Tíu staðreyndir um Guðrúnu Margréti Pálsdóttur

Guðrún Margrét Pálsdóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Guðrún Margrét Páls­dóttir gefur kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands.

1. Guðrún Margrét er 57 ára, fædd í Reykja­vík þann 15. mars árið 1959
.

2. Hún er menntuð sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Guðrún Margrét var for­maður ABC barna­hjálpar, en hún starf­aði fyrir sam­tökin í 27 ár, þar af 23 ár launa­laust og var einn af stofn­endum þess. Hún var í fram­halds­námi í þró­un­ar­fræði þegar hún ákvað að fara í for­seta­fram­boð.

3. Hún býr í Garða­bænum með eig­in­manni sínum sem hún hefur verið gift í 29 ár og eiga þau saman þrjú börn. Eig­in­maður hennar er barna­barn Hannesar Hafstein, fyrsta ráð­herra Íslands.

4. Guðrún Margrét hefur ekki mælst með yfir eitt pró­sent fylgi í skoð­ana­könn­unum.

5. Guðrún Margrét hefur ferð­ast um sex heims­álfur og segir að hnatt­ferð sem hún fór í fyrir 30 árum hafi breytt lífi hennar var­an­lega. 
Árið 1985 seldi hún eigur sínar til að ferð­ast um heim­inn.

6. Hún er í þjóð­kirkj­unni
 og segir að Biblían og bænin veiti sér dag­legan inn­blástur, hvatn­ingu og hug­rekki.
 Hún vill halda reglu­legar bæna­stundir í Bessa­staða­kirkju.

7. Guðrún Margrét hlaut íslensku fálka­orð­una frá Ólafi Ragnari Gríms­syni for­seta árið 2004 fyrir líkn­ar­störf á alþjóða­vett­vangi.

8. Guðrún Margrét talar ágæta ensku, þokka­lega dönsku, er með góðan grunn í spænsku og ein­hvern grunn í þýsku, er fram kemur á kosn­inga­vef RÚV.

9. Hún er áhuga­mann­eskja um skóg­rækt og berja­tínslu.

10. Verði hún kjörin for­seti ætlar hún að standa fyrir Góð­gerð­ar­viku þjóð­ar­innar þar sem allir leita leiða til að verða öðrum til góðs og safna fjár­magni til að blessa aðra. Guðrún Margrét vill að afmæl­is­dagur Ólafs Ragnars Gríms­sonar verði skip­aður góð­gerð­ar­dagur.

Fram­boðs­síða Guðrúnar Mar­grétar - Facebooksíða Guðrúnar Mar­grétar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár