Unglingsstúlka lýsti nánu sambandi við Jón Baldvin Hannibalsson í dagbók

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, sagði í bréfi til stúlku árið 1970 að hjarta hans slægi örar og blóðið rynni hraðar þegar hann hugs­aði til hennar. Stúlkan var 15 ára. Hann 31 árs. Var kenn­ar­inn. Hún nem­and­inn.

Þóra Hreinsdóttir var fimmtán ára er hún ritaði í dagbókina sína um náin samskipti við Jón Baldvin árið 1970.
Þóra Hreins­dóttir var fimmtán ára er hún rit­aði í dag­bók­ina sína um náin sam­skipti við Jón Baldvin árið 1970. Mynd: Skjáskot/Stundin

Stundin fjallar í dag um dag­bók­ar­færslur konu sem nú er látin en var nem­andi Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar í Haga­skóla árið 1970. Í dag­bók­inni lýsir hún sam­skiptum þeirra, að Jón Baldvin hafi beðið hana að hitta sig eftir skóla, að hann hafi hjálpað henni á prófum og að sam­band þeirra hafi verið kyn­ferð­is­legt. Dóttir kon­unnar afhenti Stund­inni dag­bók­ina og fann einnig bréf í dán­ar­búi móður sinnar frá Jóni Baldvini. Í bréf­inu segir hann hjarta sitt slá örar og blóðið renna hraðar þegar hann hugsi um hana. „Þarna sérðu hvað feg­urð æsk­unnar er drottn­andi afl í til­ver­unni. – Hvað það er und­ar­legt að vera ungur. Þú hefur minnt mig á það aftur,“ skrif­aði Jón Baldvin.

[adspot]

Konan lýsir í dag­bók sinni sam­skiptum við Jón vikum saman, bæði í skól­anum og utan hans. Hún skrifar, svo eitt af mörgum dæmum sé tekið, þegar hún hitti Jón Baldvin í Ing­ólfs­stræti eitt sinn vorið 1970 og ræddi stutt­lega við hann. Þegar þau voru að kveðj­ast setti hann allt í einu hend­ina „niður undir“ bux­urnar hennar, að kyn­færum hennar. „Ég kunni því illa og sýndi það með ein­hverjum svip­brigðum og mót­þróa,“ skrif­aði hún. Í annarri færslu lýsir hún því að Jón Baldvin hafi ekið með hana upp að vatni fyrir utan borg­ina og kysst hana í laut. „Hann svo lagð­ist ofan á mig. Það var skíta­kuldi. Svo fórum við aftur inn í bíl­inn“. Í sömu ferð hafi­hann greint henni frá því sem fram kæmi á ensku prófi stóð fyrir dyrum. Hann hafi skrifað „allan stíl­inn“ upp fyrir hana og „sagði svo að ég tældi hann og léti hann segja þetta allt.“

Í sömu dag­bók­ar­færslu skrifar hún að Jón Baldvin hafi spurt hana hvort hún kynni að keyra bíl. Svo hafi hann bætt við: „Nei, þú ert 15 ára ég gleymdi því að ég er með barn hjá mér.“

Stundin fann marg­vís­legar stað­fest­ingar á því sem fram kom í dag­bók­inni og í bréf­inu, m.a. í gögnum Haga­skóla sem og í við­tölum við skóla­systur hennar frá þessum tíma.

Lifði ekki til að sjá byltinguna

Konan hét Þóra Hreins­dóttir. Hún lést fyrir sex árum. „Mamma var dáin áður en konur fóru að stíga fram og segja frá ofbeldi sem þær voru beittar,“ hefur Stundin eftir Valgerði Þor­steins­dóttur, dóttur Þóru. „Mamma lifði ekki til að sjá bylt­ing­una. Ég ákvað að afhjúpa þetta brot úr hennar sögu af því það sem Jón Baldvin gerði mömmu þarf að kom­ast í dags­ljósið. Dagbókin á ekki að liggja í kassa í geymslu hjá mér.“

Hún segir móður sína hafa verið greinda og hæfi­leik­a­ríka konu sem haldrei hafi fylli­lega fengið að láta ljós sitt skína. Sjálfs­mynd hennar hafi verið í molum frá ung­lings­árum. „Henni leið yfir­leitt illa. Eina leiðin sem hún kunni til að deyfa skömm, sorg og stans­lausar sjálfs­á­sak­anir var að drekka,” segir Val­gerður við Stundina. „Það voru miklar svipt­ingar í lífi mömmu stuttu áður en hún lenti í tímum hjá Jóni Baldvini. Hún var því ein­stak­lega brotin og varn­ar­laus þegar hann fór að sýna henni þessa sér­stöku athygli. Hann gerði í raun bara illt verra og hún beið þess aldrei bætur.“

Í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar í dag um málið er m.a. rætt við ekkil Þóru. „Hún sagði mér að um leið og Jón Hanni­bals­son kyssti hana fyrsta koss­inum hefði hann eyði­lagt líf hennar.“

Stundin bauð Jóni Baldvini að bregð­ast við umfjöllun sinni um málið. Hann sendi í kjöl­farið tölvu­póst undir yfir­skrift­inni „Um mann­orðs­þjófnað“ þar sem hann seg­ist geta full­yrt með „góðri sam­visku“ að umrædd stúlka hafi ekki orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni af sinni hálfu. Hann telur aug­ljóst að málið sé dregið fram í dags­ljósið til að sverta mann­orð hans.

Umfjöllun Stund­ar­innar má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jón Baldvin Hannibalsson

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár