Fjögur möguleg skattsvikamál tengd fjárfestingaleiðinni

Skatta­yf­ir­völd beina nú spjótum sínum að fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans og þeim fjár­festum sem tóku þátt í henni sem voru með fjár­magn í skatta­skjólum.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­skatt­stjóri hefur fjögur mál, sem tengj­ast þeim sem fluttu fé til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans, til sér­stakrar skoð­unar.

Frá þessu var greint í fréttum RÚV í gær­kvöldi, en fram kom í frétt um málið, að búist sé við því að upp­lýs­ingar frá Lúx­em­borg og Sviss geri mögu­legt að end­ur­á­kvarða skatt á enn fleiri Íslend­inga sem voru í keyptu skatta­skjóls­gögn­unum.

Í Panama­skjöl­unum, sem rík­is­stjórnin keypti fyrir tveimur árum á 37 millj­ónir króna, var að finna nöfn 21 Íslend­ings sem flutti fé til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans og naut þannig afsláttar af krón­unum sem keyptar voru.

Nú þegar hafa þessi gögn skilað 500 millj­ónum í rík­is­kass­ann og útlit fyrir að upp­hæðin muni hækka enn frekar.

Ekki hefur verið upp­lýst um það, hverjir það voru sem komu með fjár­muni í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans, en bank­inn seg­ist ekki hafa laga­heim­ildir til að upp­lýsa um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár