Framlög til opinberra fjárfestinga vannýtt

Opin­berar fjár­fest­ingar voru til­tölu­lega miklar á fyrstu mán­uðum árs­ins miðað við árs­tíma, eftir að hafa tekið dýfu í fyrra. Samkvæmt Lands­bank­anum mætti þó nýta enn betur þær heim­ildir sem veittar hafa verið til fjár­fest­ingar.

Vannýtt fram­lög hins opin­bera til fjár­fest­ingar draga úr áhrifum opin­berra fjár­fest­inga á hag­kerfið, en und­an­farin ár hefur hlut­fall slíkra fram­laga numið allt að 30 pró­sentum. Þetta kemur fram í hag­sjá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans sem birt­ist í gær.

Í hag­sjánni er farið yfir þróun síð­ustu miss­era í opin­berum fjár­fest­ingum, sem dróg­ust tals­vert saman í fyrra þrátt fyrir að rík­is­stjórnin hafi sett af stað sér­stakt fjár­fest­ing­ar­á­tak sem mót­væg­is­að­gerð gegn efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­urs­ins.

Í ár spá helstu grein­ing­ar­að­ilar hins vegar mik­illi hlut­falls­aukn­ingu í fjár­fest­ingum miðað við síð­asta ár. Þar spáir Hag­stofan 17,7 pró­senta aukn­ingu, en Seðla­bank­inn býst við allt að 32 pró­senta aukn­ingu.

Hins vegar er spáð aukn­ing ekki jafn­mikil ef hún er borin saman við tölur síð­ustu ára. Líkt og sjá má á mynd hér að neðan yrði raun­virði opin­berrar fjár­fest­ingar í ár litlu meiri en virði hennar árið 2018 ef spár Seðla­bank­ans, sem eru bjart­sýnastar allra helstu grein­ing­ar­að­ila, yrðu að veru­leika.

Á fyrstu mán­uðum árs­ins jókst virði fjár­fest­ingar hins opin­bera um 18,7 pró­sent ef gert er ráð fyrir verð­bólgu. Samkvæmt Lands­bank­anum, sem gerir ráð fyrir rúm­lega fimmt­ungs­aukn­ingu í virði opin­berrar fjár­fest­ingar, eru töl­urnar á réttri leið.

Aftur á móti bendir bank­inn á tvo þætti sem gætu flækt umræð­una. Annars vegar sé skil­grein­ing rík­is­stjórn­ar­innar á fjár­fest­ingu hins opin­bera víð­ari en sú sem hag­skýrslur nota, þar sem þær telja ekki við­hald inn­viða með sem opin­berar fjár­fest­ingar.

Einnig bætti bank­inn við að und­an­farin ár hafi fjár­veit­ingar til fjár­fest­inga rík­is­sjóðs verið mun meiri en raun­fjár­fest­ingar árs­ins. Þannig hafi ónýttar fjár­heim­ildir til fjár­fest­inga verið um 25-30 pró­sent af sam­þykktum fram­lögum síð­ustu ár. Að mati bank­ans dregur slík van­nýt­ing úr áhrifum fjár­fest­ingar sem hag­stjórn­ar­við­bragðs.

Hins vegar bætir hag­deild Lands­bank­ans við að umbóta sé að vænta í þeim efnum, þar sem unnið sé að laga­frum­varpi um fjár­fest­ingar, sem feli í sér end­ur­skoðun á lögum um skipan opin­berra fram­kvæmda. Með því myndi sér­stök fram­kvæmda- og fjár­fest­inga­á­ætlun fylgja fjár­mála­á­ætlun hins opin­bera, en Lands­bank­inn telur það eiga að geta skapað meiri festu í þessum málum í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár