Hagnaður í gegnum fjárfestingarleið nemur 20 milljörðum

Fjár­festar sem nýttu sér fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans snemma árs 2012 hafa fengið rúma 20 millj­arða í hreinan geng­is­hagnað.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa fjár­festar sem tóku þátt í útboðum Seðla­bank­ans árið 2012 hagn­ast um 20 millj­arða vegna hækk­unar á gengi íslensku krón­unnar. Þetta kemur fram í Mark­aðnum í Frétta­blað­inu í dag.

Fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans stóð yfir á árunum 2012 til 2015, en hún var liður rík­is­stjórn­ar­innar í að afnema gjald­eyr­is­höft Íslands. Með leið­inni gátu fjár­festar sem komu með erlendan gjald­eyri til lands­ins keypt krónur í útboðum á allt að 30% afslætti með því skil­yrði að fjár­magnið væri bundið hér í fimm ár.

Fyrstu fjögur útboðin fóru fram á fyrri hluta 2012 og því er þátt­tak­endum þeirra frjálst að leysa út krón­urnar sínar í evrur núna. Krónu­af­slátt­ur­inn og veru­leg geng­is­styrk­ing krón­unnar síð­ustu fimm árin hafa leitt til þess að þátt­tak­endur þess­arra fjög­urra útboða hafi fengið um 20,3 millj­arða króna í hreinum geng­is­hagn­aði. Ávöxtun fjár­fest­ing­anna er ekki með­talin í þess­ari upp­hæð og því má ætla að fjár­fest­arnir hafi grætt enn meira á þátt­töku í útboð­unum.

Samkvæmt heim­ilda­mönnum Frétta­blaðs­ins má veik­ingu krón­unna und­an­farnar vikur að nokkru leyti rekja til gjald­eyr­is­út­streymis þeirra fjár­festa sem tóku þátt í fjár­fest­inga­leið­inni 2012. Ekki er hins vegar vitað hversu há upp­hæðin er sem farið hefur úr landi, en ekki er talið að um veru­legar fjár­hæðir sé að ræða.

Íslenskir þátttakendur í fjárfestingaleið Seðlabankans

Listinn eins og birtist í frétt Markaðarins.

Fyr­ir­tæki og fjár­festarUpphæðir
Íslensk erfða­grein­ing / Kári Stef­áns­son9.267 millj.kr.
Bakka­var­ar­bræður5.150 millj.kr.
Jón S. von Tetzchner4.809 millj.kr.
Actavis3.201 millj.kr.
Samherji2.423 millj.kr.
Arius ehf. / Ólafur Ólafsson1.990 millj.kr.
Elkem1.794 millj.kr.
Norðurál1.506 millj.kr.
Húsa­smiðjan1.421 millj.kr.
Arnar Þórisson og Þórir Kjart­ans­son962 millj.kr.
Eimskip760 millj.kr.
Iceland Incoming ferðir / Benedikt Krist­ins­son718 millj.kr.
Nitur ehf. / Hilmar Þór Krist­ins­son661 millj.kr.
Skúli Mogensen655 millj.kr.
Hjör­leifur Jak­obs­son613 millj.kr.
Iceland Pro Travel / Guð­mundur Kjart­ans­son554 millj.kr.
Jón Ólafsson507 millj.kr.
Róbert Guð­finns­son473 millj.kr.
Kjartan Þór Þórð­ar­son (Saga Film)408 millj.kr.
Jabb á Íslandi387 millj.kr.
Kristinn Aðal­steins­son369 millj.kr.
Pétur Stef­áns­son útgerð­ar­maður322 millj.kr.
Bjarni Ármanns­son300 millj.kr.
Sigurður Arn­gríms­son290 millj.kr.
Aztiq Pharma / Róbert Wessman255 millj.kr.
Karl Wernersson240 millj.kr.
Þor­steinn Sverr­is­son215 millj.kr.
Heiðar Guð­jóns­son209 millj.kr.
Auðunn Már Guð­mundss­son190 millj.kr.
Jónas Hagan Guð­munds­son187 millj.kr.
Rudolph Lamprecht / Friðrik Pálsson183 millj.kr.
PWC173 millj.kr.
Björgvin S. Frið­riks­son161 millj.kr.
Iceland / Jóhannes Jónsson í Bónus160 millj.kr.
Stafnar Invest / Ólafur Björn Ólafsson150 millj.kr.
Ármann Þor­valds­son141 millj.kr.
Jón Helgi Guð­munds­son í Byko139 millj.kr.
Guð­mundur Ásgeirs­son í Nesskip139 millj.kr.
Pétur Björns­son121 millj.kr.
Algalíf111 millj.kr.
Reykja­vík Geothermal ehf.107 millj.kr.
Samtals42.421 millj.kr.

43% þeirrar fjár­hæðar sem kom til lands­ins árið 2012 var frá inn­lendum fjár­festum eða fyr­ir­tækjum. Meðal þeirra var Íslensk erfða­grein­ing og Bakka­vara­bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir. Listann má sjá hér að ofan.

[links]Samkvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins gæti félag í eigu Ólafs Ólafs­sonar og Hjör­leifs Þórs Jak­obs­sonar inn­leyst rúmar 800 millj­ónir í geng­is­hagnað miðað við núver­andi gengi, en þeim verður frjálst að leysa inn hagn­að­inn við lok árs. Þetta kom einnig fram í frétt Kjarnans fyrr í dag.

Kjarninn hefur áður fjallað um fjár­fest­inga­leið­ina, en á mánu­dag­inn var greint frá því að Rík­is­skatt­stjóri hefði til rann­sóknar fjögur mál sem tengd­ust leið­inni, en talið er að margar fjár­fest­ingar hafi komið frá aflands­fé­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingaleiðin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár