Mögulegt að skýrsla Vigdísar og Guðlaugs fari fyrir dómstóla

Jóhannes Karl Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður segir mjög grófar æru­meið­ingar í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar um einka­væð­ingu bank­anna. Það sé grafal­var­legt að skýrslan sé stimpluð Alþingi og til greina komi að fara með málið fyrir dóm­stóla.

Formaður og varaformaður fjárlaganefndar, sem kynntu skýrsluna um einkavæðingu bankanna hinna síðari fyrir viku síðan.
Formaður og vara­for­maður fjár­laga­nefndar, sem kynntu skýrsl­una um einka­væð­ingu bank­anna hinna síð­ari fyrir viku síðan. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jóhannes Karl Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, sem kom að samn­ingum við erlenda kröfu­hafa föllnu bank­anna, segir það koma til greina að höfða mál vegna skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar, „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“. Í skýrsl­unni séu að finna afar grófar æru­meið­ingar á hendur þeim sem stóðu að samn­ing­unum. Þetta kom fram í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í gær.

Skýrslan var kynnt af for­manni og vara­for­manni fjár­laga­nefndar Alþingis, Vigdísi Hauks­dóttur og Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, fyrir viku síðan. Þau sögðu skýrsl­una vera unna af meiri­hluta fjár­laga­nefndar en neit­uðu að gefa upp hverjir nákvæm­lega hefðu komið að gerð skýrsl­unnar. Skýrslan er að miklu leyti til sam­hljóða ásök­unum sem Víglundur Þor­steins­son hefur haft uppi um það hvernig staðið var að samn­ingum við kröfu­haf­ana um afdrif föllnu bank­anna.

„Ég vil segja um það að þetta er auð­vitað ekk­ert nýtt, þessir palla­dómar sem þarna eru felldir, en það sem er nýtt í því að þetta er stimplað með stimpli frá einni virðu­leg­ustu stofnun sam­fé­lags­ins, sem er fjár­laga­nefnd Alþingis,“ sagði Jóhannes Karl um skýrsl­una. Hann hafi hváð þegar til­kynntur var blaða­manna­fundur og gefin út frétta­til­kynn­ing „þar sem aðal­á­hersla er lögð á afar grófar æru­meið­ingar á hendur þeim sem stóðu að þessum samn­ingum, það er talað um samn­inga­fólk og samn­inga­menn, og þess vegna veitti ég þessu athygli og fór að kynna mér það hvernig þetta hafði borið að.“ Hann seg­ist hafa haft sam­band við nefnd­ar­menn og óskað eftir því að þeir gerðu hreint fyrir sínum dyrum um til­urð skýrsl­unnar.

„Ég tel hins vegar fyllsta til­efni til þess, af því að það er nú verið að tala um virð­ingu Alþingis og virð­ingu fyrir því að leik­reglur séu virtar, að þetta mál verði skoðað algjör­lega sér­stak­lega. Hvernig þetta gat gerst, að þetta plagg kæmi út með öllum þeim stað­reynda­villum sem þar er að finna, með öllum þeim ómak­legu palla­dómum sem þar eru felldir fyr­ir­fram.“

Jóhannes Karl segir að þing­menn séu ekki ábyrgð­ar­lausir gagn­vart því sem þeir láti frá sér í nafni þings­ins. Kerfið á Íslandi sé þannig að það sé þrí­skipt vald. „Við höfum dóm­stóla sem hafa eft­ir­lit með hinum, og það getur vel verið, svona þegar fleiri kurl koma til grafar um það hvernig þetta skjal varð til, að það sé rétt að láta dóm­stóla skera úr um það hvort þetta sé rétt eða rangt eða hvort þarna hafi menn verið beittir rang­indum í nafni Alþingis.“

Hann sagði jafn­framt að búið væri að óska eftir upp­lýs­ingum um það „hvernig þetta gat gerst að það er kynnt álit þing­nefndar áður en málið kemur til umfjöll­unar í nefnd­inni, og það er mjög alvar­legt mál og það getur vel verið að það séu engir aðrir til að svara til ábyrgðar nema þeir ein­stak­lingar sem að því standa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár