Spyr hvort stjórnendur Icelandair séu helsta fyrirstaðan fyrir því að fyrirtækinu verði bjargað

Formaður VR seg­ist geta full­yrt að líf­eyr­is­sjóð­irnir opni „ekki buddur sínar fyrir félag sem ætlar starfs­fólki að afsala sér grund­vall­ar­rétt­indum“.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, seg­ist hafa átt mörg sam­töl við stjórn­ar­menn í líf­eyr­is­sjóð­unum vegna stöðu Icelandair og geta stað­fest að aldrei hafi komið krafa um það frá stjórn félags­ins að end­ur­semja þurfi við starfs­fólk félagsis svo það verði „sam­keppn­is­hæft“ við önnur flug­fé­lög. Þetta segir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag og spyr enn fremur hvort það geti verið að stjórn­endur félags­ins séu helsta fyr­ir­staðan fyrir því að Icelandair verði bjargað.

Hann seg­ist þó geta full­yrt að líf­eyr­is­sjóð­irnir opni ekki buddur sínar fyrir félag sem ætlar starfs­fólki að afsala sér grund­vall­ar­rétt­indum.

[adspot]

„Það má vera að það sé nið­ur­lægj­andi fyrir stjórn­endur félags­ins að halda hlut­hafa­fund án þess að lang­tíma­kjara­samn­ingar liggja fyrir en segir það þá ekki allt sem segja þarf um stjórn­endur?

Sama stjórn og stjórn­endur sem ráku félagið með bull­andi tapi á mesta góð­ær­is­tíma flug­sög­unnar.

Sama stjórn og stjórn­endur sem stigið hafa fleiri feil­spor en almennt þekk­ist í fyr­ir­tækja­rekstri og má þar nefna breyt­ingar á leiða­kerfi, millj­arða fram­úr­keyrslu við inn­leið­ingu tölvu­kerfa og innri breyt­inga.

Sama stjórn og stjórn­endur sem bera ábyrgð á millj­arða skandal í kringum Lind­ar­vatn.

Sama stjórn og stjórn­endur og kusu að standa með samn­ingum um flug­vélar sem fáir þora að fljúga með.

Sama stjórn og stjórn­endur og vilja nú með öllum ráðum velta for­tíð­ar­vanda félags­ins yfir á líf­eyr­is­sjóði og skatt­greið­endur í nafni þess að vanda­málið sé starfs­fólkið þegar málið snýst um það sem fáir virð­ast þora að segja. Að halda núver­andi stjórn­enda­klíku við völd í einu af stærstu og mik­il­væg­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins.

Sama stjórn og stjórn­endur og telja sig geta sann­fært fjár­festa með trúð­verð­ugum áætl­unum, en munu svo vafa­laust kenna starfs­fólk­inu um ef illa fer og ekki tekst að fjár­magna félagið,“ skrifar hann.

Icelandair verður bjargað með einhverjum hætti

Ragnar Þór seg­ist enn fremur vera orð­inn þreyttur á því að alltaf skuli starfs­fólkið vera aðal­vanda­málið þegar illa gangi þegar annað sé aug­ljóst. „Ég veit til dæmis að nokkrir stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóða hafa velt því fyrir sér hvort ekki þurfi að setja það sem skil­yrði að stjórn og stjórn­endum verði skipt út ef skoða eigi þátt­töku í hluta­fjár­út­boði“

Hann telur að flestum sé það ljóst að Icelandair verði bjargað með ein­hverjum hætti og að mögu­lega sé það ekki versti kost­ur­inn verði það gert með sama hætti og með bank­ana eftir hrun. Það mætti jafn­vel skoða að starfs­fólkið tæki félagið yfir með stuðn­ingi rík­is­ins og líf­eyr­is­sjóða.

„En hvernig sem það verður gert munum við tryggja að rétt­indi og samn­ingar við starfs­fólkið verði virt svo sómi sé af.

Vil að lokum senda starfs­fólki Icelandair bar­áttu­kveðjur. Þið eruð lausnin ekki vanda­málið,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár