Karolina Fund: Huldufólkið gefur röddinni tóninn

Olèna er söngv­ari, laga­höf­undur og fram­leið­andi indí-raf­tón­listar. Upp­runa­lega er Olèna frá Frakk­landi en hefur búið í Reykja­vík síð­ustu 10 ár. Olèna til­heyrir þeim parti íslensks sam­fé­lags sem tengir sterkt við huldu­fólk og hún segir að þau gefi henni þennan sér­staka hljóm í rödd­inni, en það er óró­legur og við­kvæmur tónn sem virð­ist koma langt að handan, nær heimi drauma en veru­leika. Í gegnum raf­tón­list sína seg­ist hún fá útrás fyrir takti og tónum hinnar elektrónísku senu. Púls hins hríf­andi stefs sem keyrir áfram á til­finn­ing­unni, krafti nátt­úr­unnar og slætti hjart­ans. Þar sem rödd og hljóð­færi mæt­ast, og sam­ein­ast eða rekast á líkt og elskendur sem ná ekki að tala saman en tengj­ast í gegnum óminn. Kjarninn hitti Olènu og tók hana tali.

Hvers vegna og hvenær komst þú fyrst að tón­list?

Ég hef alltaf sungið, svo lengi sem ég man eftir mér, og ég sé mig fyrir mér fimm ára að sveifla mér í rólu syngj­andi. Ég var syngj­andi alltaf, all­staðar!

Ég kem úr franska sveit og það að spila tón­list, þ.e. ef það væri ekki hluti af venju­legu námi í barna­skóla, var mjög erfitt og dýrt fyrir venju­lega fjöl­skyldu að borga. Svo ég byrj­aði fikta mig áfram með hljóð­færi afa míns og ömmu í heim­sóknum okkar til þeirra. En því miður þurfti ég að horfa uppá hljóð­færin þeirra smám saman yfir­gefa heim­ili, til sölu, píanó, fiðlur og fleira. Það var ekki fyrr en ég flutti til stóru systur minnar og fór í nám í París, sem ég fór að gera til­raunir til að taka upp rödd­ina mína. Þegar ég gekk í lista­skól­ann í Beaux hafði ég aðgang að tölvum og upp­götv­aði alla mögu­leik­ana. Það opn­aði leið­ina. Í sam­tíma­list leyfði ég mér að prufa mig áfram með tón­list­ina. Fyrsta opin­bera fram­koma mín var í lista­safni, skipu­lögð af lista­mann­inum Nathalie Talec, ég var þá 21 árs.

Hvað er Domestic Migration?

Fyrsta platan mín Hurt by Heart. Hún var safn af ungra augna­blika lífs míns. Mjög per­sónu­leg, eins og dag­bók. Platan var ein­göngu unnin af mér, frá byrjun til enda. Samning lag­anna, upp­tök­urnar, fram­leiðslan, hljóð­blöndun og fjár­mögnun. Domestic Migration er tit­ill þess­arar plötu. Hann segir til um mann­legu hreyf­ing­una. Domestic merkir heima eða heim­ili, heima­völlur. Migration merkir það flakk sem t.d. fugl­arnir fara á og þurfa að gera til að lifa af. Það er blanda af þessu sem ég tengi við við gerð plöt­unnar. Ég er frönsk, for­eldrar mínir eru franskir, for­eldrar föður míns voru frá Úkraínu og for­eldrar móður minnar voru frá hinni frönsku Alsír. Sú blanda er minn upp­runi og saga. Ég hef búið á Íslandi 1/3 af minni ævi og það er enn einn þátt­ur­inn í þess­ari blöndun minni. Einn einn part­ur­inn í þessu ferli mínu er þetta hóp­fjár­mögn­un­ar­verk­efni sem ég er með á Karolina Fund og fá með því fjöld­ann til að hjálpa til við efn­is­lega gerð þess­arar plötu. Allir geta komið að því að gera plöt­una að veru­leika. Það gefur mér einnig meiri fjar­lægð við hana og gott að geta að vissu leyti sleppt henni út í heim­inn. Platan er frá mínu sjón­ar­horni, anda­giftin kemur frá fjöl­skyldu minni og upp­runa, en raun­hug­myndin er sam­talið milli okkar allra. Það er því mín ósk að fá fleiri til að koma að gerð plöt­unnar.

Kemur þú opin­ber­lega fram? Finnst þér gaman að koma fram?

Já, algjör­lega það er frá­bært. En mér finnst erfitt að koma fram, því að mér finnst erfitt spila og syngja á sama tíma og af því að ég er sjálf­lærð. Það var því veru­lega gott að fá hjálp frá Fannari (Asonat / Kidsune / Plastik Joy) & Herði (M-band) sem spila stundum með mér. Mér finnst líka dýpk­andi að vera með mynd­banda­sýn­ingu þegar ég flyt tón­list. Ljós og myndir skapa dreymið and­rúms­loft.

Ég fór í tón­leika­ferð til Japans á síð­asta ári. Ég kom ein fram og reyndi að nota tölv­una lítið við flutn­ing­inn. Þetta skap­aði til­finn­inga­þrungið og per­sónu­legt and­rúms­loft sem áheyr­endur voru mjög ánægðir með. Mér fannst erfitt að geta ekki gefið þeim raf­ræna tón­leika en það kom ekki að sök. Draumur minn er að flytja tón­list í kirkju eða á stað með sam­bæri­legan hljóm­burð.

Verk­efnið á Karolina Fund má finna hér.

Fleiri tenglar: Facebook - Vefsíða - Bandcamp - Soundcloud

Tón­leikar í Japan: 

https://www.youtube.com/watch?v=XqGF0affWFY 

https://www.youtube.com/watch?v=rNR_jdrxHq4

https://www.youtube.com/watch?v=SirkOghW6po

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár