Mynd: Pexels/Chalo Garcia

Lúxuslosun hinna ríku ógnar loftslagsmarkmiðum

Hærri tekjur leiða til auk­innar neyslu og þar af leið­andi stærra kolefn­is­fótspors ein­stak­linga. Losun rík­ustu 10 pró­sent jarð­ar­búa nægir ein og sér til að mark­miði Par­ís­ar­sátt­mál­ans verði ekki náð. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Oxfam.

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Glasgow á síð­asta ári sam­mæld­ust þjóð­ar­leið­togar um mik­il­vægi þess að halda hlýnun and­rúms­lofts­ins undir 1,5°C í sam­ræmi við mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Ljóst er að ef hlýnun jarðar fer yfir 1,5°C mun það hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir jarð­ar­búa, líf­ríki og vist­kerfi á jörð­inni.

Skýrsla Oxfam, sem byggir á grein­ingum frá Institute for European Environ­mental Policy og Stockholm Environ­ment Institute, leiðir hins vegar í ljós að árið 2030 mun rík­asta 1% jarð­ar­búa vera með 30 sinnum stærra kolefn­is­fót­spor en sam­ræm­ist hlýn­un­ar­mark­miði Par­ís­ar­sátt­mál­ans.

Loftslagsnýlendustefna

Stór gjá er á milli þeirra sem bera ábyrgð á lofts­lags­breyt­ingum og þeirra sem mest munu finna fyrir afleið­ing­unum. Hnatt­ræna „norðrið“ (e. Global north) – sem sam­anstendur af vest­rænum, iðn­væddum ríkjum – ber ábyrgð á lung­anum af sögu­legri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sem og 92% af umfram­losun gróð­ur­hús­lof­t­eg­unda. Umfram­losun vísar til los­unar sem er umfram það sem talin eru örugg mörk (e. safe bound­aries) og hefur verið verið vísað til þess­arar umfram­los­unar sem kolefnis- eða lofts­lagsný­lendu­stefnu.

Afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga munu hins vegar bitna mest á fátækum þjóðum á suð­ur­hveli jarðar (e. Global south) sem bera minnsta ábyrgð, ef nokkra, á lofts­lags­breyt­ingum. Þá eru minni­hluta­hópar eins og konur, frum­byggjar og svart fólk sér­stak­lega ber­skjald­aðir fyrir afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga.

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin gerir ráð fyrir því að fyrir árið 2030 lát­ist um 240 þús­und ein­stak­lingar ár hvert sökum lofts­lags­breyt­inga. Það gera um 600 dauðs­föll á hverjum degi. Gert er ráð fyrir því að dauðs­föll sökum lofts­lags­breyt­inga muni aukast enn frekar á kom­andi ára­tugum og mögu­lega valda allt að millj­ónum dauðs­falla ár hvert á seinni hluta þess­arar aldar.

Ríkasta 1% hefur náð yfirráðum á kolefniskvótanum

Í fyrr­nefndri skýrslu Oxfam er neyslu­drifin losun mis­mun­andi tekju­hópa áætluð fyrir árið 2030. Nið­ur­stöð­urnar sýna að hærri tekjur leiða til auk­innar neyslu og þar af leið­andi stærra kolefn­is­fótspors ein­stak­linga. Þannig er tekju­ó­jöfn­uður bein­tengdur kolefn­isó­jöfn­uði en sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unnar er kolefn­isó­jöfn­uður í heim­inum gríð­ar­lega mik­ill. Ríkasti hluti mann­kyns gengur á kolefn­isk­vóta heims­ins – þ.e. magn kolefnis sem mann­kynið má losa áður en hlýnun jarðar fer yfir 1,5 gráðu – og skilur lítið eftir fyrir fátæk­ari sam­fé­lög. Það eru lönd sem hafa litla sem enga sögu­lega losun en þurfa hluta af kvót­anum til að kom­ast úr fjötrum fátæktar.

Þá er því spáð að árið 2030 muni rík­asta 1% mann­kyns, um 80 millj­ónir manns, vera með 25% stærra kolefn­is­fót­spor en árið 1990. Enn­fremur mun þessi agn­arsmái hluti mann­kyns vera með 16 sinnum stærra kolefn­is­fót­spor en meðal-kolefn­is­fótsporið og 30 sinnum stærra en sam­ræm­ist 1,5°C mark­mið­inu. Á sama tíma mun losun fátæk­asta 50% mann­kyns vera vel undir mark­miðum Par­ís­ar­sátt­mál­ans.

Það er þó ekki bara hið ofur­ríka 1% sem gengur á kolefn­isk­vót­ann. Milli áranna 1990 og 2015 not­aði rík­asta 10% mann­kyns fjórð­ung af kolefn­isk­vót­anum á meðan fátæk­ustu 50% jarð­ar­búar not­uðu minna en 5% af kvót­anum. Árið 2030 er áætlað að losun rík­asta 10% mann­kyns verði 10 sinnum meiri en mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans segja til um og mun þessi tekju­hópur því ganga svo á kolefn­isk­vót­ann að það skilur varla eftir neitt svig­rúm fyrir hin 90% jarð­ar­búa. Þetta þýðir að losun 10% rík­ustu nægir ein og sér til að mark­miði Par­ís­ar­sátt­mál­ans verði ekki náð, sama hvað hin 90% mann­kyns gera.

Lífstílstengd losun

Skýrsla Oxfam byggir á grein­ingu um neyslu­drifna kolefn­islosun ein­stak­linga. Stór hluti los­unar þeirra rík­ustu stafar af kolefn­is­frekum sam­göngu­mátum: stórum bílum, snekkjum og einka­flug­vélum. Rann­sóknir hafa meðal ann­ars sýnt að ein­ungis 1% mann­kyns ber ábyrgð á helm­ingi los­unar frá flugi.

Þá ber einnig að nefna þá miklu orku og auð­linda­notkun sem felst í að eiga stærra heim­ili og í mörgum til­fellum, fleira en eitt heim­ili. Lífstílstengd losun þeirra ríku er gríð­ar­leg en höf­undar skýrsl­unnar benda einnig á að þessi hópur fjár­festi síður í grænum lausnum og í krafti auðs hefur þessi hópur mikil póli­tísk áhrif. Þau sem hafa meiri pen­inga og völd verða minna fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga og leggja því minni áherslu á aðgerðir gegn þeim.

Taka þarf á ójöfnuði ef leysa á loftslagsmálin

Emily Gosh, einn af höf­undum skýrsl­unar, segir nið­ur­stöð­urnar fyrst og fremst sýna skýr tengsl milli tekna fólks og kolefn­is­fótspors þeirra. „Það er kerf­is­bundið órétt­læti til staðar sem leiðir til ósjálf­bærs lífstíls þeirra rík­ustu og þar af leið­andi mik­illar los­unar,“ segir hún.

Í umfjöllun BBC um lofts­lagsórétt­læti bendir Dr. Lewis Akenji á að ein­stak­lings­bundnar neyslu­venjur sem lausn á lofts­lags­breyt­ingum sé við­kvæmt umræðu­efni. Það er, hvort að ein­stak­lingar beri ábyrgð á því að leysa lofts­lags­vand­ann með breyttri neyslu­hegðun eða hvort að það sé undir stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum komið. Akenji segir þetta ekki vera spurn­ingu um annað hvort eða - lífs­stíll og neyslu­venjur eigi sér ekki stað í tóma­rúmi. Lífs­stíll og neysla mót­ast af sam­hengi og fólk lifir lífi sínu innan þess ramma sem stjórn­mála- og efna­hags­kerfið mótar.

Aimee Ambrose, höf­undur nýlegrar rann­sóknar um lofts­lags­á­hrif þeirra ríku, segir í sam­tali við The Guardian að ósjálf­bær neysla sé ein­fald­lega ekki á stefnu­skrá rík­is­stjórna og stefnu­mótenda. Með því að taka ekki á ofneyslu þeirra rík­ustu eru stefnu­mótendur að fara á mis við tæki­færi til að draga úr ójöfn­uði og þar með losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Löngum hefur verið vitað að tekju­ó­jöfn­uður, neysla og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eru nátengd. Skýrsla Oxfam sýnir að tekju­ó­jöfn­uður leiði til kolefn­isó­jöfn­uðs að það miklu marki að það grefur undan getu alþjóða­sam­fé­lags­ins til að ná mark­miðum Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Samkvæmt höf­undum rann­sókn­ar­innar er sá mikli ójöfn­uður sem ríkir í dag ein­fald­lega ósjálf­bær. Því sé óhjá­kvæmi­legt að vinna gegn ójöfn­uði ef leysa á lofts­lags­vand­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár