Fjármálaráðherra „skellihló“ þegar kjararáð óskaði eftir launahækkun

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, segir að það sé ekki til­viljun að engin launa­hækkun hafi náð fram hjá kjara­ráði á hans vakt.

„Þessi ósk um aft­ur­virka hækkun kjara­ráðs barst í ráðu­neytið meðan ég var ráð­herra. Ég man vel við­brögð mín þegar ég var spurður álits á efni bréfs­ins. Ég fór að skelli­hlæja og hristi höf­uðið. Það var ekki til­viljun að kjara­ráð fékk ekki aft­ur­virka launa­hækkun meðan ég var ráð­herra.“

Þetta segir Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, á Facebook síðu sinni, þar sem hann gerir beiðni kjara­ráðs um launa­hækkun, að umtals­efni.

Eins og greint var frá í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans, þá sendi Jónas Þór Guð­munds­son, for­maður kjara­ráðs, bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og fal­að­ist eftir launa­hækkun fyrir ráðið. Bréfið var sent þann 14. sept­em­ber 2017, dag­inn áður en að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk.

Samkvæmt lögum er það ráð­herra sem ákveður laun ráðs­ins hverju sinni.

Í bréfi Jónasar er farið fram á að laun þeirra sem sitja í ráð­inu verði hækkuð um 7,3 pró­sent og að sú hækkun verði aft­ur­virk til 1. ágúst sama ár. Þessi beiðni var rök­studd með því að laun kjara­ráðs hefðu ekki hækkað frá því sum­arið 2016 og að mán­að­ar­leg launa­vísi­tala Hagstofu Íslands hefði hækkað um áður­nefnda pró­sentu­tölu frá því að síð­asta hækkun hafði átt sér stað.

Bréfinu var ekki svarað í rúman tvo og hálfan mánuð. Í milli­tíð­inni fóru fram kosn­ingar og 30. nóv­em­ber 2017 tók rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við valda­taumunum á Íslandi. Í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sett­ist Bjarni Bene­dikts­son. Sex dögum eftir að hann tók við emb­ætti, þann 6. des­em­ber, barst Jónasi svar­bréf frá ráðu­neyt­inu. Í því var honum greint frá að fall­ist hafði verið á til­lögu hans um launa­hækkun kjara­ráðs og að hún myndi gilda frá 1. ágúst 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár