Ákveðið að slaufa Menningarnótt í Reykjavík

Neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar ákvað í morgun að aflýsa Menn­ing­arnótt í Reykja­vík, sem átti að fara fram 21. ágúst.

Menningarnótt verður ekki haldin hátíðleg í Reykjavík þann 21. ágúst, eins og til stóð.
Menn­ing­arnótt verður ekki haldin hátíð­leg í Reykja­vík þann 21. ágúst, eins og til stóð. Mynd: Bára Huld Beck

Neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar ákvað á fundi sínum í morgun að aflýsa öllum við­burðum vegna Menn­ing­ar­nætur í Reykja­vík, sem halda átti hátíð­lega 21. ágúst. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá borg­inni.

Í til­kynn­ingu borg­ar­innar segir að eftir ítar­lega skoðun og umræðu hafi verið ein­hugur í neyð­ar­stjórn, sem skipuð er póli­tískum full­trúa borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans og ýmsum æðstu emb­ætt­is­mönnum borg­ar­innar, um að aflýsa hátíð­inni vegna útbreiðslu COVID-19 smita í sam­fé­lag­inu og óvissu sem ríkir um áhrif delta-afbrigð­is­ins á börn, ung­linga og aðra við­kvæma hópa.

„Við tókum þessa ákvörðun með hags­muni allra borg­ar­búa að leið­ar­ljósi. Það er mjög leitt að þurfa að aflýsa þessum frá­bæra degi aftur. En við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að sem eðli­leg­ustu lífi í borg­inni og órof­inni þjón­ustu. Þar stendur efst að skóla­starf fari fram með eins eðli­legum hætti og hægt er og að raska sem minnst þjón­ustu okkar við við­kvæma hópa, svo sem aldr­aða og fatl­aða,“ er haft eftir Þórdísi Lóu Þór­halls­dóttur, for­manni borg­ar­ráðs og stað­gengli borg­ar­stjóra um ákvörðun neyð­ar­stjórnar.

Menn­ing­arnótt hafði verið haldin árlega frá því árið 1996 þar til kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn setti strik í reikn­ing­inn í fyrra. Nú er ljóst að hátíðin fellur niður að nýju þetta árið.

200 manna sam­komu­tak­mark­anir eru í gildi hér á landi til 13. ágúst, sam­kvæmt reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár