Valdir viðskiptavinir Arion geta selt í Símanum með 410 milljóna króna hagnaði

Orri Hauksson, forstjóri Símans, hringdi bjöllunni í Kauphöllinni þegar bréf í Símanum voru tekin til viðskipta 15. október síðastliðinn.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans, hringdi bjöll­unni í Kaup­höll­inni þegar bréf í Símanum voru tekin til við­skipta 15. októ­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Nasdaq Iceland

Valdir við­skipta­vinir Arion banka, sem fengu að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum af bank­anum skömmu fyrir útboð á verði sem reynd­ist lægra en nið­ur­staða útboðs­ins, geta á morgun selt bréf sín. Í Frétta­blað­inu í dag segir að virði þeirra hafi hækkað um 410 millj­ónir króna. Arion banki við­ur­kenndi í októ­ber síð­ast­liðnum að gagn­rýni á sölu bréf­anna til vild­ar­við­skipta­vin­anna hefði verið rétt­mæt.

Fengu lán hjá bankanum fyrir hluta verðsins

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um sölu Arion banka á bréfum í Símanum til val­ins hóps við­skipta­vina í aðdrag­anda skrán­ingar í fyrra.

Síðari hluta sept­em­ber­mán­aðar, nokkrum dögum áður en fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð í Símanum fór fram, fengu nokkrir valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut í Símanum á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Ekki hefur verið gefið upp hverjir fjár­fest­arnir eru. Þessi hópur má ekki selja hluti sína fyrr en 15. jan­úar 2016. Með­al­verð í útboði Símans var 3,33 krónur á hlut og í dag er gengi bréfa hans um 3,6 krónur á hlut. Miðað við það gengi gæti hóp­ur­inn selt hlut­inn sinn með 410 millj­óna króna hagn­aði á morgun þegar sölu­hömlum verður lyft.

Í til­kynn­ingu sem Arion banki sendi frá sér 23. októ­ber vegna máls­ins kom fram að bank­inn fjár­magn­aði hluta þess­ara við­skipta, en hann sagði að það hafi verið lít­ill hluti. Það þýðir að fjár­fest­arnir sem fengu að kaupa greiddu ekki að öllu leyti fyrir hlut­inn. Arion banki lán­aði þeim.

Bankinn sagði að ekki hafi verið að „veita við­skipta­vinum afslátt frá verð­inu heldur[...]að gefa þeim kost á að kaupa nokkru stærri hlut en ella[...]Sú gagn­rýni að ekki hafi allir setið við sama borð hefur ekki farið fram­hjá stjórn­endum bank­ans. Ekki var heppi­legt að selja til við­skipta­vina bank­ans svo skömmu fyrir útboðið á gengi sem svo reynd­ist nokkuð lægra en nið­ur­staða útboðs­ins. Bankinn van­mat hina miklu eft­ir­spurn sem raun varð á. Þessi til­högun er til skoð­unar í bank­anum og verður tekið mark á gagn­rýn­inni“.

Hópur stjórnenda og fjárfesta fékk líka að kaupa

Salan til vild­ar­við­skipta­vin­anna á hlut Arion banka í Símanum í aðdrag­anda útboðs er ekki sú eina sem hefur verið gagn­rýnd. Hópur stjórn­enda, undir for­ystu for­stjór­ans Orra Hauks­sonar, og nokkrir inn­lendir og erlendir fjár­festar engu einnig að kaupa fimm pró­sent hlut í félagið áður en almennt útboð fór fram. Þeir fengu að kaupa á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Um þau kaup var til­kynnt í ágúst.

Arion banki hefur greint frá því að sam­komu­lagið við fjár­festa­hóp­inn sem keypti fyrst hafi verið gert í maí. Arion banki segir að sú töf sem orðið hafi á að upp­lýsa um kaupin hafi verið „óheppi­leg“. Verð­matið hafi á þeim tíma, í maí, verið svipað og á Vodafone, hinu skráðu fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu.

Stjórn­endur Símans keyptu einnig 0,5 pró­sent hlut til við­bótar við þau fimm pró­sent sem áður hafði verið greint frá, á sama verði. Samtals keypti hóp­ur­inn því 5,5 pró­sent hlut. Miðað við gengi Símans í dag hefur virði hlutar þeirra hækkað um 42 pró­sent. Það gera rúm­lega 600 millj­ónir króna. Sölu­hömlur eru á fyrstu fimm pró­sent­unum til 1. jan­úar 2017. Stjórn­endur Símans mega hins vegar selja 0,5 pró­sent hlut sinn strax í mars á þessu ári, eftir rúma fjóra mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár