Bólusettir með tengsl á Íslandi verði skimaðir á landamærum

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að hefja skimun bólu­settra ferða­manna með tengsl við Ísland á landa­mær­unum. Aðgerð­irnar taka gildi 16. ágúst. Engar ákvarð­anir voru teknar um frek­ari eða breyttar aðgerðir inn­an­lands.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Skjáskot: Vísir

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag að ákveðið hefði verið, að til­lögu sótt­varna­læknis, að hefja skimun bólu­settra ferða­manna sem eru með tengsl hér á landi á landa­mær­unum.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir lagði þetta til í minn­is­blaði fyrir tveimur vikum. Sú til­laga hefur verið útfærð frekar að sögn Katrínar og mun skyldu­skimun ná til allra þeirra sem eru með tengsl á Íslandi, ekki aðeins þeirra sem hafa íslenska kenni­tölu, heldur líka þeirra „sem hyggja hér á langvar­andi dvöl eða ætla að sækja hér vinnu,“ sagði Katrín. Í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um ákvörð­un­ina eru taldir upp fjórir hópar sem falla undir þá skil­grein­ingu að hafa tengsl við Ísland:

  • Íslenskir rík­is­borg­arar
  • Ein­stak­lingar búsettir á Íslandi
  • Ein­stak­lingar með atvinnu­leyfi á Íslandi
  • Umsækj­endur um atvinnu­leyfi eða alþjóð­lega vernd á Íslandi

Ákvörð­unin felur í sér að þessir hópir verður skyld­aður til að mæta í COVID-próf innan 48 klukku­stunda frá komu til lands­ins. Þeir þurfa hins vegar ekki að sæta sótt­kví þar til nið­ur­staða úr sýna­töku liggur fyrir. Heimilt verður að sekta þá ein­stak­linga sem ekki fara í sýna­töku innan til­tek­ins tíma.

Aðgerðin mun ekki taka gildi fyrr en 16. ágúst eða eftir tíu daga.

Engar ákvarð­anir voru teknar um breyttar aðgerðir inn­an­lands á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði eftir fund­inn að rík­is­stjórnin hefði rætt sam­komu­tak­mark­anir inn­an­lands „með almennum hætti“. Núver­andi tak­mark­anir væru í gildi til 13. ágúst „og við þurfum þegar þar að kemur að hafa skýra sýn á hvað tekur við næst,“ sagði Svandís. „Við sjáum það á öllum gögnum sem við erum með núna að það sem er mik­il­væg­ast að ráð­ast í hér og nú er að styrkja heil­brigð­is­kerfið okkar. Að styrkja þetta bráða­við­bragð, þennan mögu­leika Land­spít­al­ans að standa undir þessu verk­efni, að þétta varnir á landa­mærum og að bæta bólu­setn­ing­ar­stöð­una.“

Katrín sagði að þessi þrjú atriði; betri vörn á landa­mærum, styrk­ing heil­brigð­is­kerf­is­ins og bætt bólu­setn­ing, væru þau sem hefðu komið fram „hjá öllum þessum sér­fræð­ingum sem við höfum verið að funda með í vik­unni“.

Minnisblað með aðgerðum

Heil­brigð­is­ráð­herra kynnti á fund­inum til­lögur sínar um hvernig tryggja megi að Land­spít­al­inn „geti staðið undir sínu hlut­verki í þess­ari bylgju,“ eins og bæði Katrín og Svandís orð­uðu það í við­tölum eftir fund­inn.

Svandís sagð­ist hafa lagt fyrir rík­is­stjórn­ar­fund­inn minn­is­blað með nokkrum aðgerðum til að styðja við Land­spít­al­ann. „Það eru aðgerðir sem bæði lúta beint að starf­semi Land­spít­al­ans en ekki síður í lands­lagi heil­brigð­is­þjón­ust­unnar í heild.“ Til­lög­urnar lúti m.a. að því að styðja við öldr­un­ar­þjón­ust­una svo hraða megi útskriftum af Land­spít­al­anum. Meðal til­lagna var einnig að setja upp sér­staka COVID-ein­ingu á Land­spít­al­anum til lengri tíma.

27 þús­und manns sem fengið hafa boð í bólu­setn­ingu hafa ekki þegið það. Á því kunna að sögn Katrínar að vera ýmsar skýr­ingar, m.a. heilsu­fars­legar. „En við viljum ná betur til þessa hóps, fá hann í bólu­setn­ingu.“

Örv­un­ar­bólu­setn­ing fólk sem fékk Janssen-bólu­efnið er hafin en að auki sagði Katrín að tekin hefði verið ákvörðun um að hefja örv­un­ar­bólu­setn­ingu hjá öldruðum og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. „Þetta verður ráð­ist í í þessum mán­uði.“

90 prósent greindra með íslenska kennitölu

Í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um ákvörð­un­ina segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti sótt­varna­læknis hafi um 90 pró­sent þeirra ein­stak­linga sem greinst hafa með COVID-19 frá 1. júlí íslenska kenni­tölu. „Mik­il­vægt er að tryggja varnir gegn nýjum afbrigðum veirunnar og því er þessi ákvörðun tekin. Áfram verður gerð krafa um fram­vísun nei­kvæðs COVID-prófs á landa­mærum en tvö­föld sýna­taka með nokk­urra daga milli­bili hefur reynst vel í far­aldr­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár