Nýr tónn í ávörpum æðstu ráðamanna

Áherslur ára­móta­ávarpa for­seta og for­sæt­is­ráð­herra um ára­mótin 2015/2016 voru á menn­ina sem fluttu þau og þeirra verk. Áhersl­urnar nú voru allt aðrar.

Nýir menn fluttu ára­móta­á­vörp sem for­sæt­is­ráð­herra og for­seti Íslands um liðna helgi. Sigurður Ingi Jóhanns­son flutti sitt fyrsta ára­móta­ávarp sem for­sæt­is­ráð­herra á gaml­árs­dag, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafði flutt þrjú síð­ustu ávörp á meðan að hann gegndi starf­inu. Þá flutti Guðni Th. Jóhann­es­son, sjötti for­seti lýð­veld­is­ins, sitt fyrsta nýársávarp í fyrra­dag. Áður hafði Ólafur Ragnar Grímsson flutt slík 20 ár í röð.

Tölu­verður áherslu­munur var á ávörpum mann­anna tveggja sem fluttu þau nú og hinna tveggja sem fluttu þau um síð­ustu ára­mót. Kjarninn tók saman það helsta úr ára­móta­ávarpi for­sæt­is­ráð­herra árin 2015 og 2016 og úr nýársávarpi for­seta Íslands sömu ár.

Peningastefna, staða íslenskunnar og óttinn við að sagan endurtaki sig

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra var ekki alveg öruggur með að flytja sitt fyrsta ávarp sem leið­togi rík­is­stjórnar, þar sem hann leiðir starfs­stjórn sem hefur minni­hluta atkvæða á bak við sig. Ef ný rík­is­stjórn hefði verið mynduð á grund­velli nið­ur­stöðu alþing­is­kosn­inga sem fram fóru 29. októ­ber fyrir lok síð­asta árs þá hefði nýr for­sæt­is­ráð­herra flutt ávarpið. Daginn áður en það var flutt fékk Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, raunar form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Íslands til að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð.

Sigurður Ingi var hóf­samur í ára­móta­ávarpi sínu. Hann sagði að í haust hafi verið tíma­mót í hag­sögu Íslands þegar að erlendar eignir lands­manna urðu í fyrsta sinn meiri en skuldir okkar. Sér­stakrar aðgæslu væru þó þörf á upp­gangs­tímum eins og þeim sem við nú lifum. Og mikil eyðsla leiði til þenslu og verð­bólgu.

Mesta athygli í ávarp­inu vöktu orð Sigurðar Inga um að end­ur­skoða þyrfti pen­inga­stefnu Íslands heild­stætt og hvort að það kerfi sem við styðj­umst við nú sé best til þess fallið að við­halda lágri verð­bólgu og stöð­ug­leika. „Ég ótt­ast því miður að sagan gæti að ein­hverju leyti end­ur­tekið sig þar sem gengi krón­unnar hefur hækkað um tugi pró­senta á aðeins nokkrum árum og stefnir nú hrað­byri á sömu slóðir og fyrir 2008,“ sagði Sigurður Ingi.

Stöðugt gengi skipti mestu máli og í huga starf­andi for­sæt­is­ráð­herra væri mikil geng­is­hækkun jafn skað­leg og geng­is­lækkun. Leita þurfi nýrra lausna í pen­inga­málum og hætta að leggja ofurá­herslu á vexti. „Ég gæti nefnt þætti líkt og aðhald í rík­is­fjár­málum, sjóða­söfnun hins opin­bera og einnig ýmis­legt annað sem hefur verið tengt við hug­takið þjóð­hags­varúð þar sem meðal ann­ars er hugað að útlánum fjár­mála­stofn­ana[...]Grípa þarf í taumanna til að koma í veg fyrir frek­ari geng­is­styrk­ingu sem mun gera íslenska fram­leiðslu ósam­keppn­is­hæfa í útlöndum.“

Sigurður Ingi tal­aði einnig um stöðu íslensk­unnar og sagði rétt að leggja við hlustir þegar fræði­menn töl­uðu um að raun­veru­leg hætta væri á því að tungu­málið gæti dáið út. Þá nefndi hann einnig að Ísland ætti að vera í far­ar­broddi í loft­lags­málum þótt það yrði tölu­vert átak að ná þeim mark­miðum sem sett voru í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Hvatti landsmenn til að viðurkenna árangur sinn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son flutti sitt síð­asta ára­móta­ávarp, að minnsta kosti í bili, á gaml­árs­dag 2015. Atburðir sem áttu sér stað í apríl 2016, í hinu svo­kall­aða Wintris-máli, gerðu það að verkum að hann var knú­inn til að segja af sér emb­ætti og kosn­ingum var flytt fram á haust.

Í ávarp­inu lagði Sig­mundur Davíð fyrst og síð­ast áherslu á þann góða árangur sem hann taldi rík­is­stjórn sína hafa náð fyrir lands­menn. Þótt margir ættu við erf­ið­leika að stríða, og til þeirra ætti að hugsa, væri líka mik­il­vægt að minn­ast þess góða og láta það verða hvatn­ingu til fram­fara.

„Árið 2015 reynd­ist far­sælt fyrir íslensku þjóð­ina. Flest hefur gengið okkur í hag und­an­farin miss­eri og betur en víð­ast hvar ann­ars staðar.[...]Vel hefur tek­ist til með stór mál. Stutt er síðan skulda­vandi stóð efna­hags­legri fram­tíð lands­ins fyrir þrifum en nú hefur skulda­hlut­fall heim­il­anna lækkað það mikið og hratt að skuldir íslenskra heim­ila eru orðnar hlut­falls­lega lægri en í mörgum nágranna­löndum okkar.

Uppgjör slita­búa bank­anna og losun fjár­magns­hafta ger­breyta efna­hags­legri stöðu okkar og mögu­leikum til fram­tíðar.[...]Á nýju ári ræðst hvort okkur auðn­ast að byggja áfram upp á grunni þess árang­urs sem þegar hefur náðst. Til þess að svo megi verða munum við þurfa sam­stöðu um að halda áfram á þeirri braut sem hefur reynst okkur svo vel. Hluti af því er að við við­ur­kennum árang­ur­inn og látum hann þannig verða okkur að hvatn­ingu.“

Sig­mundur Davíð sagði að þegar fólk upp­lifi vel­gengni, fram­farir og árangur þá dragi það athygl­ina að und­an­tekn­ing­unum. „En þegar það er árang­ur­inn sem beinir athygl­inni að und­an­tekn­ing­unum væri synd að líta á und­an­tekn­ing­arnar sem rétt­læt­ingu fyrir því að umbylta öllu, telja allt von­laust og ætla að byrja frá grunni, gera eitt­hvað allt annað. Þegar gengur vel, mjög vel, gef­ast menn ekki upp og segja að fyrst ekki sé búið að ná full­komnun sé betra að gera enn eina til­raun með ein­hverja hug­mynda­fræði sem lofar full­komnu sam­fé­lagi. Slíkt hefur alltaf endað illa.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann hvatti svo til þess að hið mann­gerða umhverfi, bæir og sveitir, yrðu gerð sífellt meira aðlað­andi og að arf­leið vík­inga­tím­ans yrði gert hærra undir höfði ásamt annarri sögu okkar og menn­ingu.„Samfélag okkar virkar vel og í krafti þess getum við haldið áfram að bæta það. Mestu hætt­urnar sem við stöndum frammi fyrir eru kæru­leysi, það að við lítum á árang­ur­inn sem sjálf­gef­inn, og nei­kvæðni.“

Styrkur þjóðfélags ekki mældur í hagvexti heldur framkomu við þá sem minna mega sín

Guðni Th. Jóhann­es­son, sjötti for­seti Íslands, flutti í fyrsta sinn nýársávarp á sunnu­dag. Þar var sleg­inn nýr tónn. Guðni Th. hóf ávarp sitt á því að fjalla stutt­lega um þann tíma sem hann hefur setið í emb­ætt­inu, en hann tók við því 1. ágúst síð­ast­lið­inn. Hann hafi upp­lifað að Íslend­ingar beri mikla virð­ingu fyrir emb­ætti for­seta Íslands en um leið megi hann ekki telja sig yfir aðra haf­inn. Öllum sé hollt að koma til dyr­anna eins og þeir eru klæddir og sagði Guðni Th. að Helgi Björns­son hafi orðað það þannig í nýlegu dæg­ur­lagi: „Vertu þú sjálf­ur, gerðu það sem þú vilt. Vertu þú sjálf­ur, eins og þú ert. Láttu það flakka, dans­aðu í vind­in­um. Faðm­aðu heim­inn, elsk­að­u.“

Guðni Th. sagði að sam­fé­lag okkar hafi lengi verið eins­leitt. Ekki væri langt síðan að Íslend­ingar voru nær allir í þjóð­kirkj­unni og öðrum kristnum trú­fé­lög­um, hvítir á hör­und, áttu íslensku að móð­ur­máli og báru auð­sýni­lega íslenskt nafn. „Þetta er liðin tíð sem kemur ekki á ný. Fram­farir um okkar daga byggj­ast á fjöl­breytni; flæði hug­mynda og fólks um víða ver­öld. Um leið verðum við þó ætíð að tryggja og vernda grunn­gildi okk­ar; rétt­ar­ríki og vel­ferð­ar­sam­fé­lag þar sem mann­rétt­indi eru í hávegum höfð, jafn­rétti kynj­anna, trú­frelsi og ást­frelsi, mál­frelsi og menn­ing­ar­frelsi. Sömu­leiðis væri heilla­ráð að kynna fyrir þeim sem hér vilja setj­ast að þau þjóð­ar­ein­kenni sem hafa hjálpað okkur að kom­ast af á hinu harð­býla landi okk­ar: þraut­seigju og þrjósku, sam­stöðu þegar þörf krefur en sund­ur­lyndi þess á milli, og þá blöndu af aga­leysi og æðru­leysi sem kemur okkur í vand­ræði en út úr þeim aftur – og má draga saman í orð­tak­inu góða: „Þetta redd­ast.““

For­set­inn sagði að hann hyggi að flestir Íslend­ingar séu ein­huga um að meg­in­stoð­ir okkar sam­fé­lags séu jafn réttur allra til grunn­mennt­unar og lækn­inga, óháð efna­hag. „Sátt virð­ist líka ríkja um nauð­syn þess að heil­brigð­is- og ­mennta­kerfi lands­ins standi undir nafni. Sé þannig að verki staðið er minni hætta en ella á því að fólk fest­ist í fátækt og for­laga­fjötr­um. Um ­leið eiga allir að geta spreytt sig, skarað fram úr, efn­ast, gert vel við sig og sína en goldið sann­gjarnan skerf til sam­fé­lags­þarfa. Höfum þó í huga að aukin mis­skipt­ing veldur sundr­ungu og spennu. Mann­kyni mun aldrei farn­ast vel ef eitt pró­sent jarð­ar­búa á eins mik­inn auð og hin 99 pró­sent­in til sam­ans. Ógn stafar af fjár­magns­skipu­lagi sem örfáir stýra og tek­ur ekki mið af hags­munum fjöld­ans. Þannig hafa Barack Obama ­Banda­ríkja­for­seti og vís­inda­mað­ur­inn Stephen Hawking nýlega kom­ist að orði og undir þessi sjón­ar­mið má taka.“

Guðni Th. sagði að styrkur ríkis og þjóð­fé­lags væri ekki met­inn eftir hag­vexti, þjóð­ar­fram­leiðslu, víg­bún­aði eða mann­fjölda. Þótt að við Íslend­ingar fögnum afrekum sam­landa okkar á sviði menn­ing­ar, vís­inda eða ­í­þrótta séu þau ekki endi­lega til vitnis um kosti sam­fé­lags­ins. „Raun­veru­legur styrkur þess felst í því hversu vel er hlúð að sjúkum og öðrum sem þurfa á aðstoð að halda, fólki sem býr við fötlun eða ­þroska­skerð­ingu. Styrk sam­fé­lags má líka meta eftir því hvernig börn­um er sinnt, hvernig búið er að öldruðum á ævi­kvöldi. Þetta eru allt sam­an­ ­mæli­kvarðar á lífs­gæði, mark­mið sem skipta mestu í bráð og lengd. Í sam­an­burði við mörg önnur ríki og okkar eigin for­tíð megum við vel við una. En við getum ætíð gert enn bet­ur.“

Taldi óhætt að stíga frá þar sem helstu áskoranir væru úr vegi

Ólafur Ragnar Grímsson flutti nýársávarp for­seta Íslands í síð­asta sinn fyrir einu ári og einum degi síðan. Hann hafði þá setið sem for­seti í tæp 20 ár. Ávarps­ins var beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu enda hafi for­set­inn gefið það út að hann myndi til­kynna um hvort hann ætl­aði sér að sækj­ast eftir end­ur­kjöri eða ekki í því.

Ávarp Ólafs Ragnars fjall­aði framan af um emb­ættið sjálft og þann fjöl­þætta vitn­is­burð sem árið 2015 hafði fært um trausta stöðu Íslands á alþjóða­vett­vangi. Þar minnt­ist Ólafur Ragnar sér­stak­lega á þing Hring­borðs Norð­ur­slóða og þau erlendu fyr­ir­menni sem höfðu annað hvort haldið ræður eða komið að þeim vett­vangi en for­set­inn fyrr­ver­andi var sjálfur helsti hvata­maður vett­vangs­ins.

Ólafur Ragnar rakti síðan fleiri ferðir sínar erlendis og sagði frá þeim vilja sem fram hefði komið hjá erlendum ríkjum að nýta kunn­áttu Íslend­inga og hæfni, t.d. í sjálf­bærum veiðum og vinnslu og varð­andi orku­bú­skap.

Hann snéri sér síðan að stemmn­ing­unni í sam­fé­lag­inu og sagði: „Þótt erf­ið­leikar í kjöl­far banka­hruns­ins, glíman við fjár­málakrepp­una og and­streymið sem við mættum víða hafi á stundum nán­ast þaggað niður umræður um ágæti Íslands og styrk­leika þjóð­ar­innar, er áríð­andi nú, þegar mestur vand­inn er að baki, að við höldum til haga hinum góðu kostum, skiljum hve gjöful fram­tíðin getur reynst lands­mönnum öllum og sækjum svo auk­inn styrk í þá virð­ingu sem Íslend­ingar njóta víða um ver­öld.“

Ólafur Ragnar fór síðan yfir helstu auð­lindir þjóð­ar­innar sem væru að verða sífellt verð­mæt­ari. Þær væri fiski­stofnar, gæði lands­ins til að fram­leiða mat­væli, orkan í iðrum jarðar, feg­urð lands­ins, menn­ing þess og ótrú­legur árangur Íslend­inga í vís­indum og tækni. „Allt eru þetta sterkir strengir í stöðu Íslands, burð­ar­virki í þeirri bygg­ingu sem helguð er fram­tíð okkar.“

Í nið­ur­lagi ávarps síns hvatti Ólafur Ragnar til þess að Íslend­ingar ættu að nýta bætta stöðu sína til að laga haf aldr­aðra og öryrkja og útrýma fátækt úr íslensku sam­fé­lagi.

Þjóðinni hafi þó, þrátt fyrir allt, miðað vel og leyst úr flestum þeim þrautum sem veg­ferð hennar hefði fært henni í hendur. Sú óvissa sem mót­aði afstöðu margra til for­seta­kjörs nokkrum árum áður væri ekki lengur fyrir hendi. Búið væri að leggja til hliðar aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, upp­gjör föllnu bank­anna og afnám hafta væri senn í höfn og deilur um stjórn­ar­skrána hefðu vikið fyrir sátt.

„Í ljósi hennar og á grund­velli lýð­ræð­is­ins sem er okkar aðals­merki finn­ast mér blasa við hin réttu vega­mót til að færa ábyrgð for­seta á aðrar herðar og hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til end­ur­kjörs.

Nú er góður tími fyrir þjóð­ina að ganga með nýjum hætti til ákvörð­unar um for­seta; sess Íslands og inn­viðir þjóð­lífs­ins eru traust­ari en um langan tíma. Þótt annar muni halda um for­seta­stýrið verð ég áfram reiðu­bú­inn að sinna verkum á þjóð­ar­skútu okkar Íslend­inga; er á engan hátt að hverfa frá borði; verð ætíð fús að leggj­ast með öðrum á árar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár