Segist „innilega ósammála“ Kristrúnu um nýja stjórnarskrá og Evrópusambandsmál

Kristrún Frosta­dóttir, sem vill verða for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur sagt að hún vilji leggja áherslu á mál sem flokk­ur­inn geti skilað í höfn. Það sé ekki, sem stendur, þing­meiri­hluti fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu eða sam­þykkt nýrrar stjórn­ar­skrár.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að hún sé „inni­lega ósam­mála“ þeirri línu sem Kristrún Frosta­dóttir, for­manns­fram­bjóð­andi i flokknum, hefur lagt varð­andi nýju stjórn­ar­skrána og aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. „Við verðum þá bara að vera sam­mála um að vera inni­lega ósam­mála um þessi tvö grund­vall­ar­stefnu­mál Sam­fylk­ing­ar­innar. Stefnan er svo samin af gras­rót og rædd og sam­þykkt á lands­fundi svo við skulum sjá hvort flokks­fólki hefur snú­ist hugur.“

Þetta kemur fram í ummælum við færslu Helgu Völu á Facebook sem birt var í gær. Með færsl­unni deildi Helga Vala frétt um að þing­menn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata hefðu lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin um hvort Íslandi ætti að fara í við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Bæði Helga Vala og Kristrún eru á meðal flutn­ings­manna til­lög­unnar.

Ekki þingmeirihluti fyrir nýju stjórnarskránni

Kristrún sagði í við­tali við Kjarnann um liðna helgi að raun­veru­leik­inn væri sá að það sé ekki meiri­hluti á þingi fyrir því að sam­þykkja nýju stjórn­ar­skránna. Hún sagð­ist hafa verið alveg hrein­skilin með það að hún vilji ekki fara í veg­ferð á næsta kjör­tíma­bili sem hún sjái ekki fram á að geta skilað í höfn. Kristrún sagði að það hafi líka verið skiptar skoð­anir um hvaða hluta stjórn­ar­skrár­innar það eigi að end­ur­skoða. „Ég vil að við leggjum áherslu á mál sem við vitum að við getum skilað af okk­ur. Það þýðir ekki að það sé ekki ákveðin rétt­læt­is­á­kvæði þarna sem á að tala fyrir og að það eigi að koma mál­inu í ein­hvers­konar far­veg. En ég vil ekki senda þau skila­boð út til almenn­ings að við getum ekki kom­ist áfram í kjarna-vel­ferð­ar­málum nema að við fáum nýja stjórn­ar­skrá.“

[adspot]Í stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar er tekið fram að flokk­ur­inn vilji að Alþingi sam­þykki breyt­ingar á stjórnar­skrá sem byggj­ast á tillögum stjórnlag­aráðs og þeim þjóðar­vilja sem kom fram í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni þann 20. októ­ber 2012.

Óþolinmóðari en Kristrún

Í sama við­tali ræddi Kristrún Evr­ópu­sam­bands­mál og sagði að stefna Sam­fylk­ing­ar­innar þar væri alveg skýr og yrði það áfram. „Við höfum verið fylgj­andi Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Ég er sjálf stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­bands­ins. Ég er hins vegar líka með­vituð um það að eins og er þá er ekki þing­meiri­hluti fyrir mál­inu þótt kann­anir séu að fara upp á við varð­andi við­horf þjóð­ar­innar gagn­vart aðild. Fyrsta skrefið fyrir mér er að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að fara í þetta verk­efni. Leggja aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og taka svo stöð­una í kjöl­far­ið.“

[links]Innganga í Evr­ópu­sam­bandið er einnig á meðal mála sem til­tekin eru í sam­þykktri stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar. Líkt og áður sagði eru bæði Helga Vala og Kristrún, ásamt öllum öðrum þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar, flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög um að leggja aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Í umræð­unum á Facebook-þræði Helgu Völu útskýrir hún að mun­ur­inn á afstöðu hennar og Kristrúnar felist aðal­lega í því að hún sé óþol­in­móð­ari en Kristrún. „Tel að við höfum beðið nógu lengi nú þegar. Klárum málið!“

Nýr for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar verður kos­inn á lands­fundi í næsta mán­uði. Sem stendur er Kristrún eini ein­stak­ling­ur­inn sem hefur til­kynnt um fram­boð, en Logi Ein­ars­son, núver­andi for­maður, ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nýja stjórnarskráin

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár