Segir Jón Baldvin „haga sér eins og rándýr sem velur bráð sína af kostgæfni“

Fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að Íslend­ingar eigi „mjög erfitt með að horfast í augu við að flottir karlar mis­beiti valdi sínu gagn­vart ungum konum og körlum.“ Það þurfi hins vegar að horfast í augu við að þeir geri það.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir Mynd: EPA

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem sat á árunum 2007 til 2009, segir Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi for­mann Alþýðu­flokks­ins og fjár­mála- og utan­rík­is­ráð­herra á árunum 1987 til 1995, „haga sér eins og rán­dýr sem velur bráð sína af af kost­gæfni“. Fyrir val­inu verði oftar en ekki ein­stak­lingur sem er ekki með sterkt bak­land og Jón Baldvin sæki svo að henni „með skipu­lögðum hætti, sýnir henni áhuga, jafn­vel trúnað, ving­ast við hana og vinnur traust hennar. Þegar traustið er komið er eft­ir­leik­ur­inn auð­veldur. Þetta er lýs­ing á ótrú­lega ljótum og ójöfnum leik þar sem kenn­ar­inn, skóla­meist­ar­inn, ráð­herr­ann og sendi­herr­ann mis­beitir valdi sínu og sækir að ung­lings­stúlkum.“

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Ingi­björg Sólrún birti í gær­kvöldi. Tilefnið er opin­berun Stund­ar­innar á dag­bók­ar­færslum Þóru Hreins­dóttur, sem var 15 ára nem­andi Jóns Baldvins þegar hann kenndi við Haga­skóla árið 1970. Í dag­bók­inni lýsir Þóra, sem er látin, sam­skiptum þeirra, að Jón Bald­vin hafi beðið hana að hitta sig eftir skóla, að hann hafi hjálpað henni á prófum og að sam­band þeirra hafi verið kyn­ferð­is­legt. Dóttir kon­unnar afhenti Stund­inni dag­bók­ina og fann einnig bréf í dán­ar­búi móður sinnar frá Jóni Bald­vini. Í bréf­inu segir hann hjarta sitt slá örar og blóðið renna hraðar þegar hann hugsi um hana. „Þarna sérðu hvað feg­urð æsk­unnar er drottn­andi afl í til­ver­unni. – Hvað það er und­ar­legt að vera ung­ur. Þú hefur minnt mig á það aft­ur,“ skrif­aði Jón Bald­vin.

Ingi­björg Sólrún segir dag­bók­ar­færslur Þóru vera ótrú­lega merki­lega heim­ild um aðferðir Jóns Baldvins við að ná tökum á henni og hvaða afleið­ingar það hafi fyrir hug­ar­á­stand hennar. „Í fram­hald­inu ákvað ég að lesa aftur allar þær 23 sögur sem safnað hefur verið saman af kyn­ferð­is­brotum og áreiti JBH á ára­tuga tíma­bili og í ljós kom ákveðið munstur sem gengur eins og rauður þráður í gegnum allt hans atferli.

Bað Jón Baldvin um að víkja úr heiðurssæti

Ingi­björg Sólrún segir að hún hafi fengið vit­neskju um eitt þessar mála árið 2007 þegar hún var for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og það varð til þess að hún ræddi í trún­aði við Jón Baldvin og bað hann að segja sig frá heið­urs­sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík fyrir þing­kosn­ing­arnar vorið 2007. „Hann varð við þess­ari ósk minni en í stað þess að láta þar við sitja og sýna svolitla iðrun og hug­ar­angur vegna fram­ferðis síns fór hann rak­leiðis í Silfur Egils og vældi yfir því að ég hefði hafnað honum í heið­urs­sætið á póli­tískum for­sendum. Þetta gerði hann vit­andi að ég gæti aldrei sagt opin­ber­lega hver var hin raun­veru­lega ástæða fyrir því að ég vildi hann ekki í heið­urs­sætið. Það var svo ekki fyrr en 5 árum síðar, þegar Guðrún Harð­ar­dóttir steig fram, sem ástæðan varð heyr­in­kunn.“

[adspot]Guðrún er syst­ur­dóttir Bryn­dísar Schram, eig­in­konu Jóns Bald­vins. Árið 2012 steig hún fram í umfjöllun í Nýju lífi og sagði frá bréfum sem Jón Bald­vin sendi henni þegar hún var barn að aldri. Bréfin voru af kyn­ferð­is­legum toga.

Þurfum að horfast í augu við að „flottir karlar“ misbeiti valdi sínu

Ingi­björg Sólrún segir ástæðu þess að hún sé að skrifa um málið nú sé sú að Jón Baldvin hafi aldrei við­ur­kennt mis­gjörðir sínar og enn láti margir þær sér í léttu rúmi liggja af því þeim finnst Jón Baldvin hafa lagt svo margt að mörkum í íslenskri póli­tík. „Það kemur þessu máli hins vegar ekk­ert við og menn kom­ast aldrei fram­hjá þeirri stað­reynd að þann orðstír sem JBH ávann sér á hinum póli­tíska vett­vangi hefur hann sjálfur lít­ils­virt með því að mis­beita því valdi sem honum var falið gagn­vart fjöl­mörgum ung­lings­stúlkum og konum. Þar er ekki öðrum um að kenna.“

Hún seg­ist líka skrifa færsl­una vegna þess að mál Jóns Baldvins sé ekki eins­dæmi. „Oft ber­ast sögur af kyn­ferð­is­áreitni og nauð­ung af hálfu karla sem eru vel liðnir, hæfi­leik­a­ríkir, vel metnir og hátt á kvisti í verð­leika­sam­fé­lag­inu. Við eigum mjög erfitt með að horfast í augu við að flottir karlar mis­beiti valdi sínu gagn­vart ungum konum og körlum. En það ger­ist nú samt og ef við neitum að horfast í augu við það þá er okkur líkt farið og fólki fyrri alda sem þagði yfir eða lét kyrrt liggja að heldri menn og valds­menn mis­not­uðu und­ir­sáta sína. Takk Val­gerður Þor­steins­dóttir fyrir að birta dag­bók­ar­færslu móður þinnar og takk Bjarni Frímann Bjarna­son fyrir þinn kjark. Við hin verðum að hafa kjark til að taka á þessum málum.“

Bjarni Frímann steig fram í lok síð­ustu viku og greindi frá kyn­ferð­is­of­beldi sem Árni Heimir Ing­ólfs­son beitti hann þegar Bjarni Frímann var 17 ára nem­andi Árna Heimis, þá 35 ára, í Lista­há­skóla Íslands.

Telur að verið sé að reyna að sverta mannorð hans

Þóra Hreins­dóttir lýsir í dag­bók sinni sam­skiptum við Jón vikum sam­an, bæði í skól­anum og utan hans. Hún skrif­ar, svo eitt af mörgum dæmum sé tek­ið, þegar hún hitti Jón Bald­vin í Ing­ólfs­stræti eitt sinn vorið 1970 og ræddi stutt­lega við hann. Þegar þau voru að kveðj­ast setti hann allt í einu hend­ina „niður und­ir“ bux­urnar henn­ar, að kyn­færum henn­ar. „Ég kunni því illa og sýndi það með ein­hverjum svip­brigðum og mót­þró­a,“ skrif­aði hún. Í annarri færslu lýsir hún því að Jón Bald­vin hafi ekið með hana upp að vatni fyrir utan borg­ina og kysst hana í laut. „Hann svo lagð­ist ofan á mig. Það var skíta­kuldi. Svo fórum við aftur inn í bíl­inn“. Í sömu ferð hafi hann greint henni frá því sem fram kæmi á ensku prófi stóð fyrir dyr­um. Hann hafi skrifað „allan stíl­inn“ upp fyrir hana og „sagði svo að ég tældi hann og léti hann segja þetta allt.“

[links]Í sömu dag­bók­ar­færslu skrifar hún að Jón Bald­vin hafi spurt hana hvort hún kynni að keyra bíl. Svo hafi hann bætt við: „Nei, þú ert 15 ára ég gleymdi því að ég er með barn hjá mér.“

Stundin fann marg­vís­legar stað­fest­ingar á því sem fram kom í dag­bók­inni og í bréf­inu, m.a. í gögnum Haga­skóla sem og í við­tölum við skóla­systur hennar frá þessum tíma.

Í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um málið er m.a. rætt við ekkil Þóru. „Hún sagði mér að um leið og Jón Hanni­bals­son kyssti hana fyrsta koss­inum hefði hann eyði­lagt líf henn­ar.“

Stundin bauð Jóni Bald­vini að bregð­ast við umfjöllun sinni um mál­ið. Hann sendi í kjöl­farið tölvu­póst undir yfir­skrift­inni „Um mann­orðs­þjófn­að“ þar sem hann seg­ist geta full­yrt með „góðri sam­visku“ að umrædd stúlka hafi ekki orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni af sinni hálfu. Hann telur aug­ljóst að málið sé dregið fram í dags­ljósið til að sverta mann­orð hans.

Umfjöllun Stund­ar­innar má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jón Baldvin Hannibalsson

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár