd­ast hvati til að lána í erlendri mynt. Þetta telur Seðla­bank­inn var­huga­vert, og að í versta falli geti slík lán grafið undan stöð­ug­leika hag­kerf­is­ins. „Tekjur og eignir íslenskra heim­ila eru í flestum til­fellum í íslenskum krónum og því er stór hluti íslenskra heim­ila óvar­inn fyrir gjald­miðla­á­hættu. Sama á við um sveit­ar­fé­lög og inn­lend fyr­ir­tæki með tekjur og/eða eignir í krónum. Greiðari aðgangur íslensku bank­anna að erlendu lánsfé og batn­andi kjör gætu leitt til þess að lána­stofn­anir freist­ist til að stækka efna­hags­reikn­ing sinn og að inn­lendir aðilar sem óvarðir eru fyrir gjald­miðla­á­hættu sæki í lægri vexti. Áhættu­sækni gæti því auk­ist og verði slík lán veitt í ríkum mæli getur það grafið undan stöð­ug­leika fjár­mála­kerf­is­ins,“ segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár