Tíu staðreyndir um fjármálastefnu stjórnvalda

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar kynnti á dög­unum í fyrsta sinn fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun fyrir hið opin­bera til næstu fimm ára. Stefnan er byggð á nýjum lögum fjár­mál hins opin­bera sem eiga að miða að því bæta hag­stjórn og sam­starf á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga.

Samkvæmt því sem fram kom frá efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­inu þá felur þetta í sér að hægt verði á næstu árum „að búa enn frekar í hag­inn fyrir kom­andi kyn­slóðir með því að greiða niður opin­berar skuldir, draga úr álögum á fólk með lægri og sann­gjarn­ari sköttum, byggja upp sam­fé­lags­lega inn­viði og treysta til muna grunn­þjón­ustu rík­is­ins með hækkun bóta, efl­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins og auknum gæðum mennt­unar.“

Tíu stað­reyndir úr stefn­unni og áætl­un­inni má lesa hér að neðan.

1. Lög um opin­ber fjár­mál inn­leiða strangar reglur um afkomu og skulda­þróun, en sam­kvæmt áætl­un­inni verður mark­miðum þeirra náð þegar á fyrstu tveimur árum hennar, með jákvæðum heild­ar­jöfn­uði yfir allt fimm ára tíma­bilið og lækkun heild­ar­skulda hins opin­bera; ríkis og sveit­ar­fé­laga, í 30 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Heild­ar­af­koma A-hluta ríkis og sveit­ar­fé­laga verður jákvæð um að minnsta kosti 1 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á tíma­bili áætl­un­ar­innar í því skyni að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika í þjóð­ar­bú­skapnum. Á næsta ári er gert ráð fyrir 26,5 millj­arða króna jákvæðum heild­ar­jöfn­uði rík­is­sjóðs.

2. Vaxta­gjöld verða um 20 millj­örðum króna lægri lægri á ári í lok tíma­bils­ins en þau voru í árs­lok 2015. Meg­in­mark­miðið er ekki síst það, að lækka skuldir hins opin­bera.

3. Gert er ráð fyrir að hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði verði hækk­aðar um 130 þús­und krónur í byrjun næsta árs í 500 þús­und krónur á mán­uði, en mark­miðið er að færa greiðsl­urnar í átt að því sem þær voru fyrir 2009. Samtals eykst fram­lag til sjóðs­ins um 1 millj­arð króna á árunum 2017–2018.

4. Fjár­mála­á­ætlun gerir ráð fyrir að fram­lög til fram­halds­skóla­stigs­ins vaxi um 3,2 millj­arða króna að raun­virði frá og með árinu 2016 og til árs­ins 2021, eða sem svarar til nálægt 12% raun­vaxtar yfir tíma­bilið á sama tíma og rekstr­ar­kostn­aður skól­anna mun lækka vegna stytt­ingar náms­ins úr fjórum árum í þrjú.

5. Gera má ráð fyrir að svig­rúm til fram­kvæmda á árunum 2017 til 2021 nemi sam­tals upp­safnað um 75 millj­arða króna, sam­kvæmt áætl­unum. Ekki er gert ráð fyrir að fjár­magna þurfi þessi verk­efni með óreglu­legum tíma­bundnum tekjum rík­is­sjóðs á borð við arð­greiðslur eða sölu­hagnað.

6. Ein mikil óvissa er í þess­ari stefnu og áætl­un­inni þar með. Hún snýr að stjórn­málum og for­gangs­röðun sem birt­ist í fjár­lögum ár hvert. Ekki er víst að fjár­heim­ild fáist fyrir öllum þeim verk­efnum sem lögð eru fram í áætlun, og að þeim sé stefnt. Kosn­ingar í haust, og mögu­leg stjórn­ar­skipti, geta meðal ann­ars breytt stöð­unni og áherslum.

7. Fjár­mála­á­ætlun gerir ráð fyrir að fram­lög til fram­halds­skóla­stigs­ins vaxi um 3,2 millj­arða króna að raun­virði frá og með árinu 2016 og til árs­ins 2021, eða sem svarar til nálægt 12 pró­sent raun­vaxtar yfir tíma­bilið á sama tíma og rekstr­ar­kostn­aður skól­anna mun lækka vegna stytt­ingar náms­ins úr fjórum árum í þrjú.

8. Aukin fram­lög til háskóla eru ekki inn í þessum áformum sem hafa verið kynnt. Þessu hafa rekt­orar háskóla í land­inu mót­mælt harð­lega, og sagt að þetta stand­ist ekki miðað við þau mark­mið sem hafa verið sett. Rekt­or­arnir segja að skýrslur OECD hafi sýnt fram á með óyggj­andi hætti að íslenskir háskólar séu veru­lega und­ir­fjár­magn­aðir og fái til að mynda helm­ingi lægra fram­lag á hvern nem­anda en háskólar á Norð­ur­löndum.

9. Bygg­inga­fram­kvæmdir við fyrsta verká­fanga nýs LSH, einkum með­ferð­ar­kjarna og rann­sókn­ar­hús, verði boðnar út 2018 og komnar á fullan skrið árin 2019–2021. Þær koma til við­bótar bygg­ingu sjúkra­hót­els, sem áformað er að ljúki 2017, og fulln­að­ar­hönnun nýs með­ferð­ar­kjarna sem þegar hafði verið gert ráð fyrir í fjár­lögum 2016 og síð­ustu rík­is­fjár­mála­á­ætlun. Samkvæmt þessu er áhersla lög á áfram­hald­andi upp­bygg­ingu við Hring­braut.

10. Hús íslenskra fræða mun rísa, loks­ins, segja eflaust margir. Lokið verður við fram­kvæmd­ina á næstu fimm árum og renna alls 3,7 millj­arðar króna til verk­efn­is­ins. Ný Vest­manna­eyja­ferja verður til. Á tíma­bil­inu verður ný ferja að fullu fjár­mögnuð og smíðuð en áætl­aður kostn­aður við ferj­una og botn­dælu­búnað nemur nálægt 6 millj­örðum króna. Ferða­manna­staðir verða efldir. Stór­aukin fram­lög renna til upp­bygg­ingar inn­viða á ferða­manna­stöðum en gert er ráð fyrir að þau verði alls um 6 millj­arðar króna, eða um 1,2 millj­arðar á ári. Dýra­fjarð­ar­göng mun einnig kláruð, og sam­göngur þannig styrktar. Áætluð útgjöld vegna gerðar gang­anna nema ríf­lega 12 millj­örðum króna á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár