Óttinn við ofris krónunnar augljós

Styrking krón­unnar virð­ist vera fara að hringja við­vör­un­ar­bjöllum hjá stjórn­völdum.

Það er byr í seglum íslenska hag­kerf­is­ins á flesta mæli­kvarða. Vöxtur hag­kerf­is­ins í fyrra var 7,2 pró­sent, atvinnu­leysi mælist nú um 3 pró­sent og kaup­máttur launa hefur auk­ist jafnt og þétt, sam­hliða launa­hækk­unum og lágri verð­bólgu. Hún er 1,9 pró­sent og hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í meira en þrjú ár.

Þrátt fyrir þessa stöðu hafa stjórn­völd aug­ljós­lega áhyggjur af einu: styrk­ingu krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum.

Áhyggj­urnar hafa marg­sinnis komið fram opin­ber­lega og sagði Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í pistli í vik­unni að stjórn­völd hefðu gripið til marg­vís­legra aðgerða sem ynnu með einum eða öðrum hætti gegn styrk­ingu krón­unnar. Síðan sagði hann: „Lægri vextir hér á landi eru keppi­kefli okkar margra, kannski nærri allra. Háir vextir stuðla að háu gengi krón­unnar, gengi sem er svo hátt að ferða­þjón­ustan, sjáv­ar­út­veg­ur­inn og reyndar allar greinar sem keppa við útlönd eða selja þangað vöru eða þjón­ustu eru að kikna. Við viljum byggja upp tækni­störf, en íslensk tækni­fyr­ir­tæki vilja frekar kaupa þjón­ustu tækni­mennt­aðs fólks frá útlöndum vegna þess að það er miklu ódýr­ara. Nú eru það ekki bara vörur frá útlöndum sem eru ódýr­ari, nú er það líka vinnu­aflið. Hag­fræð­ingar eiga auð­velt með að sýna fram á það að á end­anum nær gengið nýju jafn­vægi. Þá verður jafn­mikið af pen­ingum sem flæðir inn og út úr hag­kerf­inu, því útlendar vörur verða orðnar svo ódýrar að við munum kaupa miklu miklu meira en núna. Pen­inga­stefnu­nefnd­inni, þeirri sem nú ákveður vext­ina, liggur ekk­ert á, því hún þyk­ist vita að hag­fræði­legt jafn­vægi muni nást í gegnum gengið. Spurn­ingin er bara: Hvað kostar það nýja jafn­vægi og hver borgar brús­ann?“

En hvað er það helst sem veldur áhyggjum við styrk­ingu krón­unnar? Og hvað er það sem stjórn­völd eru að reyna að gera til að bæta stöð­una?

Nokkur atriði má telja til.

1. Útflutn­ings­fyr­ir­tæki - í vöru- og þjón­ustu­út­flutn­ingi - fá minna fyrir sinn snúð eftir því sem krónan styrk­ist meira. Á skömmum tíma hefur krónan styrkst mikið og er mikið gjald­eyr­is­inn­flæði vegna ferða­þjón­ust­unnar ein ástæðan. Þannig kostar Banda­ríkja­dalur nú 105 krónur og evran 116, en fyrir um einu og hálfu ári kost­aði Banda­ríkja­dalur 140 krónur og evran 150 krónur. Á sama tíma hafa laun hækkað og rekst­ur­inn því þyngst hjá mörgum. Áhyggju­raddir hafa heyrst úr sjáv­ar­út­vegi, þekk­ing­ar­iðn­aði ýmis konar og ekki síst ferða­þjón­ustu. Afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum var yfir 150 millj­arðar í fyrra.

2. Stjórn­völd ætla sér að hækka skatta á ferða­þjón­ustu, og færa hana úr 11 pró­sent virð­is­auka­skatti í 24 pró­sent og tekur hækk­unin gildi í júlí á næsta ári. Þessi aðgerð á að stuðla að meira jafn­vægi í grein­inni, og jafn­velt tempra vöxt hennar, en hún er einnig hugsuð til að gæta sam­ræmis milli atvinnu­greina. Samtök ferða­þjón­ust­unnar hafa mót­mælt þessu harð­lega, en stjórn­völd ætla sér ekki að gera breyt­ingar, að því er fram hefur komið í máli ráð­herra í rík­is­stjórn.

3. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var óvenju harð­orður í pistli sínum á dög­unum, í garð Seðla­banka Íslands, og kall­aði eftir því að pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans lækk­aði vexti mynd­ar­lega í þessum mán­uði. Meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent, og telur Benedikt að vaxta­lækkun geti unnið gegn styrk­ing­unni, og þannig styrkt stöðu útflutn­ings­grein­anna.

Flestar grein­ingar benda til þess að íslenska krónan muni styrkj­ast áfram á næstu miss­erum enda er háanna­tím­inn í ferða­þjón­ust­unni framundan á sum­ar­mán­uðum. Gert er ráð fyrir að fjöldi ferða­manna fari yfir 2,3 millj­ónir á þessu ári en hann var 1,8 millj­ónir í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár