Ríkissjóður lánar Íslandspósti 500 milljónir

Rík­is­sjóður hefur veitt Íslands­pósti 500 millj­óna króna lán til allt að 12 mán­aða til að styrkja lausa­fjár­stöðu félags­ins og standa undir skuld­bind­ingum næstu mán­uð­ina og fyr­ir­sjá­an­legum tap­rekstri á þessu ári, meðal ann­ars vegna mik­illar fækk­unar bréfa.

Rík­is­sjóður hefur veitt Íslands­pósti 500 millj­óna króna lán til allt að 12 mán­aða til að styrkja lausa­fjár­stöðu félags­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

[links]„Íslands­póstur þarf á fjár­magni að halda til að við­halda rekstr­ar­fjár­munum sem og til að styrkja lausa­fjár­stöðu félags­ins. Þrátt fyrir aukna lán­töku und­an­farin ár er þörf á meira lausafé, allt að 500 millj­ónum, til að standa undir skuld­bind­ingum næstu mán­uð­ina og fyr­ir­sjá­an­legum tap­rekstri á yfir­stand­andi ári, meðal ann­ars vegna mik­illar fækk­unar bréfa, og hefur félagið leitað til rík­is­ins um fyr­ir­greiðslu vegna þess,“ segir í til­kynn­ing­unni. Þannig þurfi að móta fram­tíð­ar­stefnu og áætlun um hvernig haga beri póst­þjón­ustu þannig að hún verði sjálf­bær. Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið sem ráðu­neyti póst­mála vinnur að end­ur­skoðun gild­andi lag­ara­mma til að tryggja góða póst­þjón­ustu um allt land.

Íslands­póstur er að fullu í eigu rík­is­ins og hefur félagið rekstr­ar­leyfi frá Póst- og fjar­skipta­stofnun sem kveður á um að það fari með einka­rétt rík­is­ins til að sinna póst­þjón­ustu. Þar er átt við póst­send­ingar bréfa allt að 50 grömmum, auk þess sem félagið sinnir alþjón­ustu fyrir hönd rík­is­ins til að tryggja öllum lands­mönnum aðgang að póst­þjón­ustu með skil­greindum gæðum og á við­ráð­an­legu verði. Nær alþjón­ustu­skyldan til send­inga allt að 20 kg. Í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að lán­veit­ingin tryggi tíma­bundið mögu­leika félags­ins til að standa undir þessum skyldum.

„Und­an­far­inn ára­tug hefur bréfa­send­ingum farið ört fækk­andi um allan heim. Á sama tíma hefur net­verslun rutt sér til rúms og pakka­send­ingum fjölgað. Tekjur af bréfa­send­ingum vegna alþjón­ustu hafa dreg­ist saman á sama tíma og dreifi­kerfið hefur stækkað með fjölgun íbúða og fyr­ir­tækja, en auknar tekjur af pakka­send­ingum hafa ekki dugað til að vega upp á móti sam­drætti í bréfa­send­ingum. Þessi þróun hefur haft nei­kvæð áhrif á efna­hag og lausa­fjár­stöðu félags­ins. Þótt eig­in­fjár­staða sé enn sterk þarf að styrkja rekstr­ar­grund­völl félags­ins til fram­tíðar eigi það að geta gegnt hlut­verki sínu. Mörg nágranna­ríki hafa glímt við sam­bæri­lega þróun og eru nýleg dæmi í Evrópu um að póst­fyr­ir­tæki í rík­i­s­eigu hafi fengið hluta­fjár­aukn­ingu, lána­fyr­ir­greiðslu eða beina rekstr­ar­styrki til að bregð­ast við áhrifum þess­arar þró­unar. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár