Nýja malbikið víða tilbúið í hefðbundinn hámarkshraða

Hámarks­hraði hefur verið lækk­aður á þeim veg­ar­köflum sem eru nýmal­bik­aðir en nú eru þær tak­mark­anir brátt á enda víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar segir hrað­ann ekki hækk­aðan fyrr en við­nám sé orðið ásætt­an­legt.

Sumarið er tími malbikunarframkvæmda.
Sumarið er tími mal­bik­un­ar­fram­kvæmda. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hraða­tak­mark­anir sem settar hafa verið upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna nýs mal­biks verða víða teknar úr gildi í dag. Þetta segir G. Pétur Matth­í­as­son, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann. Í frétt RÚV frá því í gær­kvöldi var sagt frá því að hraða­tak­mark­anir á nýmal­bik­uðum vegum séu end­ur­tekið virtar að vettugi. Hraða­tak­mark­an­irnar voru til­komnar vegna þess að nýtt mal­bik á það til að vera hált.

G. Pétur segir erfitt að útskýra hvers vegna nýtt mal­bik geti verið hált. Hann segir að þegar verið sé að leggja nýtt mal­bik sé það, eðli máls­ins sam­kvæmt, mýkra. Það stafar af því að það er meira asfalt í mal­bik­inu í upp­hafi. Spurður að því hvort allt nýtt mal­bik sé hált segir G. Pétur það einnig vera flókið mál.

„Þetta eru nátt­úr­lega flókin fræði hvernig mal­bik er búið til í mal­bik­un­ar­stöð en við gerum ein­fald­lega kröfur um að þegar mal­bikið er lagt út þá sé það ekki hálla en eitt­hvað ákveðið,“ segir G. Pétur og bendir á að veð­ur­að­stæður spila líka inn í, því að hiti og mikil rign­ing gera mal­bikið hálla.

Hraðatakmarkanir í þrjár til fimm vikur

Þær merk­ingar sem nú séu á leið niður hafi verið uppi í um þrjár til fimm vikur segir G. Pétur. Það hafi verið gert í örygg­is­skyni en Vega­gerðin hefur auk þess mælt við­nám nýs mal­biks þegar frá líður mal­bikun.

Í frétt á vef Vega­gerð­ar­innar frá því í lok júní var sagt frá því að hraði yrði færður niður í kjöl­far mal­bik­unar. „Til fram­tíðar verður sú regla einnig tekið upp við lagn­ingu mal­biks að hraði verður ætíð tek­inn niður. Hraðinn verður ekki hækk­aður fyrr en við­námið er ásætt­an­legt. Svæðið verður skiltað þannig að ekki fari á milli mála að mögu­lega sé mal­bik hálla en alla jafna og þá sér­stak­lega í miklum hita og/eða rign­ingu,“ segir þar. Þetta var gert í kjöl­far mann­skæðs umferð­ar­slyss á Kjal­ar­nesi í júní.

Sýni úr vegakaflanum á Kjalarnesi til rannsóknar

Á veg­ar­kafl­anum þar sem slysið varð var lagt nýtt mal­bik sem ekki mæld­ist jafn hált og það sem á undan var. En hvernig er hægt að skýra það að ein lögun mal­biks sé hálli en önnur? „Það getur líka verið erfitt að finna út úr því og þess vegna tókum við sýni úr tveimur köflum og sendum á Nýsköp­un­ar­mið­stöð til rann­sóknar og eins út til Sví­þjóðar. Það tekur langan tíma að finna út úr því en við erum að reyna að finna út hvað gerð­ist,“ segir G. Pétur.

Þar hafi margir sam­verk­andi þættir orðið til þess að mal­bikið varð jafn hált og raun bar vitni. Fyrir það fyrsta var mal­bikið hált, það var mjög hlýtt í veðri og svo hafði rignt mikið og mal­bikið orðið hált vegna bleytu segir G. Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár