Líftæknilyfshliðstæða söluhæsta lyfs heims í þróun hjá Alvotech

Alvotech hefur nú hafið klínískar rann­sóknir á sínu fyrsta líf­tækni­lyf. Lyfið er líf­tækni­lyfs­hlið­stæða lyfs­ins Humira sem er sölu­hæsta lyf heims. Lyfið hefur reynst árang­urs­ríkt við með­ferð á ýmsum sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum.

Róbert Wessmen
Róbert Wessmen Mynd: Aðsend mynd

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Alvotech hefur nú hafið klínískar rann­sóknir á sínu fyrsta líf­tækni­lyfi. Um er að ræða líf­tækni­lyfs­hlið­stæðu lyfs­ins Humira sem er í dag sölu­hæsta lyf heims og selst fyrir um 20 millj­arða Banda­ríkja­dala á ári, um 2.500 millj­arðar króna. Um 400 þátt­tak­endur munu taka þátt í rann­sókn­inni sem á sér stað á 30 stöðum vítt og breytt um Evrópu.

Stór áfangi að hefja klínískar rannsóknir.

Róbert Wessman, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður Alvotech, segir það stóran áfanga fyrir fyr­ir­tækið að hefja klínískar rann­sóknir. Lyfið hefur reynst árang­urs­ríkt við með­ferð á ýmsum sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum, eins og liða­gigt og psori­asis. Á Íslandi nemur árleg sala lyfs­ins um 355 millj­ónum króna.

Alvotech mun fram­leiða og selja lyfið með sam­starfs­að­ilum sínum á öllum lyfja­mörk­uðum heims. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að með til­komu lyfs­ins skap­ist umtals­verður sparn­aður fyrir heil­brigð­is­yf­ir­völd um allan heim. Jafn­framt hafi rann­sóknir sýnt að þegar líf­tækni­hlið­stæðu­lyf koma á markað þá eykst aðgengi sjúk­linga að nýjum líf­tækni­lyfjum. Alvotech gerir ráð fyrir að mark­aðs­setn­ing lyfs­ins hefj­ist fljót­lega eftir að klínískum rann­sóknum lýkur.

Alvotech verði leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfja á næstu árum

Í dag starfa um 250 vís­inda­menn hjá Alvotech á Íslandi, í Sviss og í Þýska­landi. Gert er ráð fyrir að ríf­lega 100 vís­inda­menn verði ráðnir á Íslandi til starfa í hátækni­setri fyr­ir­tæk­is­ins á næstu 12 mán­uðum. Greint er frá því í til­kynn­ing­unni að Alvotech hafi nú þegar fengið fram­leiðslu­leyfi fyrir lyf sín. Auk þess hafi fyr­ir­tækið tryggt sér nýlega beint aðgengi að tveimur af stærstu lyfja­mörk­uðum heims, Kína og Japan, með mik­il­vægum sam­starfs­samn­ingum. Í Kína er hafin upp­bygg­ing á nýrri lyfja­verk­smiðju, sem verður að helm­ings­hluta í eigu Alvotech. Í Japan hefur verið und­ir­rit­aður mik­il­vægur sam­starfs­samn­ingur um sölu og dreif­ingu lyfja fyr­ir­tæk­is­ins við Fuji Pharma, sem jafn­framt eru orðnir hlut­hafar í Alvotech.

Róbert segir í til­kynn­ing­unni að fjöl­margir áfangar hafi náðst frá því að Alvotech hóf und­ir­bún­ing á þróun og fram­leiðslu líf­tækni­lyfja fyrir átta árum. „ Markmið okkar er að hátækni­setur fyr­ir­tæk­is­ins verði leið­andi á heims­vísu í þróun og fram­leiðslu líf­tækni­lyfja og að aðgengi sjúk­linga að hágæða lyfjum auk­ist enn frekar. Okkur miðar vel áfram og þró­un­ar­starf Alvotech er gengur sam­kvæmt vænt­ingum og fyr­ir­tækið er vel fjár­magnað til frek­ari vaxtar á næstum árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lyfjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár