Endurskoða reglur er varða komu ferðamanna á skemmtiferðaskipum

Sótt­varna­læknir segir að verið sé að end­ur­skoða reglur varð­andi komu ferða­manna á skemmti­ferða­skipum hingað til lands.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Von er á næsta skemmti­ferða­skipi til lands­ins þann 1. maí næst­kom­andi. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á dag­legum blaða­manna­fundi í dag. Hann segir það þó ekki vera ljóst hvort skipið muni koma til lands­ins eða hvernig því verði háttað nákvæm­lega.

„En ég held að það sé algjör­lega ljóst að við þurfum að end­ur­skoða þessar reglur sem hafa verið í gangi um komu ferða­manna á skemmti­ferða­skipum. Við þurfum að setja miklu strang­ari reglur ef við ætlum að hafa sam­ræmi í því sem við erum að gera, bæði með strangar tak­mark­anir hér inn­an­lands þá þurfum við að vera með það líka fyrir far­þega á svona stórum skipum og reyndar túrista líka almennt,“ sagði Þórólfur.

Hann sagði að öll þessi mál væru í end­ur­skoðun og myndu þau koma með nið­ur­stöður úr þeirri skoðun fljót­lega.

Vilja ekki fá faraldurinn í bakið aftur

Þórólfur sagði jafn­framt mikla vinnu vera framundan að skipu­leggja hvað ger­ist eftir 4. maí þegar núver­andi tak­mörk­unum linnir. Það yrði verk að vinna „en eins og áður hefur verið sagt þá þarf að aflétta tak­mörk­unum mjög hægt ef við eigum ekki að fá far­ald­ur­inn í bakið eins og virð­ist vera að ger­ast sums staðar erlendis.“ Hann benti á að á sumum stöðum í heim­inum virt­ist vera að blossa upp sýk­ingar aftur.

Metdagur í sýnatökum

Fram kom í fréttum fyrr í dag að stað­fest smit af kór­ónu­veirunni væru orðin 1.562 hér á landi. Í gær voru þau 1.486 og hefur þeim því fjölgað um 76 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 5.262 manns í sótt­kví og hefur þeim fækkað frá því í gær er fjöld­inn var 5.511. Alls hafa 12.467 ­manns lokið sótt­kví.

Í dag eru 1.096 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær voru þeir 1.054. Alls hafa 460 ­náð bata.

Tæp­lega ­sex­tíu ný smit greindust í þeim 867 sýnum sem tekin voru á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær. Af 1.619 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfða­grein­ingu fund­ust fimmtán ný smit. Alls hafa 27.880 sýni verið tekin hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár