Samkeppniseftirlitið felst á kaup Ardian á Mílu – „Verulegar breytingar“ á heildsölusamningi

„Innkoma sjálf­stæðs inn­viða­fjár­festis inn á íslenskan markað og rof á eigna­tengslum Símans og Mílu er til þess fallið að treysta sam­keppni ef vel er að málum staðið,“ segir for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur fallsit á kaup Ardian á Mílu. Sátt sam­runa­að­ila var und­ir­rituð í dag. Í henni felst að sam­runa­að­ilar hafa gert „veru­legar breyt­ingar“ á heild­sölu­samn­ingi Símans og Mílu. Einnig er Míla skuld­bundin til að lúta til­teknum skil­yrðum í starf­semi sinni. Samhliða hefur Síminn und­ir­ritað yfir­lýs­ingu þar sem fyr­ir­tækið ábyrgist til­tekna þætti í starf­semi sinni. Í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu segir að með þessum skil­yrðum sé „sam­keppn­is­hindr­unum rutt úr vegi“ og „frjór jarð­vegur skap­aður fyrir öfl­uga sam­keppni á fjar­skipta­mark­aði – við­skipta­vinum og neyt­endum til hags­bóta.“

Haft er eftir Páli Gunnari Pálssyni, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í til­kynn­ing­unni að Sam­keppni í upp­bygg­ingu og rekstri inn­viða hér á landi hafi skilað Íslandi „í fremstu röð“ á þessu sviði. „Á þeim umbreyt­inga­tímum sem framundan eru mun það hafa úrslita­þýð­ingu fyrir sam­keppn­is­hæfni Íslands að stjórn­völd og atvinnu­líf hlúi að sam­keppni á þessu sviði.

Innkoma sjálf­stæðs inn­viða­fjár­festis inn á íslenskan markað og rof á eigna­tengslum Símans og Mílu er til þess fallið að treysta sam­keppni ef vel er að málum staðið. Til þess að svo megi verða þurfa for­sendur og skil­málar við­skipt­anna að styðja við sam­keppni. Sáttinni sem hér er kynnt er ætlað að tryggja það.“

[adspot]

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur haft til rann­sóknar sam­runa sem felst í kaupum Ardian France á Mílu af Símanum. Míla rekur inn­viði fjar­skipta á öllu Íslandi og er stærsti og mik­il­væg­asti heild­sali á fjar­skipta­þjón­ustu hér á landi. Síminn er öfl­ug­asti smá­sali á fjar­skipta­þjón­ustu og er því stærsti kaup­and­inn á fjar­skipta­þjón­ustu í heild­sölu. Miklu skiptir því fyrir neyt­endur og atvinnu­lífið að sala Símans á Mílu sé fram­kvæmd með þeim hætti að hún raski ekki sam­keppni á þeim mik­il­vægu mörk­uðum sem um er að tefla.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að breytt eign­ar­hald á Mílu og rof á eigna­tengslum við Símann sé jákvætt skref fyrir sam­keppni á fjar­skipta­mörk­uðum. Samhliða söl­unni á Mílu var hins vegar gerður lang­tíma heild­sölu­samn­ingur milli Símans og Mílu sem fól í sér sam­keppn­is­hindr­anir, sem engin for­dæmi eru fyrir. Þá voru fjar­skipta­kerfi og heild­sölu­starf­semi flutt frá Símanum til Mílu í aðdrag­anda söl­unnar sem styrktu stöðu Mílu. Kölluðu þessi atriði á aðgerðir af hálfu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Breytingar á heildsölusamningi Símans og Mílu

  • Einka­rétti Mílu til að veita Símanum heild­sölu­þjón­ustu settar skorður: Upp­haf­legur samn­ingur fól í sér alhliða einka­rétt Mílu til að veita Símanum alla þá heild­sölu­þjón­ustu sem Síminn þarf á að halda. Breyt­ingar á samn­ingnum gera Símanum kleift að leita til ann­arra aðila með allt að 20% af heild­sölu­þjón­ustu á sviðum þar sem Míla hefur hvað sterkasta stöðu. Með því gefst öðrum inn­viða­fyr­ir­tækjum tæki­færi til að bjóða Símanum þjón­ustu, sam­hliða því að sam­keppn­is­legt aðhald Símans gagn­vart Mílu eykst.
  • Felld eru út ákvæði sem tryggja Mílu rétt til að fá upp­lýs­ingar um og jafna til­boð ann­arra birgja til Símans: Ákvæði af þessu tagi eru í sam­keppn­is­rétti kölluð „ensk ákvæði“ og hefðu tryggt Mílu yfir­burða­stöðu gagn­vart keppi­nautum sínum í samn­ingum um heild­sölu­þjón­ustu við Símann, til við­bótar við einka­rétt sem getið var um hér að framan. Nið­ur­fell­ing þeirra skapar aukin tæki­færi til sam­keppni.
  • Samstarf milli Mílu og Símans minnkað að veru­legu leyti: Í upp­haf­legum samn­ingi var kveðið á um náið lang­tíma­sam­starf Mílu og Ardian um við­skipta­legar ákvarð­anir, sem og fjár­fest­ingar og upp­bygg­ingu. Þessar skuld­bind­ingar um sam­starf hafa verið fjar­lægðar að veru­legu leyti. Jafnar það m.a. stöðu keppi­nauta á fjar­skipta­mark­aði gagn­vart inn­viða­þjón­ustu Mílu.
  • Sam­keppn­is­bönn Símans og Mílu felld út að veru­legu leyti: Upp­haf­legur samn­ingur skuld­batt Símann til að keppa ekki við Mílu um heild­sölu­þjón­ustu og Mílu til þess að keppa ekki við Símann í smá­sölu, til næstu tutt­ugu ára. Bann við sam­keppni Mílu við Símann hefur nú verið fellt niður og bann við sam­keppni Símans við Mílu tak­markast við þrjú ár. Skapa þessar breyt­ingar aukið sam­keppn­is­legt aðhald, bæði í smá­sölu og inn­viða­starf­semi.
  • Stuðlað að því að tækni­þróun og hag­ræð­ing skili sér í lægra verði til við­skipta­vina: Í upp­haf­legum samn­ingi er samið um verð á þjón­ustu Mílu við Símann til langs tíma og verð bundið vísi­tölu neyslu­verðs. Aðrar breyt­ingar á samn­ingnum í kjöl­far sáttar draga úr hætt­unni á sam­keppn­is­hindr­unum vegna þessa. Auk þess hafa aðilar skuld­bundið sig til að tryggja að tækni­þróun og hag­ræð­ing skili sér í lægra verði til við­skipta­vina.
  • Gild­is­tími styttur um fjórð­ung: Samn­ings­tími hefur verið styttur úr tutt­ugu árum í fimmtán ár, auk þess sem fram­leng­ing­ar­á­kvæðum hefur verið breytt. Við mat á samn­ings­tíma horfði Sam­keppn­is­eft­ir­litið til ann­arra jákvæðra breyt­inga á samn­ingnum sem hér er lýst, auk þess sem horft er m.a. til líf­tíma eigna.

Starfsemi Mílu sett skilyrði

  • Bann við sam­keppn­is­hamlandi vöndlun og sam­tvinnun þjón­ustu­þátta: Við und­ir­bún­ing að söl­unni á Mílu voru mik­il­væg kerfi og þjón­usta flutt frá Símanum til Mílu. Með því breikk­aði þjón­ustu- og vöru­fram­boð Mílu veru­lega og staða félags­ins styrkt­ist gagn­vart keppi­nautum. Mik­il­vægt er því að vinna gegn því að félagið geti nýtt sér þessa stöðu til að úti­loka sam­keppni frá keppi­nautum með ein­fald­ara þjón­ustu- eða vöru­fram­boð. Vinna skil­yrði sátt­ar­innar gegn þessu.
  • Jafn aðgangur að kerfum og þjón­ustu Mílu tryggður: Mílu verður skylt að gæta jafn­ræðis, hlut­lægni og gagn­sæis gagn­vart fjar­skipta­fyr­ir­tækjum sem óska eftir teng­ingu við inn­viði Mílu í kaupum á heild­sölu­þjón­ustu. Í þessu felst einnig bann við hvers konar mis­munun við­skipta­vina. Þannig er aðgangur allra fjar­skipta­fyr­ir­tækja að mik­il­vægum kerfum og þjón­ustu Mílu tryggður og unnið gegn því að stærsta smá­sölu­fyr­ir­tækið, Síminn, njóti for­gangs í við­skiptum við Mílu.
  • Upp­lýs­inga­miðlun og skylda vegna breyt­inga á kerfum og þjón­ustu Mílu: Með sömu mark­mið að leið­ar­ljósi er Míla skuld­bundin til að upp­lýsa alla við­skipta­vini um nýjar eða fyr­ir­hug­aðar vörur eða þjón­ustu með sama hætti, svo allir sitji við sama borð.
  • Aðrar aðgerðir til að stuðla að við­skipta­frelsi Símans
  • Með fram­an­greindum breyt­ingum á heild­sölu­samn­ingi Símans og Mílu er Símanum tryggt aukið frelsi til að eiga við­skipti við keppi­nauta Mílu, en það er til þess fallið að örva sam­keppni. Eftir sem áður eru sterk við­skipta­tengsl milli Símans og Mílu, m.a. vegna flutn­ings á kerfum og þjón­ustu frá Símanum til Mílu í aðdrag­anda söl­unnar.
  • Með þetta í huga hefur Míla skuld­bundið sig til að grípa ekki til neinna aðgerða sem tak­marka frelsi Símans að þessu leyti. Einnig hefur Síminn und­ir­ritað yfir­lýs­ingu þar sem hann ábyrgist m.a. að fyr­ir­tækið muni búa á hverjum tíma yfir getu til að kaupa fjar­skipta­þjón­ustu frá keppi­nautum Mílu.

Virkt eftirlit

Til við­bótar hefð­bundnu eft­ir­liti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins verður á grund­velli sátt­ar­innar skip­aður óháður eft­ir­lits­að­ili sem ætlað er að hafa við­var­andi og virkt eft­ir­lit með því að öllum skil­yrðum sátt­ar­innar sé fylgt eftir.

Samkeppnisleg áhrif og aðrar breytingar á markaðnum

Í til­kynn­ingu segir að það sé mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að fram­an­greindar breyt­ingar á heild­sölu­samn­ingi og skil­yrði sem hvíla á sam­runa­að­ilum eyði þeim sam­keppn­is­hömlum sem salan hefði að öðrum kosti skapað. „Án þess­ara breyt­inga og skil­yrða hefði mark­aðs­ráð­andi staða Mílu á til­teknum sviðum styrkst veru­lega og skil­málar söl­unnar unnið gegn sam­keppn­is­legu aðhaldi Símans og ann­arra fjar­skipta­fyr­ir­tækja. Hefðu þessar sam­keppn­is­hömlur að óbreyttu gert að engu sam­keppn­is­legan ávinn­ing af því að slíta á eigna­tengsl Símans og Mílu. “

Samhliða rann­sókn máls­ins hafa sam­keppn­is­horfur og lík­legt fram­tíð­ar­um­hverfi fjar­skipta hér­lendis breyst tals­vert, segir enn­fremur í til­kynn­ing­unni. Þannig hafa keppi­nautar Mílu í inn­viða- og heild­sölu­starf­semi samið um og/eða til­kynnt um upp­bygg­ingu og efl­ingu gagna­flutn­ings hér­lendis, sér í lagi á stofn­línu­mark­aði. Við mat á sam­keppn­is­legum áhrifum af kaupum Ardian á Mílu er höfð hlið­sjón af fyr­ir­sjá­an­legum breyt­ingum af þessu tagi.

Nánari for­sendur þess­arar nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í mál­inu verða birtar á næst­unni.

Sátt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við Ardian og Mílu er aðgengi­leg hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár