Gefa út „fótboltaspil“ með verkafólki sem látist hefur við undirbúninginn í Katar

Þúsunda far­ands­verka­manna er minnst í átaki sænsku rann­sókn­ar­blaða­manna­sam­tak­anna Blankspot til að vekja athygli á mann­lega kostn­aðnum við Heims­meist­ara­mótið sem hefst í nóv­em­ber.

Það sem er sérstakt við spjöld þessi er að í stað þess að á þeim séu myndir og upplýsingar um landsliðsmenn í knattspyrnu eru þar að finna sögur verkafólks sem látist hafa við undirbúning mótsins.
Það sem er sér­stakt við spjöld þessi er að í stað þess að á þeim séu myndir og upp­lýs­ingar um lands­liðs­menn í knatt­spyrnu eru þar að finna sögur verka­fólks sem lát­ist hafa við und­ir­bún­ing móts­ins. Mynd: Skjáskot/Blankspot

Sæns sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna hafa í sam­starfi við suður-asíska kollega sína hafið útgáfu spjalda áþekka þeim sem tíðkast hefur að knatt­spyrnu­unn­endur safni af knatt­spyrnu­leik­mönnum. Ástæða útgáfu spjald­anna er sú að Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu í Qatar er framundan, en það sem er sér­stakt við spjöld þessi er að í stað þess að á þeim séu myndir og upp­lýs­ingar um lands­liðs­menn í knatt­spyrnu eru þar að finna sögur verka­fólks sem lát­ist hafa við und­ir­bún­ing móts­ins.

Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið til­kynnti árið 2010 að Katar fengi að halda Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu árið 2022, en fjöldi gagna sem birt hafa verið frá því að valið var til­kynnt gefa til kynna að spill­ing innan sam­bands­ins hafi orðið til þess að Katar varð fyrir val­inu. Engu að síður hófst Katar handa við að reisa inn­viði til þess að halda mótið, þar á meðal átta knatt­spyrnu­leik­vanga, sem ljóst er að verða aldrei aftur not­aðir eftir að mót­inu lýkur. Um er að ræða dýrasta heims­meist­ara­mót sem haldið hefur verið.

Stærsti kostn­að­ur­inn er þó lík­lega þeirra þús­unda far­and­verka­manna sem greitt hafa með lífi sínu, og fjöl­skyldna þeirra, en í febr­úar á síð­asta ári opin­ber­aði The Guardian að hið minnsta 6.500 far­and­verka­menn frá Indlandi, Pakistan, Nepal, Bangla­dess og Sri Lanka hefðu látið lífið í Katar síðan 2010, en lík­legt er að heild­ar­fjöldi þeirra sem lát­ist hafa sé mun hærri þar sem töl­urnar eru ein­ungis frá þessum fimm löndum og inni­halda ekki upp­lýs­ingar um fjölda lát­inna frá Fil­ips­eyjum eða Kenía, þaðan sem fjöldi verka­manna í Katar kemur einnig.

Fjölmörg mann­rétt­inda­sam­tök hafa vakið athygli á slæmum aðstæðum far­and­verka­fólks í Katar, þar sem það vinnur tímunum saman í miklum hita. Nú hafa sænsku rann­sókn­ar­blaða­manna­sam­tökin Blankspot hafið útgáfu eins konar fót­bolta­spila til þess að vekja athygli á fólk­inu á bak­við gríð­ar­háar tölur lát­inna við und­ir­bún­ing móts­ins með því að taka við­töl við fjöl­skyldur hinna látnu.

33 spil voru opin­beruð á fyrsta degi átaks­ins, sem nefn­ist Cards of Qatar, og verður nýtt spil gefið út á hverjum degi þangað til mótið hefst þann 21. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár