SARS-CoV: Veiran sem hvarf

Þó að veiran sem olli SARS-sjúk­dómnum, frænka þeirrar sem nú veldur COVID-19, virð­ist hafa horfið hvílir hún „án nokk­urs vafa áfram í ein­hverjum nátt­úru­legum hýsli, senni­leg­ast leð­ur­blökum, og gæti mögu­lega komið fram aftur“.

Veiran sem olli SARS átti líkt og sú sem veldur COVID-19 upptök sín í leðurblökum.
Veiran sem olli SARS átti líkt og sú sem veldur COVID-19 upp­tök sín í leð­ur­blökum. Mynd: EPA

Í nóv­em­ber árið 2002 greind­ist fyrsta til­fellið af sýk­ingu af völdum nýrrar veiru sem síðar átti eftir að fá nafnið SARS-CoV. Veiran olli sjúk­dómi sem nefndur var ein­fald­lega SARS eða HABL (heil­kenni alvar­legrar bráðrar lungna­bólgu) á íslensku.

Fyrsta til­fellið greind­ist í Guandong-hér­aði í Kína en orsök og eðli sjúk­dóms­ins var þá óþekkt. Í febr­úar árið 2003 barst sjúk­dóm­ur­inn út fyrir Kína, fyrst til Hong Kong, Víetnam og Kanada og síðar til fleiri landa, alls 29. En þegar í júlí þetta ár lýsti Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin því yfir að far­ald­ur­inn væri yfir­stað­inn – aðeins rúm­lega hálfu ári eftir að hann kom upp. SARS-veiran hrein­lega hvarf nokkru síðar og sjúk­dóm­ur­inn sömu­leiðis.

[adspot]

En hvers konar far­aldur var SARS og er vitað af hverju veiran hvarf?

Vís­inda­vef­ur­inn hefur nú birt svar við þess­ari spurn­ingu. Svarið skrifa Jón Magnús Jóhann­es­son, deild­ar­læknir á Land­spít­al­anum og Emilía Dagný Svein­björns­dóttir, land­fræð­ingur og starfs­maður Vís­inda­vefs­ins.

[links]Veiran SARS-CoV er ein af sjö kór­ónu­veirum sem getur sýkt menn. SARS veldur sýk­ingu sem bundin er við neðri önd­un­ar­færi og algeng­ustu ein­kennin eru hósti, hiti, hrollur, slapp­leiki, vöðva- og höf­uð­verkur og mæði. Nið­ur­gangur og háls­sær­indi geta einnig fylgt. Sjúk­dóm­ur­inn veldur í flestum til­fellum lungna­bólgu. Með­göngu­tími sjúk­dóms­ins er venju­lega tveir til sjö dagar en getur orðið tíu dagar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá WHO voru til­felli á tíma­bil­inu sem far­ald­ur­inn stóð yfir, frá nóv­em­ber 2002 til loka júlí 2003, alls 8.096 og dauðs­föll 774. Lang­flest til­fellin voru í Kína, rúm­lega 5.300 en einnig voru mörg til­felli í Hong Kong (1755), Taívan (346), Kanada (251) og Singapúr (238). Þótt far­ald­ur­inn væri yfir­stað­inn héldu áfram að koma upp ein­stök til­felli næstu mán­uði en frá vori 2004 hefur ekk­ert til­felli greinst, segir í svari Jóns Magnúsar og Emilíu Dagnýjar.

Þau skrifa að veiran virð­ist aðal­lega hafa borist á milli manna með dropa- og snert­ismiti. Fyrstu vik­urnar eftir að sjúk­dómnum var lýst voru flestir þeirra sem sýkt­ust heil­brigð­is­starfs­menn sem önn­uð­ust sjúk­linga með SARS og nán­ustu aðstand­endur sjúk­ling­anna. Þegar yfir lauk var heil­brigð­is­starfs­fólk um fimmt­ungur þeirra sem smit­uð­ust.

Lögð var mikil áhersla á að leita upp­runa SARS-CoV og var nið­ur­staðan sú að lík­leg­ast muni hún vera komin frá leð­ur­blöku. Þaðan barst hún svo í desk­etti (e. civets) og marð­ar­hunda (e. raccoon dogs) og svo loks í menn. „SARS-CoV er þannig klass­ískt dæmi um flutn­ing kór­ónu­veira frá dýrum til manna,“ stendur í svar­inu.

Í kjöl­far rann­sókna á upp­runa veirunnar greind­ist einnig fjöldi ann­arra skyldra veira í mörgum leð­ur­blöku­teg­undum. SARS-CoV og skyldar veirur mynda sína eigin teg­und innan veiru­fræð­innar: SARS-related coronavirus, sem á íslensku mætti kalla SARS-skyldar kór­ónu­veirur. SARS-CoV-2 sem veldur sjúk­dómnum COVID-19 fellur meðal ann­ars undir þessa teg­und sem skýrir nafn­gift hennar.

Dreifðist hreinlega verr en sú nýja

Jón Magnús og Emilía Dagný skrifa að frá upp­hafi hafi verið lögð rík áhersla á að leita leiða til að ráða nið­ur­lögum SARS-kór­ónu­veirunnar. Búið var að þróa nokkur bólu­efni gegn veirunni og voru sum þeirra til­búin til rann­sókna í mönnum. „En þegar SARS hvarf nokkuð skyndi­lega árið 2004 fór áhugi á þessum bólu­efnum hratt minnk­andi og því miður var frek­ari þróun bólu­efna gegn sjúk­dómnum stöðvuð.“

Enn er ekki vitað af hverju SARS hvarf svo skyndi­lega en ýmsir þættir gætu hafa haft áhrif á þá þróun. Næstum allir sem smit­uð­ust af SARS fengu ein­kenni og flestir þeirra sem urðu veikir sýndu alvar­leg ein­kenni. Þannig var auð­veld­ara að greina þá sem sýkt­ust af SARS-kór­ónu­veirunni og beita við­eig­andi smit­gát. Í ljósi þess að nær allir sem smit­uð­ust fengu ein­kenni var einnig auð­veld­ara að rekja smit innan sam­fé­laga. Þótt SARS hafi verið mjög smit­andi, sér­stak­lega innan spít­ala, virt­ist veikin aðeins smit­ast frá ein­stak­lingum sem voru með ein­kenni, stendur í svari Jóns Magnúsar og Emilíu Dagnýjar. „Þetta var þannig ólíkt COVID-19 sem getur smit­ast milli manna áður en ein­kenni koma fram (þó nákvæm­lega hversu miklu máli þetta skiptir sé óvíst).

Mögulega dreifð­ist SARS hrein­lega verr miðað við til dæmis COVID-19 eða inflú­ensu. Sumar örverur dreifast mjög vel við viss skil­yrði en illa við aðrar aðstæður. Það gæti hafa átt við um SARS.

Ofan­greindir þættir sam­hliða víð­tækum við­brögðum í mis­mun­andi sam­fé­lögum (útbreidd smit­gát, sótt­kví, smitrakn­ing, ein­angrun og fleira) áttu lík­leg­ast stærsta þátt­inn í að SARS hvarf sjónum okkar. Hins vegar hvílir veiran án nokk­urs vafa áfram í ein­hverjum nátt­úru­legum hýsli, senni­leg­ast leð­ur­blökum, og gæti mögu­lega komið fram aftur,“ skrifar Jón Magnús og Emilía Dagný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár